Tíu staðreyndir um haustkosningar

1. Ein fjöl­menn­ustu mót­mæli Íslands­sög­unnar fóru fram á Aust­ur­velli þann 4. apríl síð­ast­lið­inn í kjöl­far afhjúp­unar Kast­ljóss og Reykja­vik Media um Panama­skjölin og tengsl ráða­manna við félög í skatta­skjólum. Talið var að um 22.000 manns hafi komið saman og kraf­ist þess að þing yrði rofið og kosið yrði án tafar. Stjórn­ar­and­staðan boð­aði van­traust á rík­is­stjórn­ina og krafð­ist kosn­inga.

2. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son, þá verð­andi for­sæt­is­ráð­herra, til­kynntu á tröppum Alþingis þann 6. apríl síð­ast­lið­inn að rík­is­stjórnin hafi ákveðið að vinna áfram saman, en stíga við­bót­ar­skref til að „virkja lýð­ræðið og koma til móts við stöð­una“ sem hafði mynd­ast eftir Panama­skjölin.

„Við hyggj­umst stefna að því að stytta kjör­tíma­bilið um eitt lög­gjaf­ar­þing og halda kosn­ingar í haust. Nákvæm dag­setn­ing veltur á fram­vindu þing­mála,“ sagði Bjarni þá.

Í síð­ustu viku, í þetta sinn á tröpp­unum á Bessa­stöðum fyrir síð­asta rík­is­ráðs­fund, sagði Bjarni: „Þegar við end­ur­nýj­uðum sam­starf flokk­anna í vor þá urðu breyt­ing­ar í rík­is­stjórn­inni og við boð­uðum á sama tíma að við ætl­uðum að ljúka ákveðnum verk­efn­um og síðan ganga til kosn­inga. Ég sé ekki að neitt hafi breyst í þeim efn­um og sé í sjálfu sér ekk­ert sem ætti að koma í veg fyr­ir það að við get­um kosið seint í októ­ber, sem er dag­setn­ing sem nefnd hef­ur verið oft í þessu sam­bandi.“ Stjórn­ar­sam­starfið hafi verið end­ur­nýjað á þessum for­sendum og þær hafi ekki breyst.

3. Að minnsta kosti 11 stjórn­mála­flokkar ætla að bjóða fram í kom­andi kosn­ingum: Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur, Píratar, Sam­fylk­ing, Vinstri græn, Björt fram­tíð, Viðreisn, Dögun, Flokkur fólks­ins, Alþýðu­fylk­ingin og Íslenska þjóð­fylk­ingin. Af þessum eru þrír flokkar nýir: Viðreisn, Flokkur fólks­ins og Íslenska þjóð­fylk­ingin. Píratar, Sjálf­stæð­is­flokkur og Sam­fylk­ing halda próf­kjör til að raða á lista. Fram­sókn­ar­flokkur er nú í vinnu við að ákveða aðferð­ar­fræði, en í Reykja­vík verður haldið tvö­falt kjör­dæm­is­þing til að velja á lista. Vinstri græn og Björt fram­tíð stilla upp, sem og flestir aðrir flokkar sem boðað hafa fram­boð.

4. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn missir flesta þing­menn burt eftir kosn­ingar af þeim flokkum sem sitja nú á Alþingi. Að minnsta kosti 15 þing­menn hafa sagst ætla að hætta eftir þetta kjör­tíma­bil og eru þeir flestir hjá Fram­sókn­ar­flokknum, eða sex. Þar á meðal eru Frosti Sig­ur­jóns­son, Sigrún Magn­ús­dóttir, Haraldur Ein­ars­son, Vigdís Hauks­dóttir, Páll Jóhann Pálsson og Jóhanna María Sig­munds­dóttir. Katrín Júl­í­us­dóttir og Kristján Möller hjá Sam­fylk­ingu ætla að segja skilið við þingið, sem og Ögmundur Jónasson í Vinstri grænum. Róbert Marshall og Bryn­hildur Pét­urs­dóttir ætla ekki að gefa kost á sér áfram fyrir Bjarta fram­tíð og Helgi Hrafn Gunn­ars­son í Pírötum heldur líka á önnur mið. Blóð­takan er tölu­verð hjá Sjálf­stæð­is­flokknum, en Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, Einar K. Guð­finns­son og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir ætla öll að kveðja þingið.

5. En maður kemur í manns stað og nú koma fram nýjar til­kynn­ingar um ein­stak­linga sem ætla að gefa kost á sér nán­ast dag­lega. Fram­boðs­listi Pírata er orð­inn afar lang­ur, nærri 140 manns, þar af eru yfir 100 í höf­uð­borg­ar­kjör­dæmi. Meðal þeirra sem bjóða sig fram í próf­kjöri Pírata eru Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður Hreyf­ing­ar­inn­ar, Gunnar Hrafn Jóns­son, fyrr­ver­andi frétta­maður á RÚV, Erna Ýr Öldu­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­maður fram­kvæmda­ráðs flokks­ins, Seth Sharp skemmti­kraft­ur, Heimir Örn Hólmars­son for­seta­fram­bjóð­andi, og Jón Þór Ólafs­son, fyrr­ver­andi þing­mað­ur. Sema Erla Serdar, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópa­vogi, og Mar­grét Tryggva­dótt­ir, fyrr­ver­andi þing­maður Hreyf­ing­ar­inn­ar, íhuga báðar fram­boð fyrir Sam­fylk­ingu og meðal þeirra sem gefa kost á sér fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn eru Árn­i John­sen, fyrr­ver­andi þing­mað­ur, Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra, Teitur Björn Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra, og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, rit­ari flokks­ins.

6. Ef kosið yrði til Alþingis í dag mundu Sjálf­stæð­is­flokkur og Píratar fá um 26 pró­senta fylgi, sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá. Vinstri græn eru væru með 16 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokkur, Sam­fylk­ing og Viðreisn væru með 8,7 pró­sent. Björt fram­tíð mælist með 3,9 pró­sent og aðrir með þrjú pró­sent.

7. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ingar, og Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, sögðu allar við Kjarnann í síð­ustu viku að þær úti­lok­uðu sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum eftir kom­andi kosn­ingar. Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, og Benedikt Jóhann­es­son, tals­maður Við­reisnar, vildu hins vegar ekki úti­loka sam­starf við neinn.

8. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur sagt að það sé frá­leitt að ákveða kjör­dag áður en þing kemur saman. Hann hefur und­ir­strikað að ljúka verði „stórum málum“ áður en þingi er slitið. Í sama streng hafa margir sam­flokks­menn hans tekið, eins og Kjarninn greindi frá í sumar. Sig­mundur hefur ákveðið að halda sig í norð­aust­ur­kjör­dæmi og bjóða fram þar, hvenær svo sem kosn­ing­arnar verða.

9. Samkvæmt stjórn­ar­skránni verða kosn­ingar að fara fram innan 45 daga frá þing­rofi. Ef þing verður rofið eins seint og mögu­legt er, sem er 12. sept­em­ber næst­kom­andi, verður kosið í síð­asta lagi 27. októ­ber. Kosn­ingar verða að vera 22. októ­ber ef haldið verður í þá hefð að kjósa á laug­ar­dögum.

10. Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hefur sagt opin­ber­lega að það eigi að kjósa til Alþingis í haust. Hann hefur rætt við for­sæt­is­ráð­herra um málið og setti enga fyr­ir­vara á haust­kosn­ingar í ræðu sinni þegar hann tók við emb­ætti síð­ast­lið­inn mánu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár