„Og allt í einu erum við í blóði“

Einn liður í lífs­bar­áttu bænda er blóð­sala, „sem við vissum ekki að væri glæpa­sam­koma fyrr en umræða sam­fé­lags­ins varð allt í einu á þá leið að þarna færu saman böðlar og bévít­ans glæpa­menn,“ segir blóð­bóndi á Suð­ur­landi.

Í myndbandi dýraverndunarsamtakanna mátti sjá hund glefsa í hross í gerði á bænum Lágafelli.
Í mynd­bandi dýra­vernd­un­ar­sam­tak­anna mátti sjá hund glefsa í hross í gerði á bænum Lága­felli. Mynd: Skjáskot

Myndefni sem tekið var af hundi að glefsa í hross og var meðal þess sem vakti óhug hjá þjóð­inni í mynd­bandi af illri með­ferð á blóð­merum í fyrra var klippt til og sam­sett og „ýkir mjög þá starf­semi sem við erum vön og þekkjum“.

Þetta segir Sæunn Þór­ar­ins­dóttir, hrossa­bóndi á bænum Lága­felli í Austur-Land­eyjum. Í mynd­band­inu hafi verið búið að klippa saman atvik sem áttu sér stað á bæ hennar á fleiri en einum degi „og allt í einu erum við í blóði,“ skrifar Sæunn í umsögn sinni um drög mat­væla­ráðu­neyt­is­ins að reglu­gerð um blóð­töku úr fyl­fullum hryssum.

[adspot]

Blóð­mera­hald hefur verið harð­lega gagn­rýnt eftir að mynd­bandið, sem þýsk dýra­vernd­un­ar­sam­tök unnu, var birt í nóv­em­ber í fyrra. Hluti myndefn­is­ins var tek­inn að Lága­felli, m.a. þegar hundur glefsar í hross og maður sést slá til ann­ars hests. Sæunn segir í umsögn sinni að hrossin hafi verið að „éta brauð sem við erum að henda til þeirra og hund­arnir í keppni að éta það upp líka“.

Þrengingar og bindingar

Hross eru lif­andi verur, skrifar hún, og fimm sinnum þyngri en venju­legur maður. „Það er því sitt­hvað sem gengur á ef að [hross] setja sig föst eða koma sér í vanda og þess vegna er mik­il­vægt að nýta allar mögu­legar leiðir – þreng­ingar og bind­ingar – til að tryggja að þau fari sér ekki að voða í svona blóð­töku. Það er ekki gert af grimmd eða illsku manna – heldur þeim til varnar og til að auð­velda bæði skepn­unni og mönn­unum starfið sem fram fer.“

Bændum þyki ýmis­legt annað „und­ar­legt“ í mynd­bandi dýra­vernd­un­ar­sam­tak­anna. Meðal ann­ars sú gagn­rýni að hundar séu látnir elta hrossin „og hanga í þeim“. Bendir hún máli sínu til stuðn­ings á nýlega frétt á RÚV um bónda á leið með fé sitt í sum­ar­haga. „Og á eftir fénu með mán­að­ar­gömul lömb hlupu Border Collie hundar og smöl­uðu fénu áfram af miklum móð og einmitt með glefsum ef ærnar og lömbin hik­uðu.“ Þetta segir hún „eitt­hvað sem bændur þurfi að hafa sér til aðstoðar við vinnu sína ef illa gengur“.

Yfirlýstur veganisti

Sæunn segir um reglu­gerð­ar­drögin, þar sem lagt er m.a. til að fækka þeim skiptum sem taka megi blóð úr hryssum á hverju ári úr átta í sex, að blóð­mera­hald sé unnið með leyfi Mat­væla­stofn­unar og undir eft­ir­liti „fær­ustu dýra­lækna“. Hún gagn­rýnir harð­lega dýra­vernd­un­ar­sam­tök, sem séu „sam­tín­ingur manna og kvenna sem hafa yfir­lýsta stefnu að koma í veg fyrir allt hús­dýra­hald og vilja predika í heim­inum um lífs­gæði græn­kera“. Mynd­bandið hafi átt að sýna að blóð­bændur væru dýra­níð­ingar en sú sem taki flest við­tölin í því sé „yfir­lýstur veganisti með það að mark­miði að koma öllum heims­ins dýrum í nauð til hjálpar“.

Bendir hún svo á son á bænum Lága­felli sem hafi lokið námi í Kvik­mynda­skóla Íslands og segi auð­velt að „láta tala yfir og breyta inn­taki mynd­ar­innar sem er upp­hafið að þessu öllu“. Gera fólkið „sem sagt er níð­ast á dýrum að bjarg­vættum þeirra og láta dýrin tala.“ Nefnir hún þetta til að sýna fram á að vel geti verið að þannig hafi mynd­band­inu verið breytt.

[links]

Blóð­mera­hald hefur verið stundað að Lága­felli í fjöru­tíu ár, skrifar Sæunn. Þar eru haldin tvö hrossa­stóð. Að hennar sögn eru ekki allar hryssur til þess fallnar að gefa blóð og árlega felli blóð­bændur stóran hóp af hryssum sem ekki nýt­ist til blóð­töku, bæði vegna skap­galla en einnig vegna þess að þær fram­leiða ekki það hormón sem Ísteka, fyr­ir­tækið sem kaupir og vinnur blóðið, þarf í frjó­sem­is­lyf sitt.

Ráfandi, drukknir menn

Sæunn segir blóð­hrossa­stóðin rekin heim að bæ marga daga á ári og að stöðugt eft­ir­lit sé haft með líðan dýr­anna og heilsu­fari. Hún gagn­rýnir m.a. höf­unda reglu­gerð­ar­drag­anna vegna boð­unar nýs ákvæðis um stærð stóðs sem koma megi til blóð­töku hverju sinni. Spyr hún hvort slíkar stærð­ar­tak­mark­anir eigi einnig að gilda um hross sem rekin eru af fjalli í réttir á haustin eða standi í gerðum við hesta­leigur. „Hve lengi mega þau hross standa úti við og í stressi í fjall­réttum – hross sem sann­ar­lega verða fyrir áfalli innan um hóp alla vega ein­stak­linga sem ráfa þar um drukknir jafn­vel í leit að hrossum með hávaða og köllum?“

Þá segir hún að í tamn­inga­stöðvum séu hross lokuð inni næstum allan sól­ar­hring­inn. Þann stutta tíma sem þau fái að vera utandyra séu þau í gerðum og stundum rekin áfram af hundum eða fjór­hjólum í svoköll­uðum „rekstr­ar­hringjum“. Upp komi valda­bar­átta meðal ókunn­ugra hrossa, ung­hrossa í bland við eldri, sem geti haft slæmar afleið­ingar. „Hryssur í blóð­stóði eru þó alla vega vanar saman og kunna sig og eru kurt­eisar í flestu,“ skrifar Sæunn.

Flestir bændur, sama hvaða búgrein þeir stunda, „eru af lífi og sál að reyna að lifa af sem bændur“. Blóð­mera­hald sé einnig mik­il­væg búgrein og að sjálf­sögðu reyni bændur að hagn­ast á því, rétt eins og aðrir sem reki fyr­ir­tæki.

Samkoma „böðla og bévítans glæpamanna“

„Bændur fella kýr, kálfa, ær og lömb, hross og folöld,“ skrifar Sæunn. Einn liður í bar­átt­unni við að lifa sé blóð­sala, „sem við sem bændur vissum bara ekki að væri glæpa­sam­koma fyrr en að umræða sam­fé­lags­ins varð allt í einu á þá leið að þarna færu saman böðlar og bévít­ans glæpa­menn; Ísteka, bændur og dýra­læknar lands­ins.“

Hún segir gott að yfir­fara og setja reglur en biður stjórn­völd að vara sig á því að þær verði íþyngj­andi fyrir blóð­bændur. Fyrst farið sé í þessa vinnu ætti að fjalla um allt hrossa­hald á land­inu, ekki aðeins blóð­mera­hald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Blóðmerahald

AfhjúpunBlóðmerahald

PMSG: „Hormón eymdar“ frá upp­hafi til enda

Lyf úr með­göngu­horm­óni fyl­fullra, íslenskra hryssa, hafa þær „óæski­legu auka­verk­anir“ að of margir grísir, stundum of stórir, oft smáir og veikl­aðir, fæð­ast gyltum á þýskum svína­búum. Blóð­takan hefur frá því í byrjun nóv­em­ber, eftir áminn­ingu frá ESA, verið felld undir reglu­gerð um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni. Það gæti breytt öllu, segja þýsku og sviss­nesku dýra­vernd­un­ar­sam­tökin sem rann­sakað hafa iðn­að­inn í fjögur ár.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár