Íslandsbanki fækkar um 20 starfsmenn

Breytt skipu­lag tekur gildi hjá Íslands­banka í dag og sam­hliða því verður starfs­mönnum fækkað um 20.

Íslands­banki mun fækka starfs­mönnum um tutt­ugu sam­hliða breyt­ingum á skipu­lagi sem taka gildi í dag. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­anum.

„Á und­an­förnum árum höfum við verið að ein­falda banka­við­skiptin og nú ein­földum við og aðlögum skipu­lag bank­ans að breyttu umhverfi. Það er öllum fyr­ir­tækjum hollt að fara í gegnum skipu­lags­breyt­ingar og í því liggja fjöl­mörg tæki­færi. Með þessum breyt­ingum blæs bank­inn til sóknar og treystir und­ir­stöður fyrir aukna skil­virkni. Við hlökkum til áfram­hald­andi góðs sam­starfs við við­skipta­vini okkar þar sem við munum ein­blína á enn betri þjón­ustu í nýju og ein­fald­ara skipu­lagi,“ er haft eftir Birnu Ein­ars­dóttur banka­stjóra í til­kynn­ing­unni.

Skipu­lagi bank­ans verður skipt í þrjú tekju­svið sem verða ein­stak­lingar, við­skipta­banki og fyr­ir­tæki og fjár­festar. Mark­miðið með breyt­ing­unum er að mæta breyttum þörfum og bjóða betri banka­þjón­ustu, segir í til­kynn­ing­unni. Ein­stak­lings­svið mun veita ein­stak­lingum alhliða fjár­mála­þjón­ustu, við­skipta­banka­svið mun þjón­usta lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki og svið stórra fyr­ir­tækja og fjár­festa mun þjón­usta stór fyr­ir­tæki og fjár­festa með lán­veit­ingar, miðlun verð­bréfa og gjald­eyris, fyr­ir­tækja­ráð­gjöf, einka­banka­þjón­ustu og sölu áhættu­varna.

Sigríður Hrefna Hrafn­kels­dóttir hefur verið ráðin sem nýr fram­kvæmda­stjóri ein­stak­lings­sviðs bank­ans, en hún er lög­maður með MBA próf frá við­skipta­há­skól­anum í Kaup­manna­höfn (CBS). Una Steins­dóttir og Vilhelm Már Þor­steins­son eru fram­kvæmda­stjórar hinna svið­anna.

VÍB eigna­stýr­ing mun fær­ast yfir á tekju­sviðin og í dótt­ur­fé­lag bank­ans, Íslands­sjóði, og áherslu­breyt­ingar verða gerðar á grein­ing­ar­starfi bank­ans. Áfram verður þó starf­andi aðal­hag­fræð­ingur sem mun bera ábyrgð á þjóð­hags­grein­ingu bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár