Kosningar ekki ákveðnar fyrr en þing er hafið á ný

Engin dag­setn­ing fyrir kosn­ingar verður ákveðin fyrr en þing verður hafið á ný. Fram­sókn­ar­menn vilja ekki ákveða dag­setn­ingu fyrr en mál eru afgreidd. Frumvarp um afnám verð­trygg­ingar er vænt­an­legt. Sig­mundur Davíð ætlar að halda áfram.

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hefur ekki viljað ákveða tiltekna dagsetningu fyrir komandi kosningar þar til yfirsýn fæst um þá daga sem framundan eru á Alþingi í ágúst.
Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra hefur ekki viljað ákveða til­tekna dag­setn­ingu fyrir kom­andi kosn­ingar þar til yfir­sýn fæst um þá daga sem framundan eru á Alþingi í ágúst. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Engin dag­setn­ing verður ákveðin fyrir kom­andi kosn­ingar fyrr en Alþingi kemur saman á ný í ágúst og vinna verður hafin við þau mál sem þarf að afgreiða. Stór mál eins og búvöru­samn­ing­arnir, LÍN, afnám gjald­eyr­is­hafta og verð­trygg­ingar bíða þing­manna eftir sum­ar­frí og erfitt er að gera sér grein fyrir því hvernig þau munu vinn­ast. Rík­is­stjórnin mun leggja fram frum­varp um afnám verð­trygg­ingar fljót­lega eftir að þing kemur saman á ný. Þetta herma heim­ildir Kjarnans.

Áfram stefnt að kosningum í haust

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir stefna báðir að því að flýta kosn­ingum en menn eru tregir til þess að ákveða dag­setn­ingu þar sem afgreiðslu mála er for­gangs­raðað ofar. Með öðrum orðum; fyrst þarf að afgreiða þau mál sem þarf að klára, svo verður gengið til kosn­inga. Alþingi kemur saman á ný þann 15. ágúst og gerir dag­skráin ráð fyrir 13 þing­fund­ar­dögum, að Eld­hús­deg­inum með­töldum. Dag­setn­ingin 22. októ­ber hefur verið nefnd og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans stefna allir flokkar, að Fram­sókn­ar­flokk­inum und­an­skildum, að þeirri dag­setn­ingu. Þá ber að taka fram að Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur ítrekað sagst vilja kjósa í haust, þó að hann hafi ekki getað nefnt ákveðna dag­setn­ingu. Línan innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hall­ast mun meira í átt að kosn­ingum í októ­ber.

Línur að skýrast á listunum

Yfir tíu flokkar stefna að því að bjóða fram til Alþingis. Listar VG og Pírata í Norð­aust­ur­kjör­dæmi eru til­búnir, en víða verða líka haldin próf­kjör og hefur fjöldi fólks til­kynnt um fram­boð fyrir hina ýmsu flokka. Sem dæmi má nefna Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, aðstoð­ar­mann inn­an­rík­is­ráð­herra, Björn Val Gíslason, vara­for­mann VG, og Gunnar Hrafn Jónsson, frétta­mann á RÚV, og ætlar hann á lista fyrir Pírata.

Sviðið opið fyrir Lilju

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er að missa nokkra fyr­ir­ferð­ar­mikla þing­menn frá borði eftir þetta kjör­tíma­bil. Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, og Páll Jóhann Pálsson eru öll að hætta á þingi. Með þessu opn­ast sviðið fyrir Lilju Alfreðs­dóttur utan­rík­is­ráð­herra til að gefa kost á sér í odd­vita­sæti í Reykja­vík, en það er alls óvíst hvort hún láti af því verða.

Vigdís segir í við­tali við DV í dag að það sé mik­ill fengur fyrir flokk­inn að hafa fengið Lilju. Það þurfi engan snill­ing í mark­aðs­málum til að sjá að það væri best fyrir flokk­inn ef hún sjálf mundi leiða Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Lilja Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

„En ég mun auð­vitað ekki gefa kost á mér svo að hún gæti valið sitt kjör­dæmi ef hún hefur áhuga,“ segir Vigdís í DV.

Ekki lægra fylgi hjá Framsókn síðan í hruninu

Framsókn hefur verið að berj­ast í bökkum und­an­farin miss­eri og hefur fylgið hríð­fallið af flokknum í hverri skoð­ana­könn­un­inni á fætur annarri. Síðast í gær mæld­ist flokk­ur­inn í könnun MMR með 6,4 pró­senta fylgi og hefur það ekki verið eins lágt síðan í des­em­ber 2008. Flokk­ur­inn tap­aði fimm pró­sentu­stigum milli kann­anna.

Sigmundur heldur áfram

Kjör­dæma­sam­band Fram­sókn­ar­fé­lag­anna í Reykja­vík óskaði í vik­unni eftir fram­boðum á lista flokks­ins og á fólk að skila inn fram­boðum í síð­asta lagi föstu­dag­inn 12. ágúst. Til stendur að halda mið­stjórn­ar­fund hjá flokknum í ágúst, en á þeim fundi verður síðan boðað til flokks­þings og er hægt að gera það með til­tölu­lega skömmum fyr­ir­vara. Á flokks­þingi verður kosið um nýja for­ystu, en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, mun að öllum lík­indum gefa kost á sér þar til end­ur­kjörs sem for­maður.

Um þetta segir Vigdís í DV að ef Sig­mundur fer fram og geldur afhroð sé sú staða skýr, sem og ef hann vinni stór­sigur. Hún studdi Höskuld Þór­halls­son í for­manns­kjör­inu 2009. Þá segir hún líka að ef Lilja færi í for­manns­fram­boð og Sig­mundur hætti mundi hún styðja hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár