Bjarni Benediktsson jafnar met Þorsteins Pálssonar

Það tók 74 daga að mynda rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber síð­ast­lið­inn. Það er jafn langur tími og það tók að mynda stjórn eftir kosn­ing­arnar 1987.

Ný ríkisstjórn kom saman á Bessastöðum á miðvikudag.
Ný rík­is­stjórn kom saman á Bessa­stöðum á mið­viku­dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sem tók við á mið­viku­dag er sú rík­is­stjórn sem lengstan tíma hefur tekið að mynda síð­ustu 60 árin í íslenskri stjórn­mála­sögu. Ráðu­neyti Bjarna varð til þegar 74 dagar voru liðnir frá kosn­ingum, rétt eins og ráðu­neyti Þor­steins Páls­sonar sem tók við 74 dögum eftir kosn­ing­arnar 1974.

Afar flókin staða blasti við þeim full­trúum sem náðu kjöri til Alþingis í haust­kosn­ing­unum 29. októ­ber síð­ast­lið­inn. Meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks hafði fallið og atkvæðin dreifst nokkuð jafnt, sam­an­borið við fyrri Alþing­is­kosn­ingar. Engir tveir flokkar gátu myndað meiri­hluta á þing­inu og ljóst var að þrjá eða fleiri flokka þurfti til. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var enn stærstur og bætti við sig tveimur þing­mönnum síðan í kosn­ingum 2013 og fékk Bjarni umboð til stjórn­ar­mynd­unar úr vasa Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta.

Bjarni ræddi fyrst við Benedikt Jóhann­es­son, for­mann Við­reisnar, og Óttarr Proppé, for­mann Bjartar fram­tíðar. Þeir Benedikt og Óttarr höfðu tekið höndum saman og gengið í eins­konar „stjórn­ar­mynd­un­ar­banda­lag“ eftir kosn­ing­arnar. Í þess­ari fyrstu til­raun til stjórn­ar­mynd­unar tókst Bjarna ekki að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn saman við banda­lag Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar.

Þá var komið að Vinstri grænum sem reyndu að leiða saman fimm flokka í rík­is­stjórn án árang­urs. Vinstri græn, Píratar, Viðreisn, Björt fram­tíð og Sam­fylk­ingin náðu ekki saman undir verk­stjórn Vinstri grænna og heldur ekki undir verk­stjórn Pírata. Guðni for­seti greip þá í annað sinn til þess ráðs að veita engum sér­stökum þing­flokki umboð til mynd­unar meiri­hluta. Bjarni, Benedikt og Óttarr fund­uðu þá á ný og úr verður eins manns meiri­hluti á Alþingi og rík­is­stjórn­ar­sam­starf undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar.

Þegar rúmur mán­uður var lið­inn frá kosn­ing­unum tók Kjarninn saman lengd stjórn­ar­mynd­un­ar­tíma­bila síð­ustu 60 árin og rakti helstu ástæður þess að myndun rík­is­stjórna hefur dreg­ist í gegnum tíð­ina.

Meira en tveir flokkar í fyrsta sinn í 28 ár

Síðan Davíð Oddsson varð for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks árið 1991 hafa aðeins tveggja flokka rík­is­stjórnir orðið til á Íslandi. Síðast varð til rík­is­stjórn fleiri flokka en tveggja á miðju kjör­tíma­bili árið 1989 þegar Stein­grímur Her­manns­son leiddi saman fjóra flokka (Fram­sókn­ar­flokkur, Alþýðu­banda­lagið, Alþýðu­flokkur og Borg­ara­flokkur). Í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins hafði Þor­steinn Pálsson, þá for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, myndað rík­is­stjórn þriggja flokka (Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Alþýðu­flokks) 74 dögum eftir kosn­ingar 1987. Rík­is­stjórn Þor­steins var ekki lang­líf og „sprakk í beinni útsend­ingu“ rúmu ári eftir að hún kom fyrst saman á rík­is­ráðs­fundi.

Lengd við­ræðna um stjórn­ar­myndun Fjöldi daga frá kjör­degi og þar til nýtt ráðu­neyti tekur við völdum á rík­is­ráðs­fundi. For­sæt­is­ráð­herrar nýrrar stjórnar eru merktir við.
Kosn­ingar Rík­is­ráðs­fundur Fjöldi daga For­sæt­is­ráð­herra
25. apríl 1987 8. júlí 1987 74 Þor­steinn Pálsson
29. októ­ber 2016 11. jan­úar 2017 74 Bjarni Bene­dikts­son
25. júní 1978 1. sept­em­ber 1978 68 Ólafur Jóhann­es­son
3. des­em­ber 1979 8. febr­úar 1980 67 Gunnar Thorodd­sen
30. júní 1974 28. ágúst 1974 59 Geir Hall­gríms­son
23. apríl 1983 26. maí 1983 33 Stein­grímur Her­mann­son
13. júní 1971 14. júlí 1971 31 Ólafur Jóhann­es­son
24. júní 1956 24. júlí 1956 30 Hermann Jónasson
27. apríl 2013 23. maí 2013 26 Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son
26. októ­ber 1959 20. nóv­em­ber 1959 25 Ólafur Thors
8. maí 1999 28. maí 1999 20 Davíð Oddsson
25. apríl 2009 10. maí 2009 15 Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir
8. apríl 1995 23. apríl 1995 15 Davíð Oddsson
10. maí 2003 23. maí 2003 13 Davíð Oddsson
12. maí 2007 24. maí 2007 12 Geir Haarde
20. apríl 1991 30. apríl 1991 10 Davíð Oddsson
  Meðaltal 36  
  Meðaltal síð­ustu 20 ára 17  

Það eru því um það bil 28 ár síðan rík­is­stjórn fleiri flokka en tveggja hefur verið mynduð á Íslandi. Síðan hafa setið ell­efu ráðu­neyti og sjö sinnum verið kosið. Davíð Oddsson stofn­aði fjögur ráðu­neyti, Geir Haarde og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir stofn­uðu tvö hvert og Fram­sókn­ar­menn­irnir Halldór Ásgríms­son, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son fóru fyrir einu hver.

Sé litið til síð­ustu 60 ára í íslenskri stjórn­mála­sögu sést að þriggja flokka rík­is­stjórnir halda að með­al­tali skemur en rík­is­stjórnir tveggja flokka. Sé aðeins horft á með­al­töl þá er með­al­líf­tími þriggja flokka stjórnar 2,4 ár en með­al­líf­tími tveggja flokka 2,8 ár. Það eru hins vegar dæmi um að þriggja flokka stjórn hafi haldið í meira en þrjú ár. Gunnar Thorodds­sen leiddi sína þriggja flokka rík­is­stjórn í 3,3 ár og fyrsta ráðu­neyti Ólafs Jóhann­es­sonar sat í 3,1 ár. Til sam­an­burðar þá hélt Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son í stjórn­ar­taumana í 2,9 ár.

Tíminn á auð­vitað eftir að leiða það í ljós hvort fyrsta ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar bæti þetta þriggja flokka met. Til gam­ans má geta að áður en ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar tók við á mið­viku­dag­inn hafði engin rík­is­stjórn orðið til í jan­úar. Rík­is­stjórnir hafa orðið til í öllum öðrum mán­uðum árs­ins.

Tveir flokkar síðan 1991

Síðan Ísland varð lýð­veldi árið 1944 hafa 18 ráðu­neyti verið mynduð með stuðn­ingi aðeins tveggja flokka. Ellefu þess­ara ráðu­neyta hafa verið mynduð síðan 1991. Hér er rétt að taka fram að jafn­vel þó að rík­is­stjórnir á Íslandi séu skil­greindar og taldar eftir því hver fór með for­sæt­is­ráðu­neytið hverju sinni þá segir það ekki alla sög­una. Davíð Oddsson mynd­aði til dæmis fjórum sinnum ráðu­neyti, þrisvar með stuðn­ingi sömu flokka. Það fæst hugs­an­lega betri mynd ef litið er á fjölda rík­is­stjórn­ar­sam­starfa síðan 1991.

Fjöldi sam­starfs­flokka um rík­is­stjórnir Hér sést hversu margir flokkar mynd­uðu rík­is­stjórnir hér á landi síðan Lýð­veldið Ísland var stofnað árið 1944 og hversu lengi þær sátu.
Ráðherra Dagar við völd Ár Stjórn­ar­myndun # flokkar
Ólafur Thors II 836 2.3 1944 3
Stefán Jóhann Stef­áns­son 1036 2.8 1947 3
Ólafur Thors III 98 0.3 1949 1
Stein­grímur Stein­þórs­son 1277 3.5 1950 2
Ólafur Thors IV 1109 3.0 1953 2
Hermann Jónasson 882 2.4 1956 3
Emil Jónsson 332 0.9 1958 1
Ólafur Thors V 1455 4.0 1959 2
Bjarni Bene­dikts­son 2430 6.7 1963 2
Jóhann Hafstein 369 1.0 1970 2
Ólafur Jóhann­es­son I 1141 3.1 1971 3
Geir Hall­gríms­son 1465 4.0 1974 2
Ólafur Jóhann­es­son II 409 1.1 1978 3
Benedikt Gröndal 116 0.3 1979 1
Gunnar Thorodds­sen 1203 3.3 1980 3
Stein­grímur Her­mann­son I 1504 4.1 1983 2
Þor­steinn Pálsson 448 1.2 1987 3
Stein­grímur Her­mann­son II 347 1.0 1988 3
Stein­grímur Her­mann­son III 597 1.6 1989 4
Davíð Oddsson I 1454 4.0 1991 2
Davíð Oddsson II 1496 4.1 1995 2
Davíð Oddsson III 1456 4.0 1999 2
Davíð Oddsson IV 481 1.3 2003 2
Halldór Ásgríms­son 638 1.7 2004 2
Geir Haarde I 343 0.9 2006 2
Geir Haarde II 619 1.7 2007 2
Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir I 98 0.3 2009 2
Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir II 1474 4.0 2009 2
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son 1050 2.9 2013 2
Sigurður Ingi Jóhanns­son 280 0.8 2016 2
Bjarni Bene­dikts­son, jr.
2017 3
Meðal daga­fjöldi 881
Meðal ára­fjöldi 2.41

Ef við gefum okkur að rík­is­stjórn­ar­sam­starfi sé sjálf­krafa lokið við kosn­ingar þá hafa orðið til sjö meiri­hluta­sam­störf með tveimur flokkum síðan 1991. Davíð Oddsson var for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins þrisvar sinnum sinnum frá 1995 til 2004 þegar hann gerð­ist utan­rík­is­ráð­herra og fól Halldóri Ásgríms­syni for­sæt­is­ráðu­neytið. Halldór sat í 638 daga þar til hann hætti í stjórn­málum og Geir Haarde varð for­sæt­is­ráð­herra í 343 daga. Á kjör­tíma­bil­inu 2003 til 2007 sátu þess vegna þrjár rík­is­stjórnir með stuðn­ingi sömu flokka.

Sé tekið til­lit til þess þá er líf­tími rík­is­stjórn­ar­sam­starfa síð­ustu 25 árin að með­al­tali 3,6 ár. Þar til árið 2007 var með­al­líf­tími sam­starf­anna 4,0 ár, eða jafn lengi og kjör­tíma­bil eru hér á landi. Hér eru tvö sam­störf sem draga með­al­talið niður. Eftir aðeins 619 daga baðst annað ráðu­neyti Geirs Haarde lausnar og minni­hluta­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna tók við og sat fram að kosn­ingum í apríl árið 2009. Þessir sömu flokkar mynd­uðu svo meiri­hluta sem sat í fjögur ár. Þá var kjör­tíma­bilið sem hófst 2013 stytt um um það bil hálft ár eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hrökkl­að­ist frá völdum í apríl 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár