Viðspyrnan handan við hornið - Vaxtahækkun nú gæti sett stórþjóðir á hliðina

Seðla­banki Banda­ríkj­anna stendur frammi fyrir flóknum aðstæðum á síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi árs­ins. Verða stýri­vextir hækk­aðir eða ekki?

Í rúm­lega sjö ár hefur Seðla­banki Banda­ríkj­anna haldið stýri­vöxtum í 0,25 pró­sentum og líður senn að því að hann hefji stýri­hækk­un­ar­ferli, sam­kvæmt því sem til­kynnt hefur verið um af hálfu bank­ans, meðal ann­ars á síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­degi, þar sem vöxtum var enn einu sinni haldið óbreyttum.

Frammi fyrir efna­hags­nefnd Banda­ríkja­þings, 4. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, sagði Janet Yellen, for­maður stjórnar Seðla­banka Banda­ríkj­anna, að hugs­an­lega væri góður tími til að hefja vaxta­hækk­un­ar­ferlið í des­em­ber. Ekkert var þó full­yrt, enda um við­kvæmar mark­aðs­upp­lýs­ingar að ræða, ekki síst fyrir skulda­bréfa- og gjald­eyr­is­markað.

Merki um viðspyrnu

Sá sem nú er að stýra vinnu innan Seðla­banka Banda­ríkj­anna, þar sem vaxta­hækk­un­ar­ferlið er und­ir­búið og fjár­fest­inga­stefna sömu­leiðis, er 55 ára gam­all Breti, Simon Potter að nafni, sem þó hefur átt sinn feril að lang­mestu leyti í Banda­ríkj­unum.

Hann þykir afburða hag­fræð­ingur, og leiðir mark­aðsvið­skipta­deild Seðla­bank­ans í New York, sem inni­heldur 500 sér­fræð­inga í miðlun og mark­aðsvið­skiptum, að því er fram kom í grein um hann í Wall Street Journal 23. nóv­em­ber síða­slið­inn.

Flestir fjár­festar hér í Banda­ríkj­unum, reikna með því að Seðla­bank­inn hækki stýri­vexti upp í 0,5 pró­sent, eða um 0,25 pró­sentu­stig, á vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi sínum, dag­ana 15. til 16. des­em­ber. Flestar hag­tölur í Banda­ríkj­unum þykja gefa til­efni til þess að hækk­un­ar­ferlið hefj­ist nú, en atvinnu­leysi er komið niður í fimm pró­sent, eftir að hafa farið í rúm­lega 10 pró­sent árið 2010, og hag­vöxtur hefur verið við­un­andi, á bil­inu 1,5 til 2,5 pró­sent, á und­an­förnum mán­uðum. En staðan er flókn­ari þegar kast­ljós­inu er beint út fyrir landa­mæri Banda­ríkj­anna.

Asía og Suður-Ameríka eru titrandi

Einn virt­asti þjóð­hag­fræð­ingur heims, Argent­ínu­mað­ur­inn Dr. Guill­ermo Calvo, var einn þeirra sem flutti erindi á fundi sem Columbia Háskóli í New York stóð fyrir 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, þar sem sjónum var beint að stöðu mála í Asíu og Suður-Ameríku, meðal ann­ars í sam­hengi við vaxta­hækk­un­ar­ferli Seðla­banka Banda­ríkj­anna.

Í máli hans, og ann­arra sem tóku til máls á fund­inum, kom fram að hækkun vaxta gæti komið sér illa fyrir ríki sem nú væru að ganga í gegnum mikla erf­ið­leika vegna lágs olíu­verðs og minnk­andi eft­ir­spurnar í Kína. Olíuverð hefur fallið um meira en 60 pró­sent á fjórtán mán­uðum, með til­heyr­andi vanda fyrir olíu­fram­leiðslu­ríki og önnur sem ættu mikla hags­muni undir þjónstu og iðn­aði sem tengd­ist olíu­geir­anum með ein­hverjum hætti.

Á fund­inum kom meðal ann­ars fram að ekki væri úti­lokað að Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn kæmi brátt til Brasilíu, stærsta lands Suður-Ameríku ef vaxta­hækk­unin - sem myndi leiða til hærri fjár­magns­kostn­aðar og þar með þreng­inga fyrir ríki með mikla hags­muni í Banda­ríkja­dölum - kæmi á slæmum tíma. Brasilía, sem er stór hrá­vöru­út­flytj­andi, ekki síst til Kína, er nú að ganga í gegnum mikla nið­ur­sveiflu eftir margra ára tíma­bil hag­vaxtar og upp­gang. Skipbrot hag­kerf­is­ins, í þessu 200 millj­óna íbúa landi, væri ekki úti­lokað.

Þetta sýndi þá miklu hags­muni sem væru undir í alþjóða­bú­skapnum, þegar Seðla­banki Banda­ríkj­anna myndi taka ákvörðun um að hækka vexti, eftir meira að sjö ára tíma­bil þar sem örv­un­ar­að­gerðir hafi ein­kennt þróun mála á mörk­uðum. Alvara lífs­ins tekur við þegar því tíma­bili lýkur, og hag­kerfi heims­ins eru í mis­jafnri stöðu til þess að takast á við hærri vexti, en Banda­ríkja­dalur er stærsta gjald­eyr­is­forða­mynt heims­ins og þar með sú útbreiddasta í heim­inum.

Stríðsátök og pressa

Stríðs­á­tök í Írak, Afganistan og Sýrlandi geta líka haft áhrif á ákvörðun Seðla­bank­ans nú, að því er fram hefur komið í máli sér­fræð­inga und­an­farin miss­eri. Vaxandi ólga í Evrópu og hryðju­verkaógn gæti frestað hækk­un­ar­ferli. Þá hefur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn talað fyrir því að Seðla­banki Banda­ríkj­anna fari sér hægt í því að hækka vexti, og horfi til þró­unar á heims­mörk­uðum.

Þegar vaxta­hækk­un­ar­ferlið hefst þá lýkur einu lengsta örv­un­ar­að­gerða­tíma­bili sem Seðla­banki Banda­ríkj­anna hefur nokkru sinni staðið fyrir. Ísland er örríki í sam­an­burði við flest lönd heims­ins, en þróun mála á alþjóða­mörk­uðum er oft fljót að hafa áhrif, enda útflutn­ingur á vöru á þjón­ustu, til hinna ýmsu landa, hryggjar­stykkið í hag­kerf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár