Arkímedes í nýju Indiana Jones-myndinni: Hver var hann?

Hver voru tengsl Arkímedesar við hina dul­ar­fullu Antikythera-vél? Og hvernig lauk umsátr­inu um Sýrakúsu?

Þarna birtist Indiana Jones í flugvél yfir Sýrakúsu árið 212 — fyrir Krist!
Þarna birt­ist Indiana Jones í flug­vél yfir Sýrakúsu árið 212 — fyrir Krist!

Nýjasta og vænt­an­lega síð­asta myndin um forn­leifa­fræð­ing­inn Indiana Jones hefur verið í hópi vin­sæl­ustu bíó­mynda heims­ins þetta sum­arið. Eins og venju­lega í þessum ævin­týra­mynda­flokki snýst myndin um keppni Indiana Jones og vondu kall­anna (oft­ast þýskra nas­ista) við að ná í ein­hvern dýr­mætan hlut aftan úr forn­eskju.

Indiana Jones lang­aði víst til að stoppa lengur hjá Arkímedesi.Sam­ferða­fólk hans kom þó í veg fyrir það. Hann hefði áreið­an­lega ekki getað stillt sig um að finna upp gufu­vél­ina og breytt þar með gangi sög­unnar ærlega.

Myndin heitir Indiana Jones and the Dial of Destiny og hlut­ur­inn er dul­ar­full reikn­ings­skífa frá Grikk­landi hinu forna sem oft­ast er kölluð Antikythera-vélin.  Sú er í raun­inni til og kennd við eyj­una Antikythera sem er svo­lítil eyja milli Pelóps­skaga og Krítar. Árið 1900 fundu kaf­arar í leit að svömpum ævafornt skips­flak á 45 metra dýpi við eyj­una. Meðal þess sem fannst í skip­inu var reikn­ings­skífa sem mátti nota til að sýna stöðu helstu him­in­tungla, spá fyrir um sól­myrkva og fleira.

Þessi vél er ber­sýni­lega smíðuð af ótrú­legri hug­kvæmni og hefur oft verið kölluð tölva, svo langt var hún á undan sinni sam­tíð. Skífan var senni­lega smíðuð á 2. öld fyrir Krist en eng­inn við­líka gripur var búinn til — svo vitað sé — fyrr en 1.600 árum síðar eða svo. Í fyrsta lagi.

Cicero lýsti vélum Arkímedesar

Margt er enn á huldu um Antikythera-vél­ina og hvernig á því stendur að svo full­komin vél var um borð í til­tölu­lega venju­legu flutn­inga­skipi á ferð um Mið­jarð­ar­hafið en er ann­ars að öðru leyti óþekkt með öllu. Um höf­und hennar er ekk­ert vitað en hún hefur þó oft verið tengd gríska snill­ingnum Arkímedesi sem bjó í borg­inni Sýrakúsu á Sikiley. Hann dó á átt­ræð­is­aldri árið 212 fyrir Krist, að talið er. Heim­ildir eru um að Arkímedes hafi smíðað vél­ræn líkön af gangi fasta­stjarn­anna sem róm­verski ræðu­skör­ung­ur­inn Cicero lýsti til dæmis fag­ur­lega.

Það væri því alls ekki ólík­legt að Arkímedes hefði haft að minnsta kosti hönd í bagga með smíði Antikythera-vél­ar­innar.

Antikythera-véliner eitt ótrú­legt apparat.

Og það er sú for­senda sem höf­undar nýju Indiana Jones-mynd­ar­innar gefa sér.

Þeir búa svo til þá fléttu að Antikythera-vélin, sú sem náð­ist upp úr sjónum á sínum tíma, sé aðeins helm­ingur hinnar upp­runa­legu vélar og síðan snýst dágóður hluti mynd­ar­innar um kapp­hlaup Indiana Jones og vondu nas­ist­anna um að finna hinn helm­ing­inn.

Svo kemur loks í ljós að sam­einuð er hin heila Antikythera-vél í raun­inni tíma­vél og flytur bæði Indiana Jones og vini hans ann­ars vegar og nas­istana hins vegar til árs­ins 212 fyrir Krist þegar Róm­verjar sátu um heima­borg Arkímedesar á Sikiley.

Og þar fer loka­upp­gjör mynd­ar­innar fram.

„Hevreka! Ég hef fundið það!“

En hver var Arkímedes í raun og veru og hver er hinn sögu­legi grunnur umsát­urs Rómverja um Sýrakúsu?

Hann fædd­ist í Sýrukúsu sem þá var og hafði öldum saman með grísk nýlenda en þó alveg sjálf­stætt borg­ríki. Hann fékkst við stærð­fræði, eðl­is­fræði og stjörnu­fræði og var senni­lega ein­hver snjall­asti raun­vís­inda­maður forn­aldar.

Skrúfa Arkímedesar.

Fræg er sagan af því þegar hann upp­götv­aði leið til að mæla rúm­mál hluta. Hann var þá að fara í bað og veitti því athygli að lík­ami ruddi frá sér bað­vatn­inu svo yfir­borð þess hækk­aði. Í fram­haldi af því rann svo í raun upp fyrir honum hug­myndin um eðl­is­massa.

Arkímedes er þá sagður hafa stokkið upp úr bað­inu og hlaupið alls­ber um stræti Sýrukúsu, hróp­andi: „εὕρηκα, εὕρηκα“ eða „hevr­eka, hevr­eka“.

Það þýðir ein­fald­lega: „Ég hef fundið það! Ég hef fundið það!“

Smíðaði stríðsvélar

Arkímedes var líka frægur upp­finn­inga­maður og fann meðal ann­ars upp svo­nefnda Arkímedesar-skrúfu sem notuð er til að dæla upp vatni og vog­ar­stöng sem gerði fólki kleift að hreyfa mjög þunga hluti.

Árið 212 sett­ust Róm­verjar um Sýrukúsu. Umsátrið var hluti af öðru pún­verska stríð­inu svo­nefna en það sner­ist meðal ann­ars um átök Rómverja og Karþagómanna um Sikiley.

Róm­verjar ótt­uð­ust að Sýrakúsu-menn væru í banda­lagi við Karþagómenn og sett­umst því um borg­ina.

Nasser Memarcia í hlut­verki Arkímedesarí mynd­inni um Indiana Jones.

Arkímedes tók fullan þátt í vörnum heima­borg­ar­innar með því að finna upp ýmsar víg­vélar sem komu Róm­verjum í opna skjöldu. Þar má nefna stóran krana sem gat kippt róm­versku her­skip­unum hálfa leið upp úr sjónum.

Enn­fremur spegla sem end­ur­vörp­uðu sól­ar­geislum að skipum Rómverja, svo kvikn­aði í þeim.

En þrátt fyrir harða vörn Sýru­kúsu­m­anna í átta mán­uði fór þó að lokum að halla undan fæti.

Þá var það, sam­kvæmt mynd­inni um Indiana Jones, sem Arkímedes not­aði Antikythera-vél sína til að kalla á aðstoð úr fram­tíð­inni og Indiana Jones og félagar birt­ust á skammri stundu við Sýrakúsu árið 212 fyrir Krist.

„Ekki rugla hringjunum mínum!“

Óhætt er að segja frá því (eru ekki allir sem vilja búnir að sjá þessa mynd?) að Indiana Jones og félagar hrekja róm­verska inn­rás­ar­liðið á brott.

En í reynd­inni fór þó ekki svo. Sýru­kúsu­menn urðu að gef­ast upp. Her­for­ingi Rómverja, Marcellus að nafni, gaf þá skýrar fyr­ir­skip­anir um að þyrma ætti lífi hins merka Arkímedesar og sendi her­flokk af stað til að finna snill­ing­inn ráða­góða.

Arkímedes felldur.

Her­flokk­ur­inn kom að Arkímedesi þar sem hann var að hug­leiða stærð­fræði og hafði dregið upp nokkra hringa í ryk á jörð­inni til að glöggva sig á þeim. Foringi her­mann­anna skip­aði honum með þjósti að koma með þeim en Arkímedes bað þá bíða meðan hann lyki við dæmi sitt.

Þá móðg­að­ist for­ing­inn og hóf upp sverð sitt en Arkímedes hróp­aði:

„Noli tur­bare circulos meos.“

Sem sé „ekki skemma hring­ana mína“.

En sverðið féll og þar dó hinn mikli snill­ingur.

Ekkert af þessu síð­ast­talda kemur þó fram í mynd­inni um Indiana Jones.

Eitt varn­ar­vopna Arkímedesar við Sýrukúsu.Frumdrög að ley­sigeisla­vopnum?
Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Enn ein flækjusagan framreidd á snildar vísu sem Illuga er einum getið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár