Sitthvað er rotið í ríki Dana

Þótt rúm­lega fjögur hund­ruð ár séu síðan ein af per­sónum Williams Shakespe­are í leik­rit­inu um Hamlet Dana­prins mælti ofan­greind orð hafa danskir fjöl­miðlar oft rifjað þau upp að und­an­förnu. Sú upp­rifjun teng­ist þó hvorki Krón­borg­ar­kast­ala (sögu­sviði leik­rits­ins) né fjöl­skyldu Mar­grétar Þór­hildar. Danskir stjórn­mála­menn eru ástæðan. Fréttir af alls kyns klúðri þeirra hafa nán­ast verið dag­legt brauð í dönskum fjöl­miðlum um nokk­urra ára skeið og virð­ast engan enda ætla að taka.

Danskir fjöl­miðlar eru yfir­leitt mjög aðgangs­harðir og gagn­rýnir í garð stjórn­mála­manna sem þeir tala iðu­lega um sem þjóna fólks­ins. Póli­tíkusarnir eru dregnir yfir nagla­brettið dag eftir dag ef fjöl­miðlar kom­ast á snoðir um að þeir hafi mis­notað sjóði flokks­ins, sveit­ar­fé­lags­ins eða rík­is­ins, í eigin þágu eða vina og fjöl­skyldu. Frá­sagnir af bjó­kollu á barnum og hvort hinn eða þessi stjórn­mála­mað­ur­inn hafi sést í slag­togi með þessum eða hinum að kvöld­lagi er fyrst og fremst umfjöll­un­ar­efni Se og Hör og skyldra blaða, dag­blöðin og frétta­miðl­arnir hafa minni áhuga fyrir slíku.

Lars Lökke er skandalakóngurinn

Núver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dana, Lars Lökke Rasmus­sen hefur margoft hlotið þann vafa­sama heiður að vera útnefndur skandala­kon­ungur Dan­merkur.

Árið 2008 var það dregið fram í dags­ljósið að bók­haldið hjá Lars Lökke Rasmus­sen var los­ara­legt í meira lagi og hann hafði sem framá­maður í sveita­stjórna­málum og síðar sem inn­an­ríkis- og heil­brigð­is­ráð­herra látið ríki og sveit­ar­fé­lög borga fyrir sig reikn­inga á veit­inga­stöðum og hót­elgist­ingu sem ekki tengd­ist störfum hans og enn­fremur sígar­ettur. Upphæðin sem um var að ræða nam um 20 þús­undum danskra króna, um það bil 380 þús­undum íslenskum.

Þetta var hins­vegar bara byrj­unin.

Eru nærbuxur vinnufatnaður?

Þetta var fyr­ir­sögn í Ekstra Bladet í byrjun maí 2014. Þá hafði blaðið kom­ist yfir reikn­inga sem sýndu að Venstre, flokkur Lars Lökke hafði borgað föt fyrir for­mann­inn. Upphæðin á þessum fata­reikn­ingum sam­svar­aði rúmum þremur millj­ónum íslenskra króna. Níu jakka­fata­sett, 28 skyrtur, átta nær­buxur (vand­aðar, sagði blaðið) og fleira. Flokk­ur­inn hafði enn­fremur pungað út stórfé vegna hrein­gern­inga á reyk­mett­uðum hót­el­her­bergjum. Lars Lökke hafði ekki tekið mark á því að reyk­ingar væru bann­aðar á her­bergjum þar sem hann gisti. Það var spaugi­legt að heyra útskýr­ingar nokk­urra for­ystu­manna flokks­ins á þessum málum. Sér­stakur vinnu­fatn­aður, úti­gallar og þess háttar er ekki skatt­skyldur en öðru máli gegnir um annan fatnað. Sören Pind, einum dygg­asta stuðn­ings­manni Lökke og núver­andi dóms­mála­ráð­herra, vafð­ist tunga um tönn þegar hann var spurður að því í beinni sjón­varps­út­send­inguu hvort nær­buxur teld­ust vinnu­fatn­aður. Danska þjóðin fylgd­ist með þessu öllu saman og grínistar kunnu sann­ar­lega að gera sér mat úr þessu fata­kaupa­máli.

Reykingaklefinn

Ekki vakti það síður athygli þegar fram kom að eftir að Lars Lökke varð for­sæt­is­ráð­herra árið 2009 lét hann inn­rétta svo­kall­aðan reyk­inga­klefa í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fyrir jafn­gildi 3.5. millj­óna íslenskra. Sem ráðu­neytið borg­aði. Þegar það mál komst í hámæli ákvað Lars Lökke sjálfur að borga klef­ann en svo var það á end­anum Venstre flokk­ur­inn sem borg­aði. Grín var að því gert þegar einn af for­ystu­mönnum flokks­ins býsnað­ist yfir græðginni í þeim sem seldi umræddan klefa.

Stóra flugmiðamálið

Árið 2013 var mikið fjöl­miðla­fár vegna þess að sam­tök um lofts­lags­mál sem Lars Lökke var í for­mennsku fyrir (kölluð GGGI) höfðu greitt flug­far fyrir dóttur hans frá New York til Rio de Janero en þangað fór hún með föður sínum á ráð­stefnu. Á lengsta frétta­manna­fundi sem hald­inn hefur verið í Danmörku og stóð í nær fjóra klukku­tíma reyndi Lars Lökke að útskýra og afsaka ástæður þess­ara far­miða­kaupa en nið­ur­staða fjöl­miðla eftir þann fund var að menn væru engu nær.

Carl Holst teygir sig í kökudósina

Meðal þeirra sem kjörnir voru á þing fyrir Venstre flokk­inn í kosn­ing­unum sl. sumar var Carl Holst 45 ára Suður-Jóti. Hann hafði þá um sjö ára skeið verið for­maður Sambands sveit­ar­fé­laga í Suður-Danmörku og gegndi því starfi þegar hann var kjör­inn á þing. Carl Holst var í miklu upp­á­haldi hjá Lars Lökke sem skip­aði hann varn­ar­mála­ráð­herra og jafn­framt sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­landa. En ráð­herra­fer­ill­inn fór ekki vel af stað og var skamm­vinnur. Strax eftir kosn­ingar kom fram að Carl Holst ætl­aði sér að halda launum sínum sem for­maður sveita­stjórna­sam­bands­ins í ein­hverja mán­uði eftir að hann varð ráð­herra, sagði það ein­fald­lega rétt sinn. Vegna þrýst­ings neydd­ist hann þó til að afsala sér þessum launum. Í sept­em­ber vakn­aði svo grunur um að aðstoð­ar­maður Carls Holst, laun­aður af sveit­ar­fé­lög­unum hefði aðstoðað hann í kosn­inga­bar­átt­unni sl. vor. Slíkt er lög­brot. Samband sveit­ar­fé­laga hafði enn­fremur borgað ensku­kennslu og ýmis­legt fleira fyrir for­mann­inn. Carl Holst flækti sjálfan sig í alls kyns mót­sögnum og því sem frétta­menn hafa kallað lyga­þvælu. Borgari á Suður-Jótlandi kærði svo Carl Holst til lög­reglu, fyrir að ”teygja sig í köku­dós­ina” og þá sagði hann af sér sem ráð­herra. Fyrir skömmu óskaði svo stjórn sam­bands sveit­ar­fé­lag­anna eftir lög­reglu­rann­sókn vegna starfa Carls Holst. Nokkrum dögum eftir að sú beiðni kom fram óskaði Carl Holst eftir leyfi frá þing­störfum. Margir af þing­mönnum Venstre eru sagðir anda léttar þótt þeir segi slíkt ekki opin­ber­lega.

Morten Messerschmidt og skútusiglingin

Um síð­ast­liðin mán­aða­mót birtu fjöl­margir danskir fjöl­miðlar fréttir af því að Evr­ópu­sam­bandið hefði krafið Danska þjóð­ar­flokk­inn um 120 þús­und krónur (tæpar 2. 4 millj­ónir íslenskar). Ástæðan var að þing­menn Danska þjóð­ar­flokks­ins höfðu árið 2013, skömmu fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ingar, siglt með­fram ströndum Dan­merkur á skútu og komið víða við. Til þess­arar sigl­ingar hafði flokk­ur­inn fengið styrk frá Evr­ópu­sam­band­inu, gegnum sér­stakan sjóð. Ekki er heim­ilt að nota slíka pen­inga í þágu ein­stakra flokka en það var álit Evr­ópu­sam­bands­ins að svo hefði verið gert í þessu til­viki. Morten Messerschmidt, sem er full­trúi Danska Þjóð­ar­flokks­ins á Evr­ópu­þing­inu, og helsta ungstirni flokks­ins, var þessu algjör­lega ósam­mála. Var dag eftir dag í fjöl­miðlum og fór mik­inn. Sagðist ekki hafa heim­ild til að birta reikn­inga sjóðs­ins sem sigl­ing­ingin var greidd úr. Sagði frétta­menn ekk­ert vita um hvað þeir væru að tala og annað í þeim dúr. Sigl­ingin hefði verið í þágu ESB. Hann myndi útskýra málið fyrir Evr­ópu­sam­band­inu og menn skyldu bara bíða og sjá. Eftir að málið hafði verið skoðað aftur hjá Evr­óu­sam­band­inu var nið­ur­staðan, sem til­kynnt var fyrir nokkrum dögum sú sama og í upp­hafi. Hann átti að borga til baka.

Er doktorsritgerðin fengin að láni?

Nýjasta vand­ræða­málið tengt stjórn­mála­mönn­unum snýst um dokt­ors­rit­gerð mennt­unar-og rann­sókna­ráð­herr­ans Esben Lunde Larsen. Ráðu­neyti hans fer með mál­efni mennt­unar sem tekur við að loknu stúd­ents- eða fram­halds­skóla­prófi.

Esben Lunde Larsen (fæddur 1978) lauk kandi­dats­prófi í guð­fræði frá Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla árið 2008. Hann var kjör­inn á þing fyrir Venstre árið 2011, end­ur­kjör­inn í kosn­ing­unum sl. sumar og tók í kjöl­farið sæti í rík­is­stjórn. Hann varði dokt­ors­rit­gerð sína, um Grund­tvig, árið 2012, en kandi­dats­rit­gerð hans hafði líka fjallað um Grund­tvig. Fyrir stuttu komu fram í einu dönsku blað­anna efa­semdir varð­andi menntun ráð­herr­ans. Í dokt­ors­rit­gerð­inni notar hann meðal ann­ars sem heim­ildir sína eigin kandi­dats­rit­gerð. Þegar Danska sjón­varpið, sem fjallað hefur ítar­lega um þetta mál keyrði dokt­ors­verk­efnið gegnum tölvu­for­ritið PlagScan sem þýskir háskólar nota iðu­lega kom í ljós að víða í rit­gerð­inni birt­ist orða­lag sem er nákvæm­lega eins og í mörgum öðrum gögnum. Ráð­herr­ann hefur nú beðið Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla um að rann­saka rit­gerð­ina og ganga úr skugga um að hún stand­ist allar kröfur sem gerðar eru til slíkra fræði­verk­efna. Þingmenn sem Danska sjón­varpið ræddi við vegna máls­ins voru gætnir í orða­vali og vildu bíða nið­ur­stöðu rann­sóknar Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla. Sumir þeirra sögðu að hver sem útkoman yrði væri þetta allt hálf vand­ræða­legt fyrir ráð­herr­ann. Nokkrir fræði­menn sem Danska sjón­varpið bar málið undir sögðu að ýmis­legt varð­andi vinnu­brögðin við rit­gerð­ar­skrifin vekti grun­semdir um að reglum hefði ekki verið fylgt. Eitt dönsku dag­blað­anna vitn­aði í þessi ummæli og sagði þau afar kurt­eisleg. Lars Lökke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra hefur ekk­ert vilja segja um málið annað en nú sé að bíða og sjá. Espen Lunde Larsen væri dugn­að­ar­forkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár