Það sem ný ríkisstjórn ætlar að gera

Ný rík­is­stjórn er með tíma­sett mark­mið í sumum málum, skýra stefnu­breyt­ingu í öðrum og sýnir vilja til að stuðla að auk­inni einka­væð­ingu. Hún setur þrjú risa­stór mál í nefnd og stefnir að alls konar aðgerðum án þess að útfæra þær.

Ný rík­is­stjórn hefur verið mynduð. Hún verður undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar og verða sam­steypu­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Stjórnin hefur minnsta mögu­lega þing­meiri­hluta, 32 þing­menn af 63, og er merki­leg fyrir þær sakir að í henni sitja ann­ars vegar flokkur sem stofn­aður var 2012 og hins vegar flokkur sem form­lega var stofn­aður í maí 2016. Með þeim situr Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, helsti valda­flokkur Íslands, sem haldið hefur um valdatauma í rík­is­stjórn ¾ hluta lýð­veld­is­sög­unnar.

Flokk­arnir birtu stefnu­yf­ir­lýs­ingu sína fyrr í dag. Hún er, líkt og stefnu­yf­ir­lýs­ingar íslenskra rík­is­stjórna eru vana­lega, löng, full af orð­skrúði og góðum til­ætl­unum. En í henni er líka að finna skýrar áherslur, sýni­legar breyt­ingar og erf­iðar mála­miðl­anir.

Það sem er niðurneglt og/eða tímasett

Heil­brigð­is­mál voru mjög í brennid­epli í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Eitt þeirra atriða sem er sér­stak­lega tíma­sett í stjórn­ar­sátt­mál­anum er að bygg­ing með­ferð­ar­kjarna Lands­spít­al­ans við Hring­braut eigi að vera lokið árið 2023. Stefnt er að ýmsu öðru, t.d. minnk­andi greiðslu­þátt­töku ein­stak­linga og að staða heilsu­gæslu sem fyrsta við­komu­staðar sjúk­linga verði styrkt.

Skýrt er tekið fram í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni að fyr­ir­tæki með fleiri en 25 starfs­menn þurfi að taka upp árlega jafn­launa­vottun til að sporna við launa­mis­rétti af völdum kyn­ferðis. Kyn­bund­inn launa­munur er enn umtals­verður á Íslandi. Þann 24. októ­ber síð­ast­lið­inn, á kvenna­frí­dag­inn, gengu konur til að mynda út af starf­stöðvum sínum klukkan 14:38 þegar þær höfðu lokið vinnu sinni ef þær hefðu sama tíma­kaup og karlar í sam­bæri­legum störfum.

Í þeim hluta yfir­lýs­ing­ar­innar sem fjallar um almanna­trygg­ingar segir að tryggt verði að allir sem verði fyrir skerð­ingu á starfs­getu vegna sjúk­dóma eða slys fái tæki­færi til „starfsend­ur­hæf­ingar þegar lækn­is­fræði­legri með­ferð og end­ur­hæf­ingu er lokið með það að mark­miði að auka lífs­gæði og sam­fé­lags­lega virkni.“ Auk þess á að taka upp starfs­getu­mat, frí­tekju­mark vegna atvinnu­tekna elli­líf­eyr­is­þega hækkað og not­enda­stýrð per­sónu­leg aðstoð (NPA) lög­fest sem eitt af þjón­ustu­formum fólks með fötlun í sam­ráði við sveit­ar­fé­lög.

For­eldra­jafn­rétti verður aukið til muna því að rík­is­stjórnin ætlar sér að tryggja rétt barna til að vera skráð í skiptri búsetu á tveimur lög­heim­ilum ásamt því sem aðstaða umgengn­is­for­eldra og lög­heim­il­is­for­eldra verður jöfnuð.

Tekið verður upp náms­styrkja­kerfi og lán­veit­ingar Lána­sjóðs íslenskra náms­manna (LÍN) miðuð við fulla fram­færslu og hvatn­ingu til náms­fram­vindu. Nokkuð ljóst er að þar verður byggt á afar umdeildu frum­varpi sem Illugi Gunn­ars­son, þá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, lagði fram um málið í fyrra. Tekið er fram í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni að „Hugað verði að félags­legu hlut­verki sjóðs­ins“. Ekkert er útfært í sátt­mál­anum um með hvaða hætti það verður gert.

Eitt það áhuga­verð­asta sem fram kemur í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni er að rík­is­stjórnin skuld­bindur sig til að efna ekki til nýrra íviln­andi fjár­fest­inga­samn­inga vegna upp­bygg­ingar meng­andi stór­iðju. Í því felst í reynd að stór­iðju­tíma­bil­inu í Íslands­sög­unni er lokið, enda hefur engin stór­iðja ákveðið að hefja starf­semi á Íslandi án þess að fá fyrst samn­ing sem tryggir henni stór­tækan afslátt af sköttum og gjöldum.

Settur verður á fót auðlindasjóður, en bara fyrir arð af nýtingu orkuauðlinda. Arður af nýtingu t.d. sjávarauðlinda eða náttúru Íslands á ekki að renna inn í hann.
Settur verður á fót auð­linda­sjóður, en bara fyrir arð af nýt­ingu orku­auð­linda. Arður af nýt­ingu t.d. sjáv­ar­auð­linda eða nátt­úru Íslands á ekki að renna inn í hann.

For­sendur pen­inga- og gjald­mið­ils­stefnu Íslands verða end­ur­metnar og sú vinna verður byggð á nið­ur­stöðum í skýrslu Seðla­banka Íslands frá árinu 2012 um val­kosti Íslands í gjald­mið­ils- og geng­is­málum. Þar var meðal ann­ars lagt mat á fram­kvæmd verð­bólgu­mark­miðs, mynt­ráð, fast­geng­is­stefnu og ýmsa aðra kosti. Nið­ur­stöður vinn­unnar eiga að liggja fyrir á fyrsta starfs­ári. Íslend­ingar geta því átt von á nýrri pen­inga­stefnu, nema að nið­ur­staðan verði sú að verð­bólgu­marksmiðs­stefna Seðla­bank­ans, sem rekin er í dag með háum stýri­vöxtum, sé besta stefnan.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni kemur líka fram að það sé lang­tíma­mark­mið að hreinar skuldir rík­is­sjóðs verði engar innan tíu ára. Þá á að stofna stöð­ug­leika­sjóð sem geti verið sveiflu­jafn­andi fyrir efna­hags­lífið. Athygli vekur að sá sjóður á ein­ungis að halda utan um arð af orku­auð­lindum í eigu rík­is­sjóðs, sem sagt arð­greiðslur úr Lands­virkjun, en ekki arð af nýt­ingu ann­arra auð­linda líkt og ýmsir hafa lagt til í umræðu um stöð­ug­leika­sjóð. Hug­myndir hafa m.a. verið uppi um að láta arð­semi af nýt­ingu sjáv­ar­auð­linda og nýt­ingu ferða­þjón­ustu­að­ila á nátt­úru Íslands inn í slíkan sjóð.

Í vinnu­mark­aðs­málum verður haldið áfram á sama hátt og verið hefur og stutt við íslenskt vinnu­mark­aðs­módel að nor­ræni fyr­ir­mynd, hinu svo­kall­aða SALEK-sam­komu­lagi. Þá verður trygg­ing­ar­gjald á lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki lækkað og verk­efn­inu „Ísland ljóstengt“ lokið á kjör­tíma­bil­inu.

Það sem sett verður í nefnd

Rík­is­stjórnin ætlar að beita sér fyrir lausn á ára­tuga­deilu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar með því að stofna til form­legra við­ræðna sam­göngu­yf­ir­valda, heil­brigð­is­yf­ir­valda, Reykja­vík­ur­borgar, ann­arra sveit­ar­fé­laga og hags­muna­að­ila. Ekki er tíma­sett hvenær þessi hópur á að skila af sér nið­ur­stöðu en sagt að ákvörðun verði tekin „um fyr­ir­liggj­andi kosti að und­an­gengnu mati og inn­viðir inn­an­lands- og sjúkra­flugs þannig tryggðir til fram­tíðar.“

Þá stendur til að setja saman enn eina nefnd um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrá­ar­innar, sem á að nýta sér það „viða­mikla starf“ sem hefur átt sér stað í mál­inu á und­an­förnum árum. Allir þing­flokkar á Alþingi eiga að fá að skipa full­trúa í þing­manna­nefnd sem „mun starfa með fær­ustu sér­fræð­ingum á sviði stjórn­skip­unar að sem bestri sátt um til­lögur að breyt­ingum sem verði lagðar fram eigi síðar en árið 2019.“ Í þeirri vinnu á að huga sér­stak­lega að breyt­ingum á kjör­dæma­skipan og að kosn­inga­lög­gjöfin verði yfir­farin með það fyrir augum að hún miði að meira jafn­ræði í atkvæða­vægi.

Framtíð Reykjavíkurflugvallar, stjórnarskrárbreytingar, endurskoðun á sjávarútvegskerfinu og endurskoðun búvörusamninga enda öll á sama stað. Í nefnd.
Framtíð Reykja­vík­ur­flug­vallar, stjórn­ar­skrár­breyt­ingar, end­ur­skoðun á sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu og end­ur­skoðun búvöru­samn­inga enda öll á sama stað. Í nefnd.

Tvö af helstu stefnu­málum Við­reisnar, og helsta bar­áttu­mál Bjartrar fram­tíðar í aðdrag­anda kosn­inga, enda í nefnd eða vinnu­ferli sem á að kanna kosti og/eða hvetja til breyt­inga. Viðreisn barð­ist hart fyrir því í aðdrag­anda kosn­inga að farin yrði mark­aðs­leið í sjáv­ar­út­vegi. Ljóst er að þær kröfur hefur flokk­ur­inn þurft að gefa eftir. Varðandi breyt­ingar á sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu á að kanna kosti þess að „í stað ótíma­bund­innar úthlut­unar verði byggt á lang­tíma­samn­ingum og sam­hliða verði unnið að mati á þeim kostum sem tækir eru, svo sem mark­aðsteng­ingu, sér­stöku afkomu­tengdu gjaldi eða öðrum leiðum, til að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sam­eig­in­legri auð­lind verði í eðli­legu hlut­falli við afrakstur veið­anna.“ Enginn tímara­mmi eða útfærsla á þess­ari vinnu er til­tekin.

Búvöru­samn­ingar til tíu ára voru und­ir­rit­aðir í febr­úar 2016 og sam­þykktir á Alþingi síð­ast­liðið haust. Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þeirra er 13-14 millj­arðar króna á ári. Samkvæmt samn­ingnum hafa bændur neit­un­ar­vald gagn­vart end­ur­skoðun samn­ing­anna, sem á að fara fram árið 2019. Þeir geta því hafnað end­ur­skoðun samn­ing­anna, kjósi þeir svo. Björt fram­tíð greiddi ein stjórn­mála­flokka í heild sinni atkvæði gegn samn­ing­unum. Í stjórn­ar­sátt­mál­anum eru engar koll­steypur í land­bún­aði. Þar segir að end­ur­skoðun búvöru­samn­ings verði grunnur að nýja sam­komu­lagi við bændur, sem miðað er við að ljúki eigi síðar en árið 2019. Þegar hefur verið skipuð nefnd til að ræða end­ur­skoð­un­ina en heim­ildir Kjarnans herma að hún verði end­ur­skipuð í kjöl­far þess að nýr maður tekur við sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu. Í yfir­lýs­ing­unni segir að af hálfu stjórn­valda verði „hvatt til að vægi almenn­ari stuðn­ings verði aukið, svo sem til jarð­ræktar, fjár­fest­ingar, nýsköp­unar, umhverf­is­verndar og nýlið­unar, en dregið úr sér­tækum búgreina­styrkjum. End­ur­skoða þarf ráð­stöfun inn­flutn­ings­kvóta og greina for­sendur fyrir frá­vikum frá sam­keppn­is­lögum fyrir mjólkur­iðn­að­inn og gera við­eig­andi breyt­ingar.“

Þar sem á að einkavæða

Nokkuð er fjallað um einka­væð­ingu ein­stakra þátta ákveð­inna mála­flokka í yfir­lýs­ing­unni. Þar segir meðal ann­ars, í umfjöllun um mennta­mál, að tryggja þurfti „jafn­ræði nem­enda og val­frelsi með því meðal ann­ars að styrkja fjöl­breytt rekstr­ar­form“ í mála­flokknum.

Og meiri einka­væð­ing er í far­vatn­inu innan mennta­kerf­is­ins því í yfir­lýs­ing­unni segir einnig að ríkið muni færa útgáfu náms­efnis í auknum mæli til sjálf­stæðra útgef­enda. Í dag er þorri útgáfu náms­efnis á hendi Mennta­stofn­unar, sem varð til við sam­ein­ingu Náms­gagna­stofn­unar og Náms­mats­stofn­unar á síð­asta kjör­tíma­bili. Það er þó stefnt að frek­ari nýt­ingu einka­að­ila á fleiri sviðum en bara í mennta­málum. Í sam­göngu­málum á að leita „fjöl­breytt­ari leiða til að fjár­magna sam­göngu­kerfið, meðal ann­ars með sam­starfs­fjár­mögnun þar sem það er hag­kvæmt.“

Þegar bankarnir verða einkavæddir verður lögð áhersla á að almenningur fái tiltekinn eignarhlut afhentan endurgjaldslaust.
Þegar bank­arnir verða einka­væddir verður lögð áhersla á að almenn­ingur fái til­tek­inn eign­ar­hlut afhentan end­ur­gjalds­laust.

Íslenska ríkið heldur enn á miklum eignum sem því áskotn­að­ist í kjöl­far samn­inga við kröfu­hafa föllnu bank­anna. Þar ber helst að nefna eign­ar­hlut rík­is­ins í íslenska banka­kerf­inu, en það á Íslands­banka og Lands­bank­ann nán­ast að fullu og 13 pró­sent hlut í Arion banka. Það er stefna nýrrar rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar að það sé ekki ákjós­an­legt til lengri tíma að ríkið fari með meiri­hluta­eign í við­skipta­bönkum til langs tíma. Því sé mik­il­vægt að selja hluta eignar rík­is­ins. Í því ferlið verður lögð áhersla á sem mesta dreif­ingu eign­ar­halds, meðal ann­ars með þvi að „almenn­ingur geti fengið til­tek­inn eign­ar­hlut afhentan end­ur­gjalds­laust.“

Það sem er óútfært og stefnt er að

Eitt þeirra atriða sem margar barna­fjöl­skyldur hafa horft til er hvernig ný rík­is­stjórn tekur á fæð­ing­ar­or­lofs­málum. Það kerfi sem hafði byggst upp á Íslandi í þeim mála­flokki hefur beðið mikla hnekki á síð­ustu árum og t.d. leitt af sér mun minni fæð­ing­ar­or­lofstöku feðra. Greiðslur úr sjóðnum hafa bæði lækkað og ekki fylgt verð­þróun í sam­fé­lag­inu. Í stjórn­ar­sátt­mál­anum er settur fram vilji til að hækka hámarks­fjár­hæðir fæð­ing­ar­or­lofs – sem í dag eru 500 þús­und krónur á mán­uði – í „öruggum skrefum“. Auk þess er sagt að vinna þurfi „mark­visst að því að tryggja börnum leik­skóla- eða dag­vist þegar fæð­ing­ar­or­lofi sleppir með sam­eig­in­legu átaki ríkis og sveit­ar­fé­laga.“ Hvorug þess­ara aðgerða er þó útfærð eða tíma­sett.

Í þeim kafla sem snýr að inn­flytj­endum og útlend­inga­málum kemur fram að stefnt verði að því taka á móti fleiri flótta­mönnum. Sú stefna er hins vegar ekk­ert útfærð né neinn fjöldi eða sér­stök aðferð­ar­fræði nefnd í því sam­hengi. Sömu sögu er að segja um veit­ingu atvinnu­leyfa fyrir fólk utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins, sem á að ein­falda. Í yfir­lýs­ing­unni segir að meta beri menntun þeirra sem flytj­ast til Íslands að verð­leikum og tryggt verði að „aðbún­aður geri landið eft­ir­sókn­ar­vert til fram­tíðar“.

Í lög­reglu­málum verður lögð áhersla á „fram­kvæmd aðgerða­á­ætl­unar um bætta verk­ferla vegna kyn­ferð­is­brota[...]Þolendum mansals verði veitt full­nægj­andi rétt­ar­vernd og stuðn­ingur. Til að draga úr end­ur­komu­tíðni í fang­elsi skal horft til betr­unar við stefnu­mótun í mála­flokknum.“ Rætt er um að gera aðgerð­ar­á­ætlun í loft­lags­málum sem verði í sam­ræmi við Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins sem feli í sér græna hvata, skóg­rækt, land­græðslu og orku­skipti í sam­göngum. Ekkert þess­ara atriða er útskýrt nánar og engar tíma­setn­ingar eru settar fram. Ríkið ætlar sér einnig að nýta sér betur sam­eig­in­leg inn­kaup til að draga úr útgjöldum þótt ekk­ert sé sagt um hvernig sú nýt­ing eigi að vera, og leggja áherslu á næstu árum á verk­efni sem „stuðla að sam­hæfðri stýr­ingu ferða­mála, áreið­an­legri gagna­öflun og rann­sóknum, nátt­úru­vernd, auk­inni arð­semi grein­ar­innar, dreif­ingu ferða­manna um land allt og skyn­sam­legri gjald­töku t.d. með bíla­stæða­gjöldum.“

Benedikt Jóhannesson, nú formaður Viðreisnar, talaði á fjöldafundum sem haldnir voru á Austurvelli til að mótmæla ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að halda ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um áfrahald viðræðna við Evrópusambandið.
Benedikt Jóhann­es­son, nú for­maður Við­reisnar, tal­aði á fjölda­fundum sem haldnir voru á Aust­ur­velli til að mót­mæla ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að halda ekki þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfra­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið.

Skatta­skjóls­mál hafa verið mikið til umræðu und­an­farna daga í kjöl­far þess að skýrsla um aflandseignir Íslend­inga var birt á föstu­dag, þremur mán­uðum eftir að hún var kynnt fyrir Bjarna Bene­dikts­syni sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mála­flokk­ur­inn hefur raunar verið drif­kraftur í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni allt frá því að Panama­skjölin opin­ber­uðu umfangs­miklar aflandseignir þekktra Íslend­inga, meðal ann­ars stjórn­mála­manna, og leiddi til afsagnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og boð­unar kosn­inga fyrr en til stóð. Ekki er mikið fjallað um þessi mál í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni og engar aðgerðir kynntar, t.d. til að end­ur­heimta fé sem skotið hefur verið undan skatti, sem áætlað hefur verið að hlaupi á tugum millj­arða króna. Í yfir­lýs­ing­unni segir ein­ungis: „Mark­visst verður unnið gegn skatt­und­anskotum, þar með talið í skatta­skjólum.“

....Og blessuð Evrópumálin

Ein heitasta kartaflan í stjórn­ar­sam­starfi flokk­anna þriggja eru Evr­ópu­mál. Viðreisn var bein­línis stofnuð utan um Evr­ópu­mál í kjöl­far þess að rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks dró aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu til baka í febr­úar 2014. Uppi­staðan í flokknum eru fyrr­ver­andi með­limir í Sjálf­stæð­is­flokknum sem töldu að Bjarni Bene­dikts­son hefði svikið lof­orð við þá um að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu áður en að umsóknin yrði dregin til baka. Bjarni bar fyrir sig að slíkt hefði verið „póli­tískur ómögu­leiki“. Björt fram­tíð hefur sömu­leiðis lagt mikla áherslu á að kosið verði um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, en flokk­ur­inn er fylgj­andi inn­göngu.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni eru Evr­ópu­málin afgreidd með þeim hætti að Alþingi muni taka afstöðu til þess hvort kosið verði eður ei um áfram­hald­andi við­ræður. Þar segir enn fremur að „stjórn­ar­flokk­arnir [eru] sam­mála um að greiða skuli atkvæði um málið og leiða það til lykta á Alþingi undir lok kjör­tíma­bils­ins. Stjórn­ar­flokk­arnir kunna að hafa ólíka afstöðu til máls­ins og virða það hver við annan.“ Það er því stað­fest í stjórn­ar­sátt­mála að allir flokk­arnir þrír eru sam­mála um að geyma atkvæða­greiðslu um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður að Evr­ópu­sam­band­inu til loka kjör­tíma­bils­ins, jafn­vel þótt hún myndi verða lögð fram á fyrsta starfs­degi Alþingis þann 24. jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....

Mest lesið undanfarið ár