Fast leiguverð til sjö ára

Alma er ný þjón­usta á leigu­mark­aði í eigu Almenna leigu­fé­lags­ins þar sem leigj­end­um er gef­inn kost­ur á leigu til allt að sjö ára á föstu leigu­verði sem á ein­ung­is að vera tengt vísi­tölu neyslu­verðs.

Almenna leigu­fé­lagið hefur ákveðið að bjóða við­skipta­vinum sínum upp á nýja þjón­ustu á leigu­mark­aði þar sem leigj­endum er gef­inn kostur á leigu til allt að sjö ára á föstu leigu­verði sem sé ein­ungis tengt vísi­tölu neyslu­verðs. Nýja þjón­ustan heitir Alma og segir í til­kynn­ingu frá félag­inu að Alma bjóði áður „óþekkt hús­næð­is­ör­yggi“ á íslenskum leigu­mark­aði. Sjóður sem á Almenna leigu­fé­lags­ins er í stýr­ingu hjá GAMMA, sem jafn­framt er í eigu Kviku.

Samningarnir gerðir í eitt ár í senn

Í til­kynn­ingu frá Almenna leigu­fé­lagið segir að félagið hafi unnið að þess­ari nýju þjón­ustu um nokk­urt skeið en í nýju samn­ing­unum felst leigu­ör­yggi til allt að sjö ára. Samn­ing­arnir verða gerðir til árs í senn en að ári liðnu hefur leigj­and­inn ein­hliða rétt á að fram­lengja samn­ing­inn um annað ár. Leigj­andi getur fram­lengt allt að sex sinnum eða í allt að sjö ár. „Þegar samn­ing­ur er fram­lengd­ur kem­ur ekki til neinn­ar hækk­un­ar á leigu­verði um­fram breyt­ing­ar á vísi­tölu neyslu­verðs og er því leigu­verð tryggt til allt að sjö ára.“ segir í til­kynn­ing­unni.

Nýjir eigu­samn­ing­ar Ölmu standa til boða öll­um nýj­um við­skipta­vin­um frá 19. mars næst­kom­andi , auk þess sem öðrum við­skipta­vin­um verður boðið að skipta yfir þegar þeirra samn­ing­ar renna út, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. Jafn­framt verði áfram boðið upp á styttri leigu­samn­inga með styttri upp­sagn­ar­fresti.[adspot]

Sammála um að breytinga væri þörf á íslenskum leigumarkaði

[links]Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, mót­mælti fyrr í mán­uð­inum fyr­ir­hug­uðum hækk­unum á leigu hjá Almenna leigu­fé­lag­inu með því að hóta að taka út rúma 4 millj­arða króna sem VR á í stýr­ingu hjá Kviku. Eftir fundi milli for­manns VR og fram­kvæmda­stjóra Almenna leigu­fé­lags­ins var ákveðið að falla frá hækk­un­inni.

Í til­kynn­ing­unni frá félag­inu segir að for­svars­menn Almenna leigu­fé­lags­ins og VR hafi verið sam­mála um að breyt­inga væri þörf á íslenskum leigu­mark­aði þar sem háir vextir þrýsti á leigu­verð, hvort sem það sé í félags­lega kerf­inu eða á hinum almenna mark­aði. Auk þess hafi for­svars­menn félag­anna verið sam­mála um að mik­il­vægt væri að ís­lensk­ir líf­eyr­is­sjóðir og aðrir lang­tíma­fjár­fest­ar kæmu með öfl­ug­um hætti að fjár­mögn­un leigu­fé­laga til þess að skapa grund­völl fyr­ir lægri leigu, stöðugra leigu­um­hverfi og aukið hús­næðis­ör­yggi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár