Almenna leigufélagið dregur hækkanir til baka og vinnur með VR

VR og Almenna leigu­fé­lagið hafa átt í upp­byggi­legum við­ræðum um stöðu mála á leigu­mark­aði, segir í til­kynn­ingu.

VR og Almenna leigu­fé­lagið hafa náð sam­komu­lagi um að styrkja stöðu leigj­enda hjá félag­inu og draga til baka fyr­ir­hug­aðar hækk­anir á leigu.

Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu VR og Almenna leigu­fé­lags­ins.

Í henni segir að VR og Almenna­leigu­fé­lagið hafi átt upp­byggi­legar við­ræður um stöð­una á hús­næð­is­mark­aði að und­an­förnu, en VR gagn­rýndi hækk­anir á leigu hjá félag­inu harð­lega á dög­unum, sem meðal ann­ars leiddi til þess að félagið hót­aði að taka 4,2 millj­arða króna úr stýr­ingu hjá Kviku banka, en kaup bank­ans á Gamma, sem rekur Almenna leigu­fé­lagið, eru nú til skoð­una hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

„VR og Almenna leigu­fé­lagið hafa átt upp­byggi­legar umræður síð­ustu daga um fram­tíð íslensks leigu­mark­aðar. Leigu­mark­að­ur­inn hér á landi er enn smár í sniðum og var lengi skamm­tíma­lausn fyrir fólk þar til það gat komið sér upp eigin hús­næði. Á síð­ustu árum hefur hins vegar orðið við­horfs­breyt­ing sem kallar á nýja nálgun. Æ fleiri vilja sjá leigu­mark­að­inn sem raun­hæfan val­kost til lengri tíma með hús­næð­is­ör­yggi og verð­stöð­ug­leika,“ segir í til­ynn­ing­unni.

Þá er tekið fram að VR og Almenna leigu­fé­lagið ætli sér að tryggja betur stöðu leigj­enda meðal ann­ars með breyt­ingum á leigu­samn­ingum, þar sem hús­næð­is­ör­yggi og stöðugt verð er í önd­vegi.

„Hækkun á leigu íbúð­ar­hús­næðis varð til þess að VR og Almenna leigu­fé­lagið ræða nú hvernig hægt er að tryggja betur stöðu leigj­enda. Almenna leigu­fé­lagið lýsir því yfir að það muni draga til baka fyr­ir­hug­aðar hækk­anir leigu sem áttu að koma til fram­kvæmda á næstu þremur mán­uðum. Auk þess að vinna að breyt­ingum á leigu­samn­ingum félags­ins með það að mark­miði að bjóða samn­inga til lengri tíma en þekkst hefur á almenna mark­aðnum, þar sem tryggt er hús­næð­is­ör­yggi og stöðugra leigu­verð. Lengri leigu­samn­ingar verða kynntir sér­stak­lega í byrjun mars á þessu ári.

Ljóst að breyt­inga er þörf. Háir vextir þrýsta á leigu­verð, hvort sem er í félags­lega kerf­inu eða á hinum almenna mark­aði. Þegar við bæt­ist óstöðugt lóða­fram­boð og hár kostn­aður við bygg­inga­fram­kvæmdir dregur úr leigu­fram­boði á við­ráð­an­legu verði fyrir hinn almenna launa­mann.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafa ekki tekið virkan þátt í leigu­mark­aði á Íslandi þrátt fyrir tak­mark­aða fjár­fest­ing­ar­mögu­leika inn­an­lands síð­ustu ár. Þátttaka líf­eyr­is­sjóða og ann­arra lang­tíma­fjár­festa í fjár­mögnun leigu­fé­laga gæti skapað grund­völl fyrir lægri leigu, stöðugra leigu­um­hverfi og auknu hús­næð­is­ör­yggi leigj­enda. Það er báðum aðilum til hags­bóta – leigj­endum og leigu­sölum - að sterkir inn­lendir fjár­festar komi að upp­bygg­ingu íslensks leigu­mark­aðar með lang­tíma­hags­muni leigj­enda að leið­ar­ljósi,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár