„Það skiptir ekki máli hversu margir fá þessa veiru, það skiptir máli hverjir fá hana“

Níutíu manns hafa greinst með COVID-19 hér á landi. Sótt­varna­læknir segir að ekki skipti máli hve margir sýk­ist, heldur hverjir sýk­ist. Mik­il­væg­ast sé að vernda við­kvæma hópa.

Alma Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Alma Möller land­læknir og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV.

„Það skiptir ekki máli hversu margir fá þessa veiru, það skiptir máli hverjir fá hana,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á blaða­manna­fundi vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar í dag, en fram kom í heims­press­unni í dag að Angela Merkel Þýska­landskansl­ari teldi lík­legt, sam­kvæmt mati sér­fræð­inga, að um það bil tveir þriðju þýsku þjóð­ar­innar smit­að­ist af veirunni.

Þórólfur sagði að þetta mat væri mikið á reiki og tölur um hugs­an­legt hlut­fall smita væru gripnar úr lausu lofti. Hann benti á að norsk yfir­völd hefðu gefið út að talið væri að 25 pró­sent Norð­manna fengju veiruna og að dönsk yfir­völd hefðu talað um að 10 pró­sent íbúa þar í landi smit­uð­ust á ein­hverjum tíma­punkti. Ekkert sam­ræmi væri í þessu og mestu máli skipti að vernda þá sem eru við­kvæmir.

Níutíu manns hafa nú í heild­ina greinst með COVID-19 sjúk­dóm­inn hér á landi. Alls hafa þrír verið lagðir inn á spít­ala og einn er inni á spít­ala sem stendur, sam­kvæmt Þórólfi.

Fram kom í máli Þórólfs að ef ekk­ert yrði að gert myndi far­ald­ur­inn lík­lega ganga yfir á 2-3 mán­uðum. Hér á landi væri hins vegar verið að reyna að hægja á far­aldr­inum eins og hægt er, svo að við gætum horft fram á að vera með við­var­andi ástand vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar í lengri tíma en þessa 2-3 mán­uði.

Aðgerðir yfir­valda hér­lendis miða að því að reyna að hefta og seinka útbreiðslu veirunnar eins mikið og hægt er og dreifa álag­inu á heil­brigð­is­kerfið.

Unnið að rakningu tveggja smita

Enn á eftir að rekja upp­runa tveggja smita sem greinst hafa hér­lendis, en fjögur smit hafa þegar greinst sem flokk­ast sem svokölluð þriðja stigs smit, en talað er um þriðja stigs smit þegar ein­stak­lingar smit­ast af öðrum ein­stak­lingi sem ekki hefur verið staddur erlendis á skil­greindum áhættu­svæðum.

Fimmtán manns hafa greinst með COVID-19 hér á landi eftir að hafa verið í sam­skiptum við fólk sem kom smitað frá skil­greindum áhættu­svæðum, en allir aðrir sem greinst hafa með veiruna hafa smit­ast erlendis. Lang­flestir voru á skíða­svæðum í Ölpunum, þar af 35 sem komu frá Norður-Ítalíu, 29 sem voru í Aust­ur­ríki, fjórir sem voru í Sviss og einn sem kom smit­aður eftir að hafa verið í Asíu. Alls níu­tíu manns, sem áður segir.

Yfir 700 manns eru í sótt­kví á Íslandi sem stendur, sam­kvæmt því sem fram kom í máli Þórólfs, sem hóf blaða­manna­fund­inn á að fara yfir þessar tölu­legu upp­lýs­ingar um útbreiðslu veirunnar. Hann sagði nokkra smit­aða ein­stak­linga vera með hita. „Vonandi mun það ástand ekki versna,“ sagði Þórólfur.

Fram kom í máli sótt­varna­læknis að verið væri að útvíkka þann hóp sem verður tek­inn til sýna­töku og að komin væri til lands­ins ný send­ing af veir­upinnum til þess að taka sýni, en yfir 830 sýni hafa verið tekin hér­lendis til þessa. Til stendur að setja auk­inn kraft í sýna­tök­una, sem hingað til hefur ein­skorð­ast að mestu við þá sem taldir hafa verið í sér­stökum áhættu­hópi.

Landlæknir klár í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

Í dag hafa borist fregnir af því að starfs­menn Land­spít­ala hafi farið í skíða­ferð til Aust­ur­ríkis eftir að biðlað var til heil­brigð­is­starfs­fólks um að fara ekki erlendis á meðan óvissa væri um útbreiðslu veirunnar. Þessir starfs­menn eru nú í sótt­kví og var Alma Möller land­læknir spurð út í þetta mál á fund­inum í dag.

„Við not­uðum orðið að biðla til svo það var auð­vitað ekk­ert vald­boð í því,“ sagði land­læknir, en bætti því við að hún væri von­svikin með að þessi staða hefði komið upp, biðlað hefði verið til fólks um að halda sig heima af frjálsum og fúsum vilja. Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa nú óskað eftir því að heil­brigð­is­starfs­fólk, sem er að starfa í öðrum geirum, skrái sig í svo­kall­aða bak­varða­sveit heil­brigð­is­þjón­ust­unnar.

Alma sagð­ist hafa skráð sig þar sem gjör­gæslu­lækni, en óvíst væri vegna núver­andi starfs hennar hvort hún gæti stokkið til ef kallið kæmi, en hún væri alla­vega klár í að leggja sitt af mörkum ef svo bæri undir.

Allir skólar þurfi að búa sig undir að bregðast við smiti

Fimmtíu nem­endur við Mennta­skól­ann í Hamra­hlíð eru nú í sótt­kví eftir að einn nem­andi, sem var í skól­anum á fimmtu­dag og föstu­dag, greind­ist með COVID-19 um helg­ina.

Steinn Jóhanns­son rektor MH var á blaða­manna­fund­inum í dag og sagði að þetta hefði strax raskað skóla­starfin. Rík áhersla hefði verið lögð á gott upp­lýs­inga­streymi til allra sem málið varð­aði, kenn­ara, nem­enda og aðstand­enda þeirra.

„Það sem við þurftum að gera og allir skólar þurfa að und­ir­búa sig fyrir ef þetta ger­ist er, hvernig við breytum skóla­starf­inu,“ sagði Steinn og bætti við að ljóst væri að það þyrfti að breyta kennslu­á­ætl­unum og sýna aukið umburð­ar­lyndi, meðal ann­ars þeim nem­endum sem væru hik­andi við að koma í skól­ann sökum þess að þeir ættu aðstand­endur með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

Hann sagði að lögð væri áhersla á að hvetja nem­endur til dáða og huga að and­legri líðan allra, á þessum óvissu­tímum.

Hefð­bundið skóla­hald er í MH í dag og ágætis mæt­ing í skól­ann, þó ein­hverja vanti. Nemendur í sótt­kví höfðu sumir tök á að taka þátt í kennslu­stundum í gegnum síma, að sögn rekt­ors­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár