Loðnukvótinn sextánfaldaður

Áætlað heild­ar­virði loðnu­afl­ans í ár er um 17 millj­arðar króna. Ekki verður hægt að veiða hann fyrr en að sjó­manna­verk­fallið verður leyst.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur á grund­velli til­lagna Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar ákveðið að auka heild­ar­afla íslenskra skipa á loðnu í alls 196.075 þús­und tonn á þess­ari ver­tíð. Áætlað heild­ar­verð­mæti loðnu­afl­ans er um 17 millj­arðar króna. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Fyrr í vetur hafði íslenskum skipum verið úthlutað rúmum 12 þús­und tonnum þannig að aukn­ingin er rúm­lega sext­án­föld.

Ekki verður hægt að veiða loðn­una fyrr en kjara­deila sjó­manna og útgerða verður leyst. Sjómenn hafa nú verið í verk­falli í tvo mán­uði. Á föstu­dag var birt mat á þjóð­hags­legum kostn­aði verk­falls sjó­manna, sem unnin var fyrir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyti. Þar kom fram að gögn bendi til þess að fram­leiðsla og útflutn­ingur á ferskum bol­fiskaf­urðum hafi dreg­ist saman um 40 til 55 pró­sent á þeim tíma sem verk­fall sjó­manna hefur stað­ið, fram til dags­ins í dag. Útflutn­ings­tekjur hafa minnkað um 3,5 til 5 millj­arða króna á þessum tíma, og að nokkru leyti er þetta tap sem verður ekki bætt með nýt­ingu kvóta seinna. Í fersk­fisk­fram­leiðslu eru mestar áhyggjur af mörk­uðum fyrir íslenskar afurð­ir, og hætt­unni á því að missa hluta mark­að­ar­ins ann­að.

Í mat­inu var sér­stak­lega tekið fram að ef verk­fallið myndi standa fram á loðnu­ver­tíð­ina og veiðar falla niður mun þjóð­ar­búið verða af tekjum sem lík­lega verða taldar í þús­undum millj­óna króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár