Tölvuárásir vegna hvalveiða, svindl Rússa, rotnir Danir og stjórþjóðir mögulega á hliðina

Að venju bauð Kjarninn upp á hlað­borð frétta­skýr­inga og áhuga­verðs efnis um liðna helgi. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur fjall­aði til að mynda um ótrú­lega stöðu sem komin er upp í frjáls­í­þrótta­heim­inum eftir lyfja­hneyksli í Rúss­landi.

Kjarninn greindi frá því fyrstur allra miðla á föstu­dags­kvöldið að Anonymous sam­tökin hefðu ráð­ist á íslenskar ráðu­neyt­is­síður með þeim afleið­ingum að þær lágu niðri í um hálfan sól­ar­hring. Ástæðan: hval­veiðar Íslend­inga.

Magnús Hall­dórs­son skrif­aði frétta­skýr­ingu um sífellt lækk­andi veiði­gjöld, sem gera það að verkum að mik­ill hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja verður enn meiri.

Í Kjarn­anum hefur verið lögð mikið áhersla á umfjöllun um loft­lags­mál und­an­farin miss­eri og Birgir Þór Harð­ar­son blaða­maður mun von bráðar fara fyrir okkar hönd á COP21 fund­inn í París, sem kall­aður hefur verið mik­il­væg­asti fundur mann­kyns. Á laug­ar­dag birt­ist frétta­skýr­ing þar sem farið var ítar­lega yfir hvar Ísland stendur í loft­lags­málum og hvort við höfum for­skot á aðra með hreinu ork­una okkar.

Sigríður Túlinius skrif­aði úttekt á Jeremy Corbyn, nýjum leið­toga Verka­manna­flokks­ins, og þeim áskor­unum sem hann stendur frammi fyrir og Borgþór Arn­gríms­son sagði frá því að sitt­hvað sé rotið í ríki Dana. Fréttir af alls kyns klúðri þeirra hafa nán­ast verið dag­legt brauð í dönskum fjöl­miðlum um nokk­urra ára skeið og virð­ast engan enda ætla að taka.

Þá stendur Seðla­banki Banda­ríkj­anna frammi fyrir flóknum aðstæðum á síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi árs­ins. Verða stýri­vextir hækk­aðir eða ekki? Í frétta­skýr­ingu Kjarnans um málið kemur fram að vaxta­hækkun gæti sett stór­þjóðir á hlið­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár