Benedikt segir sig frá málum er varða uppreist æru

Fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, Benedikt Jóhann­es­son, er náskyldur Bene­dikti Sveins­syni, föður Bjarna Bene­dikts­sonar.

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar.
Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, hefur ákveðið að stíga til hliðar sem tals­maður flokks­ins í málum sem snúa að upp­reist æru. Frá þessu var greint í fréttum RÚV í gær­kvöldi, og var það Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, sem gerði það.

Ástæða þess að hann gerir þetta er mik­ill skyld­leiki við Benedikt Sveins­son, föður Bjarna Bene­dikts­sonar, en eins og kunn­ugt er skrif­aði hann með­mæla­bréf vegna umsóknar Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, dæmds barn­a­níð­ings, um að fá upp­reist æru.

Benedikt Jóhann­es­son og Benedikt Sveins­son eru systk­ina­synir.

Núver­andi for­sæt­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra, þau Bjarni Bene­dikts­son og Sig­ríður And­er­sen, geta ekki setið áfram á ráð­herra­stólum á meðan á rann­sókn máls­ins stend­ur, segir í ályktun ráð­gjafa­ráðs Við­reisnar sem birt­ist á vef flokks­ins eftir að blaðmanna­fundi Bjarna Bene­dikts­sonar lauk síð­degis í dag.

Ráð­gjafa­ráð Við­reisnar er skipað stjórn Við­reisn­ar, þing­flokkn­um, for­mönnum mál­efna­nefnda og stjórnum lands­hluta­ráða. Ráðið var kallað saman í gær. Í ljósi „þeirrar alvar­legu stöðu og trún­að­ar­brests sem kom­inn er upp,“ telur ráð­gjafa­ráðið far­sæl­ast fyrir þjóð­ina að þing sé rofið og gengið sé til kosn­inga að nýju.

Í álykt­un­inni segir einnig að Brynjar Níels­son, for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþing­is, verði að víkja sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár