Gangtruflanir í dönsku Eurovision vélinni

Í annað skipti í röð mistókst Dönum að kom­ast í úrslit Eurovision söngvakeppn­innar. Danskir Eurovision sér­fræð­ingar segja ekki nóg að flytj­endur standi sig vel, lagið þurfi að höfða til áhorf­enda og dóm­ara.

Danska kvennasveitin Reddi komst ekki áfram á úrslitakvöld Eurovision á laugardag. Danmörku var eina Norðulandaþjóðin sem komst ekki áfram í úrslit og Danir velta fyrir sér hvað fór úrskeiðis.
Danska kvenna­sveitin Reddi komst ekki áfram á úrslita­kvöld Eurovision á laug­ar­dag. Danmörku var eina Norðu­landa­þjóðin sem komst ekki áfram í úrslit og Danir velta fyrir sér hvað fór úrskeiðis. Mynd: EPA

Danskir veð­bankar höfðu ekki spáð dönsku kvenna­sveit­inni Reddi góðu gengi með lagið „The Show“. Þeir reynd­ust sann­spáir. Af 17 þátt­tak­endum í fyrri umferð und­an­úr­slit­anna, sl. þriðju­dag var Reddi spáð 15. sæti, en lög og flytj­endur í 10 efstu sæt­unum komust áfram og stigu á svið á úrslita­kvöld­inu. Meðal þess­ara 10 voru full­trúar Íslands og Noregs en Danir sátu eftir.

Tóku fyrst þátt árið 1957

Eurovi­son söngvakeppnin var fyrst haldin 24. maí 1956. Keppnin fór fram í Lugano í Sviss, fyr­ir­myndin var söng­keppni sem haldin hafði verið í Sanremo á Ítalíu frá árinu 1951. Sjö þjóðir tóku þátt í fyrstu keppn­inni: Belgía, Frakk­land, Þýska­land, Lúx­em­borg, Holland, Ítalía og Sviss. Hver þjóð sendi tvö lög, fram­lag Sviss „Refrain“ bar sigur úr býtum. Þrjú lönd til við­bótar, Danmörk, Aust­ur­ríki og Bretland höfðu ætlað að taka þátt en þátt­tökutil­kynn­ing­arnar bár­ust of seint. Í fyrstu keppn­inni var ein­ungis heim­il­aður einn flytj­andi frá hverri þjóð en árið eftir máttu flytj­endur vera tveir en hver þjóð sendi þá eitt lag, líkt og í dag.

Árið 1957 voru þátt­tak­endur frá tíu löndum, þeim sem tóku þátt fyrsta árið og lönd­unum þrem sem voru of sein með umsókn­irnar árið áður. Keppnin fór fram í Frank­furt í Þýska­landi.

Full­trúar Dana árið 1957 voru Birthe Wilke og Gustav Winckler, þau sungu lagið „Skibet skal sejle i nat“. Í lok lags­ins kysst­ust þau Birthe og Gustav, koss­inn stóð í 11 sek­úndur og það olli reiði og undrun full­trúa sumra þátt­töku­þjóð­anna. Parið afsak­aði sig með því að þeim hefði verið sagt að bíða eftir merki um að ljúka koss­inum, eftir þrjár til fjórar sek­úndur. Sá sem átti að gefa merkið gleymdi sér hins­vegar og þess vegna varð koss­inn svona langur. Lagið hafn­aði í þriðja sæti. Fyrsta árið sem keppnin var haldin voru engar reglur um lengd laga en ári síðar var lengdin tak­mörkuð við þrjár og hálfa mín­útu.

Dansevise

Árið 1963 voru þátt­töku­þjóð­irnar orðnar sextán, þar á meðal bæði Svíþjóð, Noregur og Finnland. Keppnin fór fram í London. Framlag Dana þetta ár var „Dansevise“, flytj­endur Grethe og Jørgen Ingmann. Þegar dóm­nefndin í Noregi til­kynnti nið­ur­stöðu sína heyrði kynn­ir­inn í London, Katie Boyle ekki hvað sagt var og sagð­ist hafa sam­band við Noreg síðar.

Þeir sem fylgd­ust með keppn­inni heyrðu hins­vegar að sá norski nefndi Sviss sem vinn­ings­lagið. Þegar norska dóm­nefndin til­kynnti svo nið­ur­stöðu sína, í annað sinn, hafði nafni Sviss verið skipt út fyrir Danmörku. Þegar málið var rann­sakað kom í ljós að Danir höfðu fengið flest stig en vegna mis­skiln­ings til­kynnti dóm­nefnd­ar­for­mað­ur­inn að Sviss fengi stig Noregs. Keppnin 1964 fór fram í tón­leika­salnum í Tívolí og þar báru ítölsku kepp­end­urnir sigur úr býtum, með yfir­burðum.

Tólf ára hlé

Árið 1966 hafn­aði fram­lag Dana í 14. sæti og í fram­haldi af því ákvað Niels Jørgen Kaiser, yfir­maður dæg­ur­mála­deildar danska sjón­varps­ins að þátt­töku í keppn­inni yrði hætt. Rökin voru þau að lögin í keppn­inni væru ekki í háum gæða­flokki.

Jafn­framt var inn­an­land­s­keppn­inni, þar sem fram­lag Dana til Eurovision hafði verið valið, hætt. Þetta hlé stóð til árs­ins 1978, þá var Niels Jørgen Kaiser hættur sem yfir­maður og aðrir vindar teknir að blása innan veggja danska sjón­varps­ins.

Upp og ofan

Á tíma­bil­inu 1984 til 1990 gekk Dönum vel í keppn­inni, þótt þeir næðu ekki að sigra. Voru meðal átta efstu í sex skipti, þar af fjórum sinnum meðal fimm efstu.

Eftir 1990 gekk Dönum mis­jafn­lega, voru ekki með á úrslita­kvöld­inu árin 1994, 1996 og 1998.

Breyttar reglur og Brødrene Olsen

Árið 1999 tóku gildi breyttar reglur. Breyt­ingin fólst í því að flytj­endur voru ekki bundnir af að syngja á eigin þjóð­tungu. Framlag Dana árið 2000 var lagið „Fly on the Wings of Love“ (Smuk som et stjerneskud). Flytj­endur voru Brødrene Olsen, þeir Jørgen og Niels Olsen. Þeim hafði ekki verið spáð góðu gengi: tveir mið­aldra karlar með kassagít­ara, báðir í svörtum jakka­fötum. Engin dans­spor og engin dans­sýn­ing. Þetta gæti ekki endað vel, töldu margir sem tjáðu sig í dönskum fjöl­miðlum. Annað kom á dag­inn, karl­arnir með kassagít­ar­ana slógu algjör­lega í gegn og sigr­uðu. Þeir fengu 195 stig, Rússland varð í öðru sæti með 155 stig og Lettland í þriðja sæti.

Árið 2001 fór keppnin fram í Parken í Kaup­manna­höfn. Þar urðu Rollo og King (hljóm­sveitin skírð eftir hundum stofn­end­anna) í öðru sæti. Árið 2003 gekk ekki jafn vel, danska fram­lagið það ár hafn­aði í 24. og neðsta sæti.

Eitt, tvö, þrjú kvöld og Emmelie de Forest

Árið 2004 var fyr­ir­komu­lag­inu breytt og keppn­is­kvöldin tvö. Síðar urðu keppn­is­kvöldin þrjú, eins og í dag: tvö und­an­úr­slita­kvöld og svo úrslita­kvöldið. Þessar breyt­ingar voru gerðar til að mæta síauknum fjölda þátt­tak­enda.

Frá árinu 2004 hefur Danmörk í ell­efu skipti náð inn í úrslitin, fimm sinnum setið eftir. Árið 2013 bar fram­lag Dan­merkur „Only Tear­drops“ í flutn­ingi Emmelie de Forest sigur úr býtum. Danir höfðu þar með sigrað þrisvar sinnum.

Hafa misst taktinn

Frá 2013 hefur leiðin, með und­an­tekn­ingum, legið niður á við.

Í fyrra náði danska lagið ekki í úrslitin og sagan end­ur­tók sig í ár. Og nú er spurt: Hvað veldur? Þessi spurn­ing hefur brunnið á vörum margra Dana síð­ustu daga.

Morten Madsen, eig­andi vef­síð­unnar Eurosong, sem hefur fylgst náið með Eurovision árum saman sagði í við­tali við danska útvarpið, DR, að lagið „The Show“ væri ein­fald­lega ekki nógu gott og félli greini­lega ekki að smekk ann­arra en Dana. Hann sagði að hljóm­sveitin hefði staðið sig mjög vel „en það dugir ekki til, lagið þarf að hitta í mark“. Morten Madsen sagð­ist hafa vitað, og skrifað á Eurosong síð­una, að lagið myndi ekki ná langt. Hann sagði jafn­framt að önnur lög sem voru með í dönsku söngvakeppn­inni (þar sem lagið var valið) hefðu að sínu mati ekki náð lengra.

Hvað er til ráða?

Áður­nefndur Morten Madsen sagði í útvarps­við­tali að danska útvarpið þurfi að hugsa málið uppá nýtt, „það er engu lík­ara en þar á bæ hafi fólk glatað til­finn­ing­unni fyrir því hvað fellur í smekk ann­arra Evr­ópu­þjóða“.

Útvarps­mað­ur­inn Ole Tøpholm, sem hefur fylgst með danskri dæg­ur­tón­list árum saman og var kynnir danska sjón­varps­ins um tíu ára skeið tekur undir orð Morten Madsen og sagði í við­tali við danska útvarpið að danska söngvakeppnin og Eurovision væri sitt­hvað. Ef maður vill ná árangri í Eurovision þýðir ekki að ein­blína á hvað gangi vel í danska útvarp­inu. Ole Tøpholm sagði að Svíum hefði tek­ist að velja lög sem sam­ein­uðu smekk heima­manna og íbúa ann­arra landa. Hann sagði jafn­framt að danskir tón­lista­menn stæðu fylli­lega jafn­fætis kol­legum sínum í öðrum löndum, lög þeirra kom­ast bara ekki í dönsku söngvakeppn­ina „af því að fólk heldur að þau gangi ekki í Eurovision“.

Ergilegt

Erik Struve Hansen deild­ar­stjóri hjá DR og umsjón­ar­maður dönsku söngvakeppn­innar telur ekki að hægt sé að reikna út hvað falli í kramið hjá áhorf­endum og dóm­nefndum utan danskra land­steina. Hann sagði í við­tali, eftir fyrra und­an­úr­slita­kvöldið, að vita­skuld yrði reynt að átta sig á hvað hefði farið úrskeiðis tvö ár í röð og hvað yrði hægt að gera betur.

Og það væri hund­fúlt, eins og hann komst að orði að hafa ekki náð í úrslitin. Hann vildi hins­vegar ekki sam­þykkja full­yrð­ingar sem heyrst hafa um að það sé „skandale“ að danska lagið hafi tvisvar í röð ekki náð í úrslitin. „Sjö lönd af 17 komust ekki áfram, við erum í þeim hópi,“ sagði Erik Struve Hansen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár