Stjórnarsáttmálinn undirritaður í Gerðarsafni

Stjórn­ar­sátt­máli nýrrar rík­is­stjórnar verður und­ir­rit­aður í Gerð­ar­safni í Kópavogi klukkan 14:30 í dag. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu.

Á fund­inum munu Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar og Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, kynna efni stjórn­ar­sátt­mál­ans og svara spurn­ingum.

Stjórn­ar­sátt­mál­inn var sam­þykktur innan flokk­anna þriggja í gær­kvöldi. Um fjórð­ungur stjórnar Bjartrar fram­tíðar greiddi atkvæði gegn stjórn­ar­sátt­mál­anum.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans kemur fram í stjórn­ar­sátt­mála flokk­anna að pen­inga­stefnan verði end­ur­skoðuð og nið­ur­staða í þeirri vinnu liggi fyrir innan árs. Þá verða búvöru­samn­ingar end­ur­skoð­aðir og miðað við að það verði gert á næstu tveimur árum, eða fyrir lok árs 2019.

Þá stefnir rík­is­stjórnin að jafn­launa­vottun og verður hún lög­fest, og miðað þar við fyr­ir­tæki með 25 starfs­menn og fleiri. Í því felst rót­tækt breyt­ing sem á að miða að því að jafna út óút­skýrðan launa­mun kynj­anna á vinnu­mark­aði.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans verður unnið að því að koma á náms­styrkja­kerfi að nor­rænni fyr­ir­mynd. Þá verður horft til þess að breyta sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu. Í stað ótíma­bund­ins af­nota­rétt­ar auð­lind­ar­innar verður skoðað að taka upp leigu á afla­heim­ild­um til langs tíma, og þá horft til þess að afkomu­tengja breyt­ing­una eins og frekast er unnt, til að tryggja stöðugra rekstr­ar­um­hverf­i.

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum er síðan gert ráð fyrir að þingið muni ráða því hvort aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið eigi að halda áfram, og verður þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis lögð fram á síð­ari hluta kjör­tíma­bils­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár