Yfir hundrað vilja í framboð fyrir Pírata í þremur kjördæmum

Vel yfir hund­rað manns taka þátt í próf­kjöri Pírata í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og Suð­vest­ur­kjör­dæmi, en próf­kjörið hefst í dag.

Núverandi þingmenn Pírata. Ásta Guðrún og Birgitta bjóða sig fram til áframhaldandi þingsetu, en ekki Helgi Hrafn.
Núver­andi þing­menn Pírata. Ásta Guðrún og Birgitta bjóða sig fram til áfram­hald­andi þing­setu, en ekki Helgi Hrafn. Mynd: Birgir Þór

Yfir hund­rað manns sækj­ast eftir því að vera á fram­boðs­listum Pírata í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur og Suð­vest­ur­kjör­dæmi, en sam­eig­in­legt próf­kjör fyrir þessi þrjú kjör­dæmi hefst í dag. Prófkjör í Suð­ur­kjör­dæmi hefst líka í dag, en ríf­lega tutt­ugu manns taka þátt í því.

Próf­kjöri er lokið í einu kjör­dæmi hjá flokknum, en það er í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Þetta eru fyrstu próf­kjörin sem haldin eru fyrir kosn­ing­arnar sem boðað hefur verið að verði haldnar í haust, þótt ekki sé ljóst hvenær af þeim verður enn. Prófkjör í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hefst í næstu viku, en sautján hafa lýst yfir fram­boði þar.

Vinstri-græn hafa einnig valið sinn lista í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, en aðrir listar flokka eru ekki til­búnir. Allir flokkar hafa þó hafið vinnu við upp­still­ingu eða próf­kjör.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár