Kjötbollurnar unnu á tæknilegu rothöggi

Fyrir nokkru fékk danska rík­is­stjórnin snjalla hug­mynd sem hún vildi hrinda í fram­kvæmd. Gallinn var hins vegar sá að fáum öðrum þótti hug­myndin góð.

Kjarn­inn end­­­­­­­ur­birtir nú valda pistla Borg­þórs Arn­gríms­­­­­­­sonar sem sam­hliða eru gefnir út sem hlað­varps­þætt­­­­­­­ir. Frétta­­­­­­­skýr­ingar Borg­þórs njóta mik­illa vin­­­­­­­sælda og sú sem er end­­­­­­­ur­birt hér að neðan var upp­­­­­­­haf­­­­­­­lega birt þann 14. nóv­em­ber 2020.

Hlýnun and­rúms­lofts­ins og þau gríð­ar­legu áhrif sem henni fylgja er ein­hver mesta ógn sem að mann­kyn­inu steðjar og um fátt hefur verið meira fjallað und­an­farin ár. Kór­ónu­veiran, Covid 19, hefur reyndar mán­uðum saman „stolið sen­unni“ ef svo mætti segja en hún mun vænt­an­lega hverfa. Það er gerir lofts­lags­váin hins vegar ekki og flestum löngu orðið ljóst að hún er ekki tíma­bundin bóla.

Þótt flestum sé vand­inn ljós gengur, að minnsta kosti enn sem komið er, mis­vel að grípa til aðgerða og finna ráð til að minnka útblástur og mengun. Umferðin, á sjó, landi og í lofti, og allt sem henni fylgir veldur mik­illi mengun og er meðal helstu meng­un­ar­valda. Raf­knúnum far­ar­tækjum, sem menga minna en bensín og dísil­vélar, fjölgar nú ört og útlit fyrir að notkun jarð­efna­elds­neytis muni minnka veru­lega á næstu árum.

Land­bún­aður er mik­ill meng­un­ar­valdur. Sér­fræð­ingar Matvæla- og land­bún­að­ar­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna hafa reiknað út að fram­leiðsla á kjöti og dýra­af­urðum valdi tæpum 15% af allri mann­gerðri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Þar vegur naut­gripa­eldi þyngst.

Breytt mataræði

Á allra síð­ustu árum hafa mat­ar­venjur Vest­ur­landa­búa tekið miklum breyt­ingum. Það á jafnt við hér á Íslandi sem í öðrum löndum. Úrval af fersku græn­meti hefur marg­fald­ast og alls kyns til­búnum græn­met­is­réttum fjölgar nán­ast frá degi til dags í kæli­borðum versl­ana. Skýr­ing­arnar á þessum breyttu neyslu­venjum eru ugg­laust margar en ein þeirra teng­ist „lofts­lags­um­ræð­unni“.

Í langri umfjöllun, og könnun, breska dag­blaðs­ins Guardian um þessi mál kom fram að margir telja einkum tvennt valda því að æ fleiri kjósi að skipta kjöti út fyrir græn­meti nokkra daga í viku. Annars vegar að það sé holl­ara fyrir okkur mann­fólkið að draga úr kjöt­áti og hins vegar sé það holl­ara fyrir heim­inn sem við búum í, bæði jörð og loft. Fleira spili svo þarna inn í, til dæmis tíska, þrýst­ingur frá dýra­vernd­un­ar­sam­tökum og fleira.

Hugmyndin um kjötlausu dagana

Það er stundum sagt um frændur okkar á Norð­ur­löndum að þar sé ekk­ert svo lít­il­fjör­legt að stjórn­völd sjái ekki ástæðu til að skipta sér af og jafn­vel setja um það reglur. Þar séu reglur um allt og borg­ar­arnir aldrei á gráu svæði. Þeir séu ann­að­hvort að fylgja reglum eða brjóta þær.

Þetta er vita­skuld orðum aukið og oft­ast sagt í gamni.

Nýlega fékk ráð­herra (ekki vitað hver) í dönsku rík­is­stjórn­inni hug­mynd, sem öðrum í stjórn­inni þótti góð. Þessi góða hug­mynd var að í öllum mötu­neytum á vegum hins opin­bera skyldu vera tveir kjöt­lausir dagar í hverri viku. Með þessu legðu mötu­neyti hins opin­bera sitt lóð á lofts­lags­vog­ar­skál­arnar.

Nicolai Wammen fjár­mála­ráð­herra kynnti hug­mynd­ina á frétta­manna­fundi fyrir hálfum mán­uði. Ráð­herr­ann sagði að mötu­neyti rík­is­ins væru sann­kall­aðir „stór­kúnnar“ í mat­ar­inn­kaupum. Tveir kjöt­lausir dagar í hverri viku, sagði ráð­herr­ann, tákn­rænt og jákvætt skref. Áður en lengra yrði haldið myndi ráðu­neytið kynna for­stöðu­mönnum stofn­ana rík­is­ins og yfir­mönnum mötu­neyta hug­mynd­ina.

Ráð­herr­ann kvaðst þess full­viss að þessi hug­mynd rík­is­stjórn­ar­innar myndi mæl­ast vel fyrir. Frétta­menn lyftu brúnum, ekki alveg jafn vissir.

Hugmyndin lifði í fjóra daga

Þótt Nicolai Wammen fjár­mála­ráð­herra teldi full­víst að hug­myndin um kjöt­lausu dag­ana í mötu­neytum rík­is­ins myndi mæl­ast vel fyrir varð sú ekki raunin. Sumir sem rætt var við í fjöl­miðlum í kjöl­far frétta­manna­fundar ráð­herr­ans urðu undr­andi þegar þeir voru spurðir álits á hug­mynd­inni. Og hristu svo höf­uðið. „Kjöt­lausir dagar í mötu­neytum, aldeilis frá­leitt“ voru algeng svör.

For­stöðu­menn mötu­neyta rík­is­ins lýstu sig algjör­lega and­snúna „rík­is­til­skipun um mat­seðla“ eins og einn þeirra komst að orði.

Fjórum dögum eftir fyrr­nefndan frétta­manna­fund til­kynnti fjár­mála­ráðu­neytið að hug­myndin um kjöt­lausu dag­ana væri „hér með dregin til baka“ eins og sagði í til­kynn­ing­unni. Þar sagði jafn­framt að mötu­neytin hefðu hér eftir sem hingað til frjálsar hendur um hvað borið væri á borð. Dag­blaðið Politi­ken sagði í fyr­ir­sögn að „kjöt­boll­urnar hefðu sigrað rauðrófu­buffin á tækni­legu rot­höggi“.

Risakjötbollan í Randers

Í tengslum við kjöt­leys­is­hug­mynd­ina má rifja upp „kjöt­bollu­málið“ í Randers á Jótlandi árið 2016, en það vakti mikla athygli. Þar var nið­ur­staðan með öðrum hætti. Forsaga þess máls var sú að í mötu­neytum grunn­skóla í Randers hafði verið ákveðið að hætt yrði að bjóða upp á rétti úr svína­kjöti. Sú ákvörðun var studd þeim rökum að múslímar megi, trúar sinnar vegna, ekki leggja sér svína­kjöt til munns.

Þessi ákvörðun mætti and­stöðu. Eftir miklar umræður í bæj­ar­stjórn Randers var ákveðið að mötu­neytum í grunn- og leik­skólum sveit­ar­fé­lags­ins yrði skylt að bjóða upp á svína­kjöt í skóla­mötu­neytum. Bæj­ar­full­trúar Danska þjóð­ar­flokks­ins í Randers fögn­uðu þess­ari nið­ur­stöðu og undir það tóku full­trúar flokks­ins á danska þing­inu, Fol­ket­inget. Sögðu Randers góða fyr­ir­mynd.

Óþekktur lista­maður gerði sér mat úr „kjöt­bollu­mál­inu“. Bjó til stærðar kjöt­boll­u­styttu og not­aði meðal ann­ars til verks­ins gamla sæng. Verkið vakti mikla athygli þar sem því var komið fyrir við hring­torg í bænum í febr­úar árið 2016. Haft var eftir lista­mann­inum, sem eng­inn veit enn hver er, að verkið yrði ekki þarna til fram­búðar „þá þyrfti var­an­legra efni en gamla sæng“ var haft eftir honum. Verkið stóð á hring­torg­inu um þriggja mán­aða skeið en hvarf þá jafn skyndi­lega og það hafði birst. Margir íbúa Randers lýstu von­brigðum með að verkið væri horfið og kváð­ust vona að það yrði sett upp aftur og þá í var­an­legra efni en dún­heldu lérefti. Það hefur ekki enn verið gert hvað sem síðar verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár