Líklegt að öruggur meirihluti sé fyrir því að afnema einkaleyfi ÁTVR

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, er einn þeirra sem stendur að framlagningu frumvarpsins.
Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar, er einn þeirra sem stendur að fram­lagn­ingu frum­varps­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram nýtt frum­varp um að leyfa sölu áfengis í versl­unum. Frum­varpið felur í sér að einka­leyfi ÁTVR á sölu áfengið verði afnumið og að sala á því verði heim­iluð í sér­versl­unum, í sér­rýmum innan versl­anna eða yfir búð­ar­borð. Þetta er stað­festir Pawel Bartoszek, einn flutn­ings­manna frum­varps­ins, við Kjarnann.

Þing­menn­irnir sem leggja frum­varpið fram koma úr Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn, Bjartri fram­tíð og Pírötum. Þeir eru Teitur Björn Ein­ars­son, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Vil­hjálmur Árnason og Hildur Sverr­is­dóttir úr Sjálf­stæð­is­flokki, Pawel Bartoszek úr Viðreisn, Nichole Leigh Mosty úr Bjartri fram­tíð og Pírat­arnir Jón Þór Ólafsson, Ásta Guðrún Helga­dóttir og Viktor Orri Val­garðs­son.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans liggur ekki fyrir stuðn­ingur við frum­varpið hjá öllum þing­mönnum flokk­anna en Pawel seg­ist telja að það sé nokkuð öruggur meiri­hluti á þing­inu fyrir mál­inu. Alls eru þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Pírata 42 tals­ins. Því mættu tíu þing­menn flokk­anna vera á móti frum­varp­inu, það yrði samt sem áður með meiri­hluta.

Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, stóð að fram­lagn­ingu sam­bæri­legs frum­varps í tvígang á síð­asta kjör­tíma­bili. Í síð­ara skiptið voru flutn­ings­menn frum­varps­ins 16 tals­ins. Þeir komu þá úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Pírata. Af þeim eru tíu enn á þingi og fjórir ráð­herrar í nýrri rík­is­stjórn. Það eru þau Sigríður Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra, Jón Gunn­ars­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra og Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra.

ÁTVR rekur 50 verslanir

Íslenska ríkið hefur rekið einka­sölu áfengis hér­lendis frá­ ár­inu 1922, en þá hét fyr­ir­tækið ÁVR. Tóbaks­einka­sala rík­is­ins tók til starfa 1932 og fyr­ir­tækin voru sam­einuð árið 1961 undir nafn­inu Áfeng­is- og ­tó­baks­verslun rík­is­ins (ÁTVR). 

ÁTVR rekur 50 versl­anir víðs­vegar um landið þar sem áfengi er selt, þar af 16 stór­versl­anir. Tekjur ÁTVR á árinu 2015 voru 29,4 millj­arðar króna. Þar af komu 19,8 millj­arðar króna í kass­ann vegna sölu áfeng­is en 9,5 millj­arðar króna vegna tóbaks­sölu.

Alþingi tekur ákvörðun um hvert áfeng­is- og tóbaksgöld eigi að vera. Áfeng­is­gjald sem ÁTVR greiddi til rík­is­sjóðs 2015 var 9.230 millj­ónir króna, eða 47 pró­sent af tekjum ÁTVR vegna sölu áfeng­is.

Vill ekki að Hagar kom­ist í yfir­burð­ar­stöðu

Ívar J. Arndal, for­stjóri ÁTVR, hefur ítrekað gert mögu­legt afnám einka­leyfis á sölu áfengis að umtals­efni í inn­gangi árs­skýrslna fyr­ir­tæk­is­ins. Í árs­skýrslu árs­ins 2015 sagði hann að fórn­ar­kostn­aður við að gefa sölu áfengis frjálsa yrði hár.

„Málið er einmitt að einka­að­ilar eru ótrú­lega góðir að selja. Þeir vilja alltaf selja meira og meira, auka mark­aðs­hlut­deild­ina og auð­vitað skila hagn­aði í vasa eig­end­anna. Það er kjarni frjáls mark­aðar og sam­keppn­is­rekstr­ar. Þar eru einka­að­ilar best­ir. Þess vegna eru þeir ekki heppi­legir þegar mark­miðið er ekki að auka söl­una eða hagn­ast á henni heldur að þjón­usta almenn­ing við að kaupa og neyta vöru sem getur verið mjög skað­leg heilsu manna. Þá er best að hafa hlut­lausan aðila sem hefur engan per­sónu­legan ávinn­ing af söl­unni. Ekki þarf að leita lengra en til Dan­merkur til þess að átta sig á þessu. Þar sjá einka­að­ilar um áfeng­is­söl­una og hirða ágóð­ann. Neysla áfengis á mann í Dan­mörku er miklu meiri en á Íslandi og kostn­aður danska sam­fé­lags­ins af mis­notkun áfengis gríð­ar­leg­ur. Skatt­borg­urum er sendur reikn­ing­ur­inn.“

Ívar beindi síðan spjótum sínum að Hög­um, stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki á Íslandi sem rekur meðal ann­ars Bónus og Hag­kaup. Hagar hafa ítrekað lýst því yfir að fyr­ir­tækið vilji að áfeng­is­sala rík­is­ins verði lögð nið­ur. Ívar hefur tölu­verðar áhyggjur af mark­aðs­hlut­deild Haga. „Nú þegar er keðjan með ríf­lega 50% af mat­vöru­mark­að­inum á sinni hendi. Með helm­ing af áfeng­is­söl­unni myndi veltan hjá mat­vöruris­anum aukast um rúm­lega 12 þús­und millj­ónir á ári. Nú þegar ber hann ægis­hjálm yfir allri mat­vöru­verslun í land­inu. Með áfeng­is­söl­unni væri mat­vöruris­inn kom­inn í algera yfir­burða­stöðu. Varla er það til hags­bóta fyrir neyt­end­ur.“

Fréttin var upp­færð 15:45 eftir að frum­varpið var birt á vef Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár