36 dagar í fimmta sæti yfir lengstu stjórnlausu tímabilin

Liðnir eru 36 dagar frá kosn­ingum og engin rík­is­stjórn hefur verið mynduð. Þetta er fimmta lengsta „stjórn­lausa“ tíma­bilið á Íslandi.

Það er óvíst hvaða ríkisstjórn verður mynduð eftir síðustu Alþingiskosningar. Hér er ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar á ríkisráðsfundi. Hún starfar sem starfsstjórn þar til ný stjórn tekur við.
Það er óvíst hvaða rík­is­stjórn verður mynduð eftir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar. Hér er rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar á rík­is­ráðs­fundi. Hún starfar sem starfs­stjórn þar til ný stjórn tekur við. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ekki hefur tek­ist að mynda rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber síð­ast­lið­inn. Liðnir eru 36 dagar síðan kosn­ing­arnar voru sem er tvö­falt lengri tími en leið að jafn­aði frá kosn­ingum síð­ustu tvo ára­tugi.

Lengd stjórn­ar­mynd­un­ar­tíma­bils­ins nú er í fimmta sæti yfir lengstu tíma­bil eftir kosn­ingar og þar til rík­is­ráðs­fundur er hald­inn með nýrri rík­is­stjórn. Enn vantar 23 daga þar til tíma­bilið eftir kosn­ing­arnar í haust verður fjórða lengsta stjórn­ar­mynd­un­ar­tíma­bilið.

Sé litið til stjórn­ar­myndana síð­ustu 60 ára þá hefur það tekið nýja þing­menn að jafn­aði tekið 33 daga að mynda rík­is­stjórn eftir kosn­ingar. Lengsta slíka tíma­bilið var í aðdrag­anda fyrsta ráðu­neytis Þor­steins Páls­sonar en það liðu 74 dagar frá kosn­ingum 1987 og þar til hann gat myndað meiri­hluta­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum sínum, Fram­sókn­ar­flokki og Alþýðu­flokki.

Kosið var að vori árið 1987 og þá tap­aði rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks þing­meiri­hluta sínum. Rík­is­stjórn Þor­steins tók form­lega við á rík­is­ráðs­fundi í júlí þetta sama ár en hún varð ekki lang­líf heldur sprakk hún rúmu ári síðar. Stundum er þessi rík­is­stjórn kölluð „stjórnin sem sprakk í beinni útsend­ingu“.

Stjórnarkreppa 1978-1980

Í öðru sæti á þessum stjórn­ar­mynd­un­ar­lista er rík­is­stjórn Ólafs Jóhann­es­sonar árið 1978 sem tók 68 daga að setja saman. Þetta var upp­haf lengri stjórn­ar­kreppu sem átti ekki eftir að leys­ast fyrr en nærri tveimur árum seinna. Ólafur, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, náði þarna að setja flokk sinn við rík­i­s­tjórn­ar­borðið ásamt Alþýðu­banda­lag­inu og Alþýðu­flokknum. Það tók stjórn­mála­menn­ina allt sum­arið 1978 að mynda rík­is­stjórn því kosið var í júní og rík­is­stjórnin tók ekki við fyrr en á rík­is­ráðs­fundi 1. sept­em­ber.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var eftir kosn­ing­arnar 1978 minnstur flokka á Alþingi en þó með 12 þing­menn. Alþýðu­banda­lagið og Alþýðu­flokk­ur­inn höfðu 14 menn hvor og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 20. Rík­is­stjórn­ar­sam­starfið undir for­sæti Ólafs Jóhann­es­sonar sprakk hins vegar í októ­ber 1979 svo boðað var til kosn­inga og fóru þær fram 2. og 3. des­em­ber. Við­ræðu­tíma­bilið sem fór þá í hönd tók heila 67 daga eða þar til Gunnar Thorodd­sen, þing­maður klof­ins Sjálf­stæð­is­flokks, gat sett sinn arm þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins við rík­is­stjórn­ar­borðið ásamt Fram­sókn­ar­flokki og Alþýðu­banda­lagi.

Í báðum þessum kosn­ingum höfðu flokk­arnir mögu­leika á að mynda tvegggja flokka meiri­hluta­stjórn, ólíkt þeirri stöðu sem nú er uppi eftir kosn­ing­arnar 2016. Þá var það djúpur mál­efna­á­grein­ingur sem varð þess vald­andi að ekki tókst að mynda rík­is­stjórn með öllum Sjálf­stæð­is­flokknum.

Lengd við­ræðna um stjórn­ar­myndun Fjöldi daga frá kjör­degi og þar til nýtt ráðu­neyti tekur við völdum á rík­is­ráðs­fundi. For­sæt­is­ráð­herrar nýrrar stjórnar eru merktir við.
Kosn­ingar Rík­is­ráðs­fundur Fjöldi daga For­sæt­is­ráð­herra
25. April 1987 8. July 1987 74 Þor­steinn Pálsson
25. June 1978 1. Sept­em­ber 1978 68 Ólafur Jóhann­es­son
3. December 1979 8. February 1980 67 Gunnar Thorodd­sen
30. June 1974 28. August 1974 59 Geir Hall­gríms­son
29. October 2016 4. December 2016 36 ?
23. April 1983 26. May 1983 33 Stein­grímur Her­mann­son
13. June 1971 14. July 1971 31 Ólafur Jóhann­es­son
24. June 1956 24. July 1956 30 Hermann Jónasson
27. April 2013 23. May 2013 26 Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son
26. October 1959 20. November 1959 25 Ólafur Thors
8. May 1999 28. May 1999 20 Davíð Oddsson
25. April 2009 10. May 2009 15 Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir
8. April 1995 23. April 1995 15 Davíð Oddsson
10. May 2003 23. May 2003 13 Davíð Oddsson
12. May 2007 24. May 2007 12 Geir Haarde
20. April 1991 30. April 1991 10 Davíð Oddsson
  Meðaltal 33  
  Meðaltal síð­ustu 20 ára 17  
  Meðaltal síð­ustu 60 ára 34  

Davíð Oddsson var snöggur að þessu

Sé aðeins litið til síð­ustu tveggja ára­tuga eða svo sést að til­tölu­lega hratt hefur gengið að mynda rík­is­stjórnir hér á landi eftir síð­ustu sex Alþing­is­kosn­ingar. Athygli vekur að Davíð Oddsson var áber­andi sneggstur allra verð­andi for­sæt­is­ráð­herra að mynda rík­is­stjórn. Það liðu aðeins 10 dagar frá kosn­ingum og þar til Davíð lét mynda sig og fyrsta ráðu­neyti sitt árið 1991.

Davíð fór sem for­maður flokks­ins í þrjár aðrar Alþing­is­kosn­ingar. Eftir kosn­ing­arnar 1995 mynd­aði hann og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn rík­is­stjórn með Halldóri Ásgríms­syni og Fram­sókn­ar­flokknum. Þá liðu 15 dagar frá kosn­ingum þar til nýtt ráðu­neyti Davíðs tók við. Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur höfðu svo rík­is­stjórn­ar­sam­starf undir for­ystu Davíðs þar til um mitt kjör­tíma­bilið 2003-2007 þegar bæði Davíð og Halldór drógu sig í hlé frá stjórn­mál­unum.

Að gamni eru dag­arnir sem liðu frá kosn­ingum og þar til nýtt ráðu­neyti Davíðs tók við, jafn­vel þó rík­is­stjórn­ar­sam­starfið hafi verið það sama. Meðaltal Davíðs var 14,5 dagar sem er mun minna en þeir for­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem á undan honum voru.

Augljós úrslit

Árið 2007 var Geir Haarde orð­inn for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá Ólafi Ragnari Gríms­syni for­seta. Geir hringdi í Ingi­björgu Sólrúnu Gísla­dóttur, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, og hitt­ust þau á Þing­völlum til að ræða rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Sam­fylk­ingin hafði fengið góða kosn­ingu og hafði 18 þing­menn. Geir var líka fljótur að þessu og var búinn að láta mynda sig með sam­flokks­mönnum og fyrstu ráð­herrum Sam­fylk­ing­ar­innar 12 dögum eftir kosn­ingar.

Tveimur árum síðar – vorið 2009 í fyrstu kosn­ing­unum eftir efna­hags­hrunið – hlutu Sam­fylk­ingin og Vinstri græn sam­an­lagt meiri­hluta þing­manna. Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hafði starfað sem for­sæt­is­ráð­herra í minni­hluta­stjórn þess­ara flokka frá því að Geir Haarde baðst lausnar í lok jan­úar 2009. Eftir kosn­ing­arnar liðu 15 dagar frá kosn­ingum þar til Jóhanna tók við sínu öðru ráðu­neyti.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hlaut stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta Íslands eftir kosn­ing­arnar 2013. Fram­sókn­ar­flokkur Sig­mundar Davíðs hafði þá unnið mik­inn kosn­inga­sigur og bætt við sig fjölda þing­manna frá kosn­ing­unum fjórum árum áður. Vinstri flokk­unum var klár­lega hafnað og þess vegna lá í augum uppi að Fram­sókn­ar­menn og Sjálf­stæð­is­menn tækju höndum saman.

Í sum­ar­bú­stað Bjarna Bene­dikts­sonar var stjórn­ar­sátt­máli settur saman. Samn­inga­lotan var hins vegar nokkuð löng í þetta sinn og myndin af Sigmundi Davíð og ráðu­neyti hans var ekki tekin fyrr en 26 dögum eftir kosn­ingar. Það er einum degi lengra en það tók Ólaf Thors og Emil Jónsson að setja saman Við­reisn­ar­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Alþýðu­flokks sem sat árin 1959-1971.

Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við sem for­sæt­is­ráð­herra í þess­ari rík­is­stjórn eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var upp­vís af því að hafa átt félög í skatta­skjólum og sagði af sér í apríl á þessu ári. Það er einnig ástæða þess að kosið var 29. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár