Bætist í hóp nýrra þingframbjóðenda nær daglega

Fjöldi nýrra fram­bjóð­anda hyggst bjóða sig fram í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Helm­ingur sitj­andi flokka heldur próf­kjör og helm­ingur stillir upp. Fyrr­ver­andi þing­maður Hreyf­ing­ar­innar íhugar fram­boð fyrir Sam­fylk­ingu.

Þó að enn sé ekki komin fram dagsetning fyrir kosningar koma reglulega fram ný nöfn sem vilja gefa kost á sér til þings á næsta kjörtímabili.
Þó að enn sé ekki komin fram dag­setn­ing fyrir kosn­ingar koma reglu­lega fram ný nöfn sem vilja gefa kost á sér til þings á næsta kjör­tíma­bili. Mynd: Birgir Þór

Ný and­lit spretta nú fram nær dag­lega sem vilja bjóða fram krafta sína í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Helm­ingur sitj­andi flokka heldur próf­kjör; Sjálf­stæð­is­flokkur, Sam­fylk­ing og Píratar. Hinir flokk­arnir; Fram­sókn­ar­flokkur, Vinstri græn og Björt fram­tíð, stilla upp á lista.

Margrét og Sema íhuga framboð fyrir Samfylkingu

Töluverð óvissa ríkir í kring um fram­boð Sam­fylk­ing­ar­fólks, en flokk­ur­inn heldur próf­kjör í byrjun sept­em­ber. Hvorki Árni Páll Árnason, fyrr­ver­andi for­maður, né Helgi Hjörvar þing­flokks­for­maður hafa gefið upp hvort þeir ætli að gefa kost á sér áfram í næstu kosn­ingum.

Þær Sema Erla Serdar, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópavogi, og Margrét Tryggva­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Hreyf­ing­ar­innar, hafa báðar verið orð­aðar við fram­boð fyrir flokk­inn. Margrét segir í sam­tali við Kjarnann að ekk­ert sé ákveðið í þeim efnum. „Ég er enn að hugsa málið og get ekk­ert stað­fest eins og staðan er í dag,“ segir hún. Sema segir að vissu­lega sé verið að skoða fram­boðs­mál.

„Ég er ekki til­búin að taka neina ákvörðun eins og er, en greini frá henni lík­lega á næstu dögum.“

Magnús Orri Schram, fyrr­ver­andi þing­maður og for­manns­fram­bjóð­andi, ætlar ekki að gefa kost á sér til Alþingis.

Margir vilja vera Píratar

Nú standa yfir próf­kjör Pírata á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­landi. Fram­boðs­listi flokks­ins er afar langur, nærri 140 manns, þar af eru yfir 100 í höf­uð­borg­ar­kjör­dæmi. Meðal þeirra sem bjóða sig fram í próf­kjöri Pírata eru Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður Hreyf­ing­ar­innar, Gunnar Hrafn Jónsson, fyrr­ver­andi frétta­maður á RÚV, Erna Ýr Öldu­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður fram­kvæmda­ráðs flokks­ins, Seth Sharp skemmti­kraftur, Heimir Örn Hólmars­son for­seta­fram­bjóð­andi, og Jón Þór Ólafsson, fyrr­ver­andi þing­maður.

Árni Johnsen vill aftur á þing

Prófkjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins fer fram um mán­aða­mótin ágúst sept­em­ber. Meðal þeirra sem ætla að gefa kost á sér eru Árni Johnsen, fyrr­ver­andi þing­maður, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra, Teitur Björn Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra, og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari flokks­ins.

Nokkrir sjálf­stæð­is­menn hverfa af þingi eftir þetta kjör­tíma­bil, meðal ann­ars Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir þing­flokks­for­maður og Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis. Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum, var að hugsa málið varð­andi þing­fram­boð en hann hefur nú ákveðið að gefa ekki kost á sér.

Uppstillinganefndir að störfum

Eins og áður segir eru upp­still­ing­ar­nefndir að störfum í flestum kjör­dæmum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn, Vinstri græn og Bjarta fram­tíð. Listar verða kynntir með haustinu, en fram­boðs­listi VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi er til­bú­inn og leiðir Stein­grímur J. Sig­fús­son þann hóp. Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, segir vinnan við upp­still­ing­una ganga vel.

„Það gengur ágæt­lega að manna listana þó að það sé skrýtið að biðja fólk um að taka þátt í kosn­ingum sem maður veit í raun ekki hvenær verða,“ segir hann. „En við göngum út frá því að þær verði í októ­ber, eins og aðrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár