Þrjár síðustu stjórnir Sjálfstæðisflokks hafa sprungið

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki komið að rík­is­stjórn sem setið hefur heilt kjör­tíma­bil síðan Davíð Oddsson mynd­aði stjórn með Halldóri Ásgríms­syni 2003.

Bjarni Benediktsson stendur í ströngu.
Bjarni Bene­dikts­son stendur í ströngu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Síðustu þrjár rík­is­stjórnir sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tekið þátt í hafa fallið og ekki setið heilt kjör­tíma­bil.

Ólafur Þ. Harð­ar­son, stjórn­mála­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, benti á þessa stað­reynd í auka­frétta­tíma RÚV vegna stjórn­ar­slit­ana.

Bjarni Bene­dikts­son hefur setið í tveimur þess­ara þriggja rík­is­stjórna sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Fyrst sem fjár­mála­ráð­herra í sam­steypu­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum eftir kosn­ing­arnar 2013 og svo sem for­sæt­is­ráð­herra í sam­steypu­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar eftir kosn­ing­arnar 2016.

Geir Haarde var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins eftir kosn­ing­arnar 2007 þegar hann fór fyrir sam­steypu­stjórn með Sam­fylk­ing­unni.

Allar þessar stjórnir hafa sprungið með tölu­verðum látum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur þess vegna ekki komið að rík­is­stjórn sem setið hefur heilt kjör­tíma­bil síðan Davíð Oddsson og Halldór Ásgríms­son mynd­uðu saman rík­is­stjórn árið 2003. Það kjör­tíma­bil reynd­ist það síð­asta fyrir Davíð sem gegndi stöðu for­sæt­is­ráð­herra til árs­ins 2004, þegar Halldór tók við lyklunum að Stjórn­ar­ráð­inu. Halldór og Davíð hættu svo báðir í póli­tík á þessu kjör­tíma­bili svo Geir Haarde fékk stóru skrif­stof­una við Lækj­ar­götu 2006.

Hrunstjórnin

Þegar ljóst var að í óefni stefndi hausið 2008 voru dagar rík­is­stjórnar Geirs Haarde taldir. Efna­hags­hrunið gleypti rík­is­stjórn­ina og ný stjórn tók við 1. febr­úar 2009. Það var minni­hluta­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur.

Boðað var til kosn­inga um vorið 2009, tveimur árum áður en kjör­tíma­bil­inu var lokið, þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn undir for­ystu Bjarna Bene­dikts­sonar (sem hafði verið kjör­inn for­maður 29. mars 2009) fékk verstu kosn­ingu í Alþing­is­kosn­ingum í langan tíma; Flokk­ur­inn fékk sam­tals 23,7 pró­sent atkvæða.

Sam­steypu­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna undir for­ystu Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur var hins vegar mjög óvin­sæl. Jóhanna ákvað að gefa ekki kost á sér undir lok kjör­tíma­bils­ins og Árni Páll Árnason leiddi flokk­inn í kosn­ingum 2013. Sam­fylk­ingin fékk þá að kenna á óvild kjós­enda gagn­vart stjórn­völdum og fékk aðeins 12,9 pró­sent.

Wild boys-stjórnin

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn undir for­ystu Bjarna var stærsti ein­staki stjórn­mála­flokk­ur­inn á þingi eftir kosn­ing­arnar 2013. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn undir for­ystu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar var hins vegar ótví­ræður sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna og það var þess vegna Sig­mundur sem fékk boð frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, þáver­andi for­seta Íslands, um að koma á Bessa­staði og þiggja stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið.

Bjarni stefndi flokki sínum með Fram­sókn­ar­flokknum í sam­steypu­stjórn sem stundum var kölluð Wild boys-stjórnin, enda höfðu Bjarni og Sig­mundur hringt inn í vin­sælan útvarps­þátt og beðið um Wild Boys með Duran Duran, á meðan þeir voru í sum­ar­bú­stað á leyni­legum stað að búa til stjórn­ar­sátt­mála.

Bæði Bjarni og Sig­mundur höfðu hins vegar komið auð­æfum sínum undan og skráð þau í skatta­skjólum. Um það var upp­lýst í Panama­skjöl­unum vorið 2016 með þeim afleið­ingum að Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra. Bjarni stóð keikur og stóð af sér storm­inn í fjöl­skyldu­fríi á Flórída.

Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu á eftir Sigmundi Davíð og boðað var til snemm­bú­inna kosn­inga haustið 2016, um það bil hálfu ári áður en kjör­tíma­bil­inu var lokið.

Engeyjarstjórnin

Eftir kosn­ing­arnar í októ­ber 2016 var komin upp flókin staða í íslenskum stjórn­málum. Engir tveir flokkar gátu myndað meiri­hluta saman á þing­inu og því var ljóst að þrjá eða fleiri flokka þyrfti til þess að koma á starf­hæfri meiri­hluta­stjórn.

Þegar margar til­raunir höfðu verið gerðar til að leiða saman hin ýmsu flokka­mynstur tókst Bjarna Bene­dikts­syni, sem aftur hafði leitt Sjálf­stæð­is­flokk­inn í kosn­ingum og fengið flest atkvæði, að mynda stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Stjórnin var af ein­hverjum kölluð Eng­eyj­ar­stjórnin, jafn­vel þó það hefði aldrei fests að viti, enda þótti það frétta­efni að Bjarni og Benedikt Jóhann­es­son for­maður Við­reisnar væru frændur og af Eng­eyj­a­rætt­inni svoköll­uðu.

Stjórnin féll svo um sjálfa sig ef svo má segja, þegar upp komst að faðir Bjarna hefði veitt dæmdum barn­a­níð­ingi með­mæli fyrir upp­reist æru. Bjarni hafi gengið með þá vit­neskju í tvo mán­uði áður en hann skýrði frá því við félaga sína í rík­is­stjórn. Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, til­kynnti Bjarna stjórn­ar­slitin í gær­kvöldi.

Flókin staða tekur við

Óvíst er hver næstu skref verða á stjórn­ar­heim­il­inu. Það eru nokkrir mögu­leikar í stöð­unni. Hægt er að boða til nýrra þing­kosn­inga ári eftir að kosið var síð­ast, þing­flokk­arnir gætu reynt að gera nýja til­raun til að mynda rík­is­stjórn, Bjarni gæti freistað þess að fá Bjarta fram­tíð til þess að skipta um skoðun, og jafn­vel boð­ist til að segja af sér til þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái enn sæti í Stjórn­ar­ráð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár