3.839 íbúðir í byggingu á Íslandi

Þjóðskrá Íslands hefur hafið birt­ingu á nýjum gögnum um fjölda íbúða í bygg­ingu.

Tæplega fjögur þús­und íbúðir eru í bygg­ingu á Íslandi í dag og tæp tvö þús­und bygg­ing­ar­leyfi hafa verið útgefin en bygg­ing ekki hafin. Þetta kemur fram í nýjum gögnum Þjóð­skrár Íslands um fjölda íbúða í bygg­ingu.

Í þessum gögnum má finna upp­lýs­ingar um íbúðir þar sem búið er að gefa út bygg­ing­ar­leyfi. Fram­gangur bygg­inga er skráður og íbúðir flokk­aðar í þrjá meg­in­flokka. Í fyrsta lagi er talað um útgefin bygg­ing­ar­leyfi, í öðru lagi íbúðir í bygg­ingu og í þriðja lagi til­búnar íbúðir.

Eins og gefur að skilja eru lang­flestar íbúð­irnar stað­settar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en útgefin bygg­ing­ar­leyfi íbúða og fjöldi íbúða í bygg­ingu eru þar 3.700 tals­ins. Næst á eftir kemur Reykja­nes með 753 leyfi og íbúðir í bygg­ingu og þar á eftir Suð­ur­land, Vest­ur­land og Norð­ur­land-eystra. Gráa lit­ur­inn þýðir útgefin bygg­ing­ar­leyfi og sá græni fjöldi íbúða í bygg­ingu.

Í frétt Þjóð­skrár um málið kemur fram að hún hafi um ára­bil talið fjölda íbúða en sam­ræmd­ari skrán­ing á nýju hús­næði geri það að verkum að gögn um fjölda eigna í smíðum sé mark­tæk­ari og því hægt að birta betri upp­lýs­ingar sem meðal ann­ars inni­halda her­bergja­fjölda og stærðir bygg­inga í smíðum.

„Hafa þarf í huga að fast­eignir sem ekki hafa verið skráðar í fast­eigna­skrá af bygg­ing­ar­full­trúa sveit­ar­fé­laga eru ekki að finna í þessum gögnum,“ segir í frétt Þjóð­skrár.

Samkvæmt Þjóðskrá er um nýjar upp­lýs­ingar að ræða og upp­fær­ast und­ir­liggj­andi gögn mán­að­ar­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár