„Íslenska undrið stefnir á EM“ - BT fjallar um uppgang landsliðsins

Danski frétta­mið­ill­inn Berl­ingske Tidende (BT) fjallar um viður­eign íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta við það tékk­neska sem fram fór á Laug­ar­dals­vell­inum í gær­kvöldi. Eins og allir vita lyktaði leiknum með 2-1 sigri Íslands, en með sigrinum smellti karla­lands­liðið sér á topp A-rið­ils þegar fjórir leikir eru eftir í riðl­inum.

Lands­liðið er hárs­breidd frá sögu­legum áfanga; að tryggja sér sæti á loka­móti í fót­bolta, en margir vilja meina að Íslend­ingar séu komnir með aðra löpp­ina til Frakk­lands, þar sem Evr­ópu­meist­ara­mótið fer fram næsta sumar.

Blaða­maður BT skrifar um hvernig íslenska liðið náði að snúa leiknum sér í vil eftir að hafa lent marki undir í síð­ari hálf­leik. Af skrifum hans má dæma að hann hafi hrif­ist af bar­átt­u­gleði íslensku strák­anna og hvernig þeir unnu sig aftur inn í leik­inn.

„Það er kannski skrítið að venj­ast til­hugs­un­inni, eftir að hafa verið lið sem vart var tekið alvar­lega á meðal Norð­ur­land­anna í hund­rað ár, en nú er Ísland með besta nor­ræna lands­liðið og það stöðug­asta,“ skrifar blaða­maður BT.

„Leikur íslenska liðs­ins, sem á árum áður ein­kennd­ist einna helst af bar­átt­u­gleði, hefur tekið stakka­skiptum og nýtur nú góðs af því að leik­menn liðs­ins spila sem atvinnu­menn á meg­in­land­inu,“ heldur blaða­maður BT áfram. „Danska úrvals­deildin kom meira að segja við sögu í þess­ari viður­eign í alþjóð­legum fót­bolta þegar Ari Freyr Skúlason, leik­maður OB, sendi fal­lega send­ingu á koll­inn á Aroni Einari Gunn­ars­syni sem stýrði bolt­anum fram hjá Petr Cech.

Holland mætir íslenska undr­inu á heima­velli þann 6. sept­em­ber næst­kom­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár