Þögn Bjarna hans helsta pólitíska brella?

Nú er beðið eftir því að Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra stígi fram og kynni hvað hann hafi í hyggju varð­andi stjórn­ar­sam­starfið. Þetta er ekki fyrsta sinn sem beðið er eftir Bjarna.

Bjarni Benediktsson íhugar nú stöðu sína.
Bjarni Bene­dikts­son íhugar nú stöðu sína. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, íhugar næstu skref sín í kjöl­far þess að Björt fram­tíð ákvað að segja sig frá þriggja flokka sam­steypu­stjórn hans.

Fjöl­miðlar sátu um fyrir Bjarna fyrir framan Valhöll í dag þar sem hann gekk á fund þing­flokks síns. Hann ætlar að ræða við fjöl­miðla um málið síðar í dag.

[links]Ekkert hefur heyrst frá Bjarna síðan upp­lýst var að faðir hans hefði verið einn með­mæl­anda fyrir því að Hjalti Sigurjón Hauksson, dæmdur barn­a­níð­ingur, fengi upp­reist æru. Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra við­ur­kenndi að hafa upp­lýst Bjarna um aðkomu föður hans í júlí.

Nú er beðið eftir því að Bjarni Bene­dikts­son stígi fram og tjái sig um atburði næt­ur­innar. Óvíst er hver póli­tísk fram­tíð Bjarna er eftir þessa atburða­rás, eða hver afstaða hans er til nýrra kosn­inga.

Ekki þögull í fyrsta sinn

Bjarni Bene­dikts­son var kall­aður „Teflon-Bjarni“ í morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun af Andrési Jónssyni, almanna­tengli og ráð­gjafa. Bjarni þykir einkar fær í því að koma sér undan í erf­iðum málum enda hefur hann sloppið til­tölu­lega vel í sam­an­burði við aðra stjórn­mála­leið­toga.

[adspot]

Bjarni hefur á margan hátt birst kjós­endum sem stönd­ugur leið­togi stærsta flokks á Íslandi. Hann hefur staðið fast með sínum málum í hinum póli­tíska slag en látið glitta í til­finn­ingar þegar þess hefur verið þörf. Án þess að draga það í efa að til­finn­ingar hans hafi verið raun­veru­legar, þá var það gríð­ar­lega mik­il­vægt póli­tískt séð þegar hann grét í stjórn­mála­leið­toga­við­tali í Sjón­varp­inu í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2013.

Það er þess vegna til­efni til þess að rifja upp póli­tíska fimi Bjarna í þeim málum þar sem mest hefur legið á.

Panamaskjölin

Bjarni Bene­dikts­son var fjár­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar á síð­asta kjör­tíma­bili. Í apríl 2016 voru fluttar fréttir úr Panama­skjöl­unum svoköll­uðu þar sem hul­unni var svipt af reikn­ingum íslenskra auð­jöfra í skatta­skjólum. Bjarni Bene­dikts­son var þar nefndur eins og Sig­mundur Davíð.

Á meðan Sig­mundur Davíð stóð í ströngu hér á Íslandi, og sagði síðan af sér, missti Bjarni af flug­inu sínu úr fjöl­skyldu­fríi á Flórída. Ekkert heyr­ist í honum í fjöl­miðlum fyrr en hann var kom­inn til lands­ins og á fund for­seta Íslands á Bessa­stöðum. Þá hafði Bjarna tek­ist að afla sér nógu miklum stuðn­ingi bak við tjöldin til þess að halda velli sem mik­il­væg stoð í ann­ars flóknu stjórn­ar­sam­starfi við Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Óheppilegar skýrslur undir stól

Það var umdeilt þegar skýrslur um áhrif Leið­rétt­ing­ar­innar svoköll­uðu voru ekki gefnar út af fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu í aðdrag­anda snemm­búnu kosn­ing­anna í fyrra. Þá höfðu fjöl­miðlar gengið á eftir því að fá þessar skýrslur, sem sann­ar­lega höfðu verið unnar.

Nið­ur­stöður skýrsln­anna voru ekk­ert sér­stak­lega kosn­inga­vænar. Tekju­háir og eigna­miklir fengu lang­mest í sinn hlut í Leið­rétt­ing­unni.

Vinnu við skýrslu um nið­ur­færslu verð­tryggðra fast­eigna­lána – hina svoköll­uðu Leið­rétt­ingu – lauk um miðjan októ­ber 2016, áður en síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar fóru fram. Í jan­úar 2017 var fyrstu efn­is­grein skýrsl­unnar bætt við hana og hún í kjöl­farið birt á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins þann 18. jan­úar, þremur mán­uðum eftir að vinnslu hennar lauk og nýr ráð­herra fjár­mála- og efna­hags hafði tekið við.

Vafningur og Borgun

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra var lengi virkur í við­skipta­líf­inu á Íslandi. Hann sagði skilið við það í lok árs 2008 til að ein­beita sér að því að vera stjórn­mála­mað­ur, og ekk­ert við það að athuga.

Tengsl ­fjöl­skyldu hans við atvik í við­skipta­líf­inu sem þykja orka tví­mælis eru hins vegar sífellt að vefj­ast fyrir Bjarna á stjórn­mála­ferl­in­um. Fyrst var það Vafn­ings­málið, þar sem Bjarni skrif­aði undir veð­skjöl fyrir hönd ætt­ingja sinna og þurfti fyrir vikið að bera vitni í saka­máli. Næst kom Borg­un­ar-­málið svo­kall­aða. Þar seldi Lands­bank­inn, sem er í eigu rík­is­ins, hlut sinn í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun bak­við luktar dyr. Í kaup­enda­hópnum voru ætt­ingjar Bjarna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár