Framleiðni eykst og störfum fækkar

Um 83 pró­sent starfa í sjáv­ar­út­vegi voru á lands­byggð­inni í fyrra sam­kvæmt nýrri skýrslu sjáv­ar­út­veg­steymis Íslands­banka.

Fram­leiðni vinnu­afls í sjáv­ar­út­vegi óx mikið á milli áranna 2005 og 2008 þegar fram­leiðslu­virði á hvert starf jókst um 16,1 milljón króna eða um 59 pró­sent. Jókst fram­leiðslu­virði grein­ar­innar um 17 pró­sent á þessum tíma á meðan starfs­fólki fækk­aði um 26,5 pró­sent.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sjáv­ar­út­veg­steymis Íslands­banka. Í skýrsl­unni kemur meðal ann­ars fram að heild­ar­hagn­aður í sjáv­ar­út­vegi í fyrra hafi numið 46 millj­örðum króna og hækk­aðum 1,6 millj­arða frá fyrra ári. Heild­ar­tekjur fyr­ir­tækja í grein­inni námu 275 millj­örðum króna og juk­ust milli ára.

Frá árinu 2008 til árs­ins 2013 jókst fram­leiðslu­virði á hvert starf í grein­inni í heild um 6,3 pró­sent sem jafn­gildir 1,2 pró­sent af árlegri fram­leiðni­aukn­ingu. „Fram­leiðni vinnu­afls hefur auk­ist með meiri sjálf­virkni sem fylgir tækni­fram­þróun við veiðar og vinnslu sjáv­ar­af­urða. Á árinu 2014 skil­aði hvert starf tæp­lega 39 m.kr. og lækk­aði fram­leiðslu­virði á hvern starfs­mann um 15,7 pró­sent frá árinu 2013,“ segir í skýrsl­unni.

Á árinu 2015 störf­uðu um 7.800 manns í sjáv­ar­út­vegi sem nemur um 4,2 pró­sent af vinnu­afli lands­ins og hefur þetta hlut­fall ekki verið lægra frá árinu 2008 þegar það náði lág­marki og var þá um fjögur pró­sent. Störfum í sjáv­ar­út­vegi fækk­aði um 1.300 frá árinu 2014 og þar af voru 1.000 störf í fisk­iðn­aði og 300 í fisk­veiðum. Hefur störfum í grein­inni fækkað um 45 pró­sent frá árinu á síð­ustu nítján árum, eða um 6.400. „Frá þessum tíma hefur konum í grein­inni fækkað hlut­falls­lega meira en körlum, eða um 60 pró­sent, og er 21 pró­sentu­stigs munur á breyt­ingu á fjölda starfa eftir kyni. „Á árinu 2015 voru 1.800 konur starf­andi í sjáv­ar­út­vegi eða um 23% af vinnu­afli grein­ar­innar. Flestar konur í grein­inni starfa í fisk­iðn­aði eða um 1.500 (83%) og aðeins 300 þeirra starfa í fisk­veiðum. Meiri­hluti karla starfar hins­vegar við fisk­veiðar eða 3.700 (63%). Um 83% af störfum í sjáv­ar­út­vegi á árinu 2015 voru á lands­byggð­inni eða um 6.400 störf. Frá árinu 1997 hefur hlut­falls­leg fækkun starfa verið mun jafn­ari eftir búsetu en eftir kyni en hlut­falls­lega fleiri störfum hefur fækkað á lands­byggð­inni (46%) en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (43%),“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár