Ísland sigraði Tékkland og tók risaskref í átt að lokakeppni EM

Ísland sigr­aði Tékkland 2-1 á troð­fullum Laug­ar­dals­velli í kvöld í toppslag A-rið­ils í und­ankeppni evr­ópu­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu . Sigurinn gerir það að verkum að Ísland er á toppi rið­ils­ins með 15 stig og er skrefi nær því að kom­ast í loka­keppni evr­ópu­meist­ara­móts­ins í Frakk­landi næsta sumar. Mörk Íslands skor­uðu Aron Einar Gunn­ars­son og Kolbeinn Sig­þórs­son.

Fyrri hálf­leikur var ákaf­lega tíð­inda­lít­ill. Mikið um stöðu­bar­áttu og lítið um spil. Það gerði það að verkum að minnsta fram­gangi var fagnað eins og mark­tæki­færi væri um að ræða.

Tékkar reyndu að dæla mikið af boltum inn á tröllið Necid, sem byrj­aði í fremstu víg­línu hjá þeim að þessu sinni. Það skil­aði þó litlum árangri. Íslend­ingar sköp­uðu sér nokkrar ágætar sókn­ar­stöður en síð­asta send­ingin brást nán­ast án und­an­tekn­inga.

Þrátt fyrir að umræður um laga­setn­ingu á verk­fall hjúkr­un­ar­fræð­inga og ákveðnar starf­stéttir innan BHM stæðu enn yfir á Alþingi á meðan á leiknum stóð voru báðir for­víg­is­menn rík­is­stjórn­ar­innar, Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, mættir á leik­inn. Athygli vakti að Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, sem lætur sig sjaldn­ast vanta í heið­urs­stúk­una, var ekki mættur að þessu sinni. Þing­menn­irnir Kristján L. Möller og Willum Þór Þórsson voru einnig í stúkunni í kvöld.

Tékkar skor­uðu síðan mark á 55. mín­útu og v ar þar að verki Borek Dockal með hörku­skoti sem var óverj­andi fyrir Hannes Þór Hall­dórs­son mark­vörð Íslend­inga. Við markið hresst­ust leikar umtals­vert og íslenska liðið virt­ist skipta um gír. Það varð til þess að liðið jafn­aði leik­inn á 60. mín­útu með skalla­marki fyr­ir­lið­ans Arons Einars Gunn­ars­sonar. Á 76. mín­útu var vara­mað­ur­inn Jón Daði Böðv­ars­son í bar­áttu fyrir utan víta­teig Tékka sem varð til þess að varna­maður Tékka tækl­aði bolt­ann inn í teig til Kolbeins Sig­þórs­sonar sem var einn á móti Peter Cech, mark­manni Tékka. Hann gerði engin mis­tök, fór fram­hjá mark­mann­inum með hjálm­inn, og renndi bolt­anum í autt markið.

Einn stór­kost­leg­asti sigur íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu­sög­unni stað­reynd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár