Alríkislögreglan leitaði á heimili blaðamanns

Stríðs­mála­ráðu­neyti Trumps fékk dóms­mála­ráðu­neytið til að gera hús­leit á heim­ili blaða­manns Washington Post.

Beittu lögreglu vegna umfjöllunar
Beittu lög­reglu vegna umfjöll­unar Pam Bondi, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, með for­set­anum Donald Trump. Mynd: AFP

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan (FBI) gerði hús­leit á heim­ili blaða­manns Washington Post í dag, að sögn dóms­mála­ráð­herra, sem bætti við að yfir­völd væru að rann­saka mein­tan leka úr Pentagon til blaða­manns­ins, sem hefur skrifað um nið­ur­skurð á alrík­is­störfum.

„Að beiðni stríðs­mála­ráðu­neyt­is­ins fram­kvæmdu dóms­mála­ráðu­neytið og FBI hús­leit á heim­ili blaða­manns Washington Post sem var að afla sér og greina frá leyni­legum og ólög­lega leknum upp­lýs­ingum frá verk­taka Pentagon,“ sagði Pam Bondi dóms­mála­ráð­herra.

Washington Post sagði það „mjög óvenju­legt og harka­legt af hálfu lög­reglu­yf­ir­valda að gera hús­leit á heim­ili blaða­manns“ og að alrík­is­full­trúar hefðu leitað á heim­ili hennar og í tækjum hennar og lagt hald á síma hennar og tvær far­tölvur.

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Gætir Heimildin gefið fákunna lesendanum upplýsingar um hvernig heimildaverndin er háttuð í BNA? Var þessi húsleit yfirhöfuð lögleg skv. bandarískum lögum?
    1
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Fasisma-orkan sem streymir frá hinum appelsínugula og fylgdarhnöttum hans fer sífellt vaxandi.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár