Sósíalistar velkomnir í raðir VG

Forseti Alþingis og einn stofn­andi Vinstri grænna seg­ist ekki eiga von á öðru en að rót­tækum sós­í­alistum yrði vel tekið ef þeir vildu ganga í raðir VG – og efla flokk­inn og gera hann þá ennþá rót­tæk­ari.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Mynd: Bára Huld Beck

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis og þing­maður VG, segir að það væri ekki endi­lega ófyr­ir­sjá­an­leg þróun ef Sós­í­alista­flokk­ur­inn næði inn á þing í næstu alþing­is­kosn­ingum þegar hann er spurður út í hvernig honum lít­ist á nýlið­ann á vinstri vængnum, Sós­í­alista­flokk­inn.

Þetta kemur fram í íta­legu við­tali við Stein­grím sem birt­ist um síð­ustu helgi á Kjarn­anum.

Hann bendir á að á hinum Norð­ur­lönd­unum séu ýmsir val­kostir til vinstri. „Ég tel auð­vitað að Vinstri­hreyf­ingin grænt fram­boð sé þessi sós­íal­íski flokkur. Ef það er ekki nógu rót­tækt fyrir menn þá það. Þá bara útbúa menn sinn mál­flutn­ing miðað við það að þeir séu enn lengra til vinstri og svo ráða kjós­endur nið­ur­stöð­unni.“

Stein­grímur telur jafn­framt að lík­leg­ast til árang­urs sé að sam­ein­ast í breiðum, sterkum, vinstri sinn­uðum, grænum, femínískum flokki. „Ég spyr mig að því hvaða efni­viður sé í heil­steypta póli­tík sem ekki rúm­ast undir þeim for­merkjum. Auðvitað þegar við vorum að stofna Vinstri græn og jafn­vel enn þann dag í dag þá voru auð­vitað komm­ún­istar með í hópnum. Það voru hreinir og klárir komm­ún­istar og mjög rót­tækt fólk – og það fólk bland­að­ist bara ágæt­lega við aðra sem í mesta lagi köll­uðu sig sós­í­alista eða rót­tæka vinstri menn, verka­lýðs­sinna, femínista og umhverf­is­vernd­ar­sinna.

[links]Dýnamíkin hjá okkur hefur notið góðs af því að við höfum ekki bara verið tví­skipt ef svo má að orði kom­ast. Við höfum verið miklu fleira. Ekki ein­ungis til vinstri eða græn heldur líka með femínískan arm og utan­ríkis- og frið­ar­mála­arm, byggða­mála­arm og svo fram­vegis.“

„Við eigum auðvitað engan einkarétt á því að vera eini róttæki vinstri flokkurinn“

Bendir Stein­grímur á að þegar VG varð til hafi virkj­ast fjöldi félags­lega sinn­aðs fólks sem ekki hafði tekið þátt í stjórn­málum áður. „Það leyst­ust nefni­lega úr læð­ingi kraftar sem eig­in­lega voru sterk­ari en við áttum von á. Heil­mikið af fólki mætti til leiks sem hafði ekki lagt stjórn­mál­unum lið. Félags­vant fólk úr stétta­bar­átt­unni, verka­lýðs­hreyf­ing­unni eða félaga­sam­tökum og mikið af ungu fólki. En við eigum auð­vitað engan einka­rétt á því að vera eini rót­tæki vinstri flokk­ur­inn og það er bara lýð­ræði. Eðli máls­ins sam­kvæmt geta menn auð­vitað látið á það reyna hvort að stuðn­ingur sé við þá og þeirra hug­mynda­fræði.“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn sprettur upp úr ákveðnum jarð­vegi í kringum bús­á­halda­bylt­ing­una og verka­lýðs­hreyf­ing­una og virð­ist vera vöntun á ennþá rót­tæk­ari vinstra afli. Hvað finnst þér um það?

„Ég tel að það fólk sé allt saman vel­komið í okkar raðir, það er ekki vand­inn í mínum huga. En kannski eru aðstæð­urnar núna þegar við erum í rík­is­stjórn þannig að þá finnst fólki það eitt­hvað fjar­læg­ara. Ég á ekki von á öðru en að þeim yrði vel tekið ef þau vildu ganga í okkar raðir og efla okkur og gera okkur þá ennþá rót­tæk­ari. Valið er auð­vitað um það,“ segir Stein­grímur.

Sérðu þá ekki rót­tækn­ina sem vanda­mál?

„Nei, alls ekki. Óli kommi og Þor­valdur Þor­valds­son voru til dæmis góðir liðs­menn okkar og voru fyrstu 10 til 15 árin í okkar hreyf­ingu. Ég man ekki til þess að það hafi skapað nein vanda­mál. Og þannig hafa menn þá áhrif inn í stærri hóp, getum við sagt, og toga þá hreyf­ing­una enn meira til vinstri,“ segir hann en bætir því við að auð­vitað verði menn að finna út úr þessu sjálfir. Persónur og leik­endur skipti alltaf máli og ætli hann síð­astur manna að fara að tala úr mönnum kjarkinn hvað það varðar.

„Það er að mörgu leyti spenn­andi að láta reyna á gæfu sína í svona lög­uðu. Menn eiga fullan rétt á því og er það hluti af lýð­ræð­inu og þing­ræð­inu. Og ef eitt­hvað er þá þarf að passa upp á það að þrösk­uld­arnir séu ekki of háir til þess að nýsköpun eigi sér stað innan stjórn­mál­anna.“

Hann segir að áhuga­vert verði að sjá hvað gerj­ist í þessum málum.

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár