Bjarni, Sigríður og Brynjar þurfa að víkja strax, telur Viðreisn

Ráð­gjafa­ráð Við­reisnar telur for­sæt­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra og for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar þurfa að víkja strax vegna trún­að­ar­brests.

Benedikt Jóhannesson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafa verið ráðherrar Viðreisnar í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar.
Benedikt Jóhann­es­son og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir hafa verið ráð­herrar Við­reisnar í rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Núver­andi for­sæt­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra, þau Bjarni Bene­dikts­son og Sigríður Andersen, geta ekki setið áfram á ráð­herra­stólum á meðan á rann­sókn máls­ins stendur, segir í ályktun ráð­gjafa­ráðs Við­reisnar sem birt­ist á vef flokks­ins eftir að blaðmanna­fundi Bjarna Bene­dikts­sonar lauk síð­degis í dag.

Ráð­gjafa­ráð Við­reisnar er skipað stjórn Við­reisnar, þing­flokknum, for­mönnum mál­efna­nefnda og stjórnum lands­hluta­ráða. Ráðið var kallað saman í dag. Í ljósi „þeirrar alvar­legu stöðu og trún­að­ar­brests sem kom­inn er upp,“ telur ráð­gjafa­ráðið far­sæl­ast fyrir þjóð­ina að þing sé rofið og gengið sé til kosn­inga að nýju.

Í álykt­un­inni segir einnig að Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, verði að víkja sæti.

„Vinnu­brögð ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins í mál­inu hafa ekki stað­ist þær kröfur sem Viðreisn gerir um vand­aða starfs­hætti og gegn­sæi. Upplýsa þarf að fullu um þá atburða­rás sem leiddi til þess trún­að­ar­brests sem orð­inn er,“ segir í álykt­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár