Umfangsmikil málamiðlun sem hver getur túlkað með sínu nefi

Stjórn­ar­sátt­máli rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur er 40 blað­síður og yfir 6.200 orð. Í honum eru sett fram nokkur mál og stefnur með skýrum hætti sem munu ein­kenna stjórn­ina, önnur sem eru loðn­ari í fram­setn­ingu og sum sem eru bein­línis óskilj­an­leg.

Stjórn­ar­sátt­máli nýrrar rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur ber þess merki að vera mála­miðlun þriggja flokka með mjög ólíkar áherslur. Þar af leið­andi er lítið um útfærðar aðgerðir eða skýrar stefnur í honum. Þess í stað er mik­ill texti í sátt­mál­anum sem hver flokkur fyrir sig sem á aðild að rík­is­stjórn­inni getur nýtt til að sýna að hann hafi náð helstu áherslum sínum fram. Þeim áherslum verður þó lík­ast til fyrst og fremst náð fram í gegnum þá ráð­herra­stóla sem hver flokkur fær í sinn hlut.

Í sátt­mál­anum er þó skýrt kveðið á um hvert meg­in­mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar sé. Þar stendur að „umfram allt er á kjör­tíma­bil­inu lögð áhersla á að við­halda efna­hags­legum stöð­ug­leika og að aðgerðir tengdar vinnu­mark­aði skili sér í raun­veru­legum kjara­bótum.“

Hægt er að lesa sátt­mál­ann hér.

Það sem er fast í hendi

Það sem er nokkuð skýrt varð­andi aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í heil­brigð­is­málum er að hún ætlar að hrinda geð­heil­brigð­is­á­ætlun til árs­ins 2020 í fram­kvæmd, draga úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga og ráð­ast í stór­sókn á upp­bygg­ingu hjúkr­un­ar­rýma. Tekið er fram í sátt­mál­anum að sú stór­sókn muni birt­ast í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar þegar hún verður tekin upp.

Í mennta­málum er minnst á að Ísland eigi að ná með­al­tali OECD-ríkj­anna er varðar fjár­mögnun háskóla­stigs­ins fyrir árið 2020 og Norð­ur­landa árið 2025. Í byggða­málum á að ljúka við ljós­leið­ing­ar­væð­ingu lands­ins árið 2020.

Ráðist verður í breyt­ingar á skatt­lagn­ingu á tón­list, fjöl­miðla og rit­máli og fyrsta skrefið þar verður að afnema virð­is­auka­skatt á bókum.

Þá verður stofn­aður sér­stakur Þjóð­ar­sjóður utan um arð af auð­lindum lands­ins og byrjað verður á því að láta arð af orku­auð­lindum renna þangað inn. „Hlutverk sjóðs­ins verður að byggja upp við­nám til að mæta fjár­hags­legum áföllum. Afmark­aður hluti ráð­stöf­un­ar­fjár sjóðs­ins verður not­aður til að efla nýsköpun og styðja við vöxt og þroska sprota­fyr­ir­tækja.“

Fjár­magnstekju­skattur verður hækk­aður upp í 22 pró­sent og sam­hliða verður skatt­stofn hans tek­inn til end­ur­skoð­unar.

Þá er kveðið á um að rík­is­stjórnin ætli, til að bæta alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni lands­ins, að end­ur­meta fyr­ir­komu­lag á end­ur­greiðslu kostn­aðar vegna rann­sókna og þró­unar í því skyni að afnema þak sem verið hefur á slíkum end­ur­greiðslum. Það þak er nú 300 til 450 millj­ónir króna á ári.

Áform síð­ustu rík­is­stjórnar um að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu verða lögð til hliðar og þess í stað verður kannað hvort leggja eigi á komu- eða brott­far­ar­gjald. Þá verður gistin­átta­gjald fært yfir til sveit­ar­fé­laga og því verður breytt þannig að það verði hlut­falls­legt.

Hækka á kolefn­is­gjald um 50 pró­sent strax og hækka það síðan áfram á næstu árum í takt við vænt­an­lega aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum. Stefnt er á að Ísland verði kolefn­is­hlut­laust í síð­asta lagi árið 2040 og að banni við notkun á svartolíu í íslenskri efna­hags­lög­sögu.

Þá verður frí­tekju­mark atvinnu­tekna aldr­aðra hækkað í 100 þús­und krónur strax um kom­andi ára­mót og gjald­skrá vegna tann­lækn­inga aldr­aðra og örorku­líf­eyr­is­þegar verður upp­færð.

Rík­is­stjórnin seg­ist vilja koma Íslandi í fremstu röð í mál­efnum hinsegin fólks með metn­að­ar­fullri lög­gjöf um kyn­rænt sjálf­ræði í sam­ræmi við nýút­komin til­mæli Evr­ópu­ráðs­ins vegna mann­rétt­inda inter­sex-fólks. „Í þeim lögum yrði kveðið á um að ein­stak­lingar megi sjálfir ákveða kyn sitt, kyn­vit­und þeirra njóti við­ur­kenn­ingar, ein­stak­lingar njóti lík­am­legrar frið­helgi og jafn­réttis fyrir lögum óháð kyn­hneigð, kyn­vit­und, kynein­kennum og kyntján­ingu.“

Rík­is­stjórnin ætlar að auka fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu á næstu árum og stefnir að því að þau verði 0,35 pró­sent af lands­fram­leiðslu eftir fimm ár. Þau hafa reyndar verið skammar­lega lág á und­an­förnum árum og fóru lægst í 0,2 pró­sent af lands­fram­leiðslu 2011 og 2012. Markmið Sam­ein­uðu þjóð­anna er að ríki greiði 0,7 pró­sent af lands­fram­leiðslu sinni til mála­flokks­ins og Ísland, eitt rík­asta land í heimi, verður því enn langt frá því mark­miði eftir fimm ár.

Það sem er loðið

Svo virð­ist vera sem mörg helstu hita­mál stjórn­mál­anna verði sett í þverpóli­tískar nefndir. Færa má rök fyrir því að það sé til marks um vilja til breyttra vinnu­bragða og þverpóli­tískrar sam­stöðu, en með því kemst hin nýja rík­is­stjórn líka hjá því að taka eig­in­lega afstöðu til mál­anna.

Á meðal þeirra mála sem beina á til þverpóli­tískra hópa er stofnun Mið­há­lend­is­þjóð­garðs, mótun nýsköp­un­ar­stefnu, þróun mæli­kvarða um hag­sæld og lífs­gæði, orku­stefna, stjórn­ar­skrá, fram­kvæmd og end­ur­skoðun útlend­inga­laga og fram­tíð­ar­nefnd um áskor­anir og tæki­færi vegna tækni­breyt­inga.

Þá verður rituð hvít­bók um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag fjár­mála­kerf­is­ins. Hún á síðan að vera lögð fram áður en stefnu­mark­andi ákvarð­anir verða teknar um fjár­mála­kerfið. Eign­ar­hald á kerf­is­lega mik­il­vægum fjár­mála­stofn­unum á að verða gagn­sætt og rík­is­stjórnin vill að unnið verði að frek­ari skil­virkni í fjár­mála­kerf­inu með það að leið­ar­ljósi að lækka kostnað neyt­enda. Ekkert af ofan­greindu er útfært eða skýrt nánar.

Rík­is­stjórnin ætlar að beita sér fyrir umbótum í hús­næð­is­málum „sem stuðla að efl­ingu og auknu jafn­vægi hús­næð­is­mark­aðar.“ Í sátt­mál­anum kemur fram að setja þurfi skýr­ari reglur um skamm­tíma­leigu hús­næðis og efla eft­ir­lit með henni, en ekk­ert er sagt um hvernig eða hvort það eigi að gera. Þá verði kann­aðar „for­sendur þess að sveit­ar­fé­lög hafi rík­ari heim­ildir til að stýra leigu­mark­aði.“

Í sátt­mál­anum er greint frá því að rík­is­stjórnin muni fara í „aðgerðir sem lækka þrösk­uld ungs fólks og tekju­lágra inn á hús­næð­is­mark­að­inn. Í því augna­miði verða stuðn­ings­kerfi hins opin­bera end­ur­skoðuð þannig að stuðn­ing­ur­inn nýt­ist fyrst og fremst þessum hópum. Meðal ann­ars verða skoð­aðir mögu­leikar á því að hægt verði að nýta líf­eyr­is­sparnað til þessa.“ Ekkert er fjallað um útfærslu á þessum mark­miðum.

Í byggð­ar­málakafl­anum er fjallað um að flutn­ings- og dreifi­kerfi raf­orku verði að mæta betur þörfum atvinnu­lífs og almenn­ings alls staðar á land­inu og að upp­bygg­ing kerf­is­ins geti stutt við áætl­anir um orku­skipti. Ekkert er hins vegar fjallað um hvernig það eigi að mæta þessum þörfum og mark­miðum.

Í sáttmálanum segirt að ríkisstjórnin muni taka „markviss skref á kjörtímabilinu til afnáms verðtryggingar á lánum“.
Í sátt­mál­anum seg­irt að rík­is­stjórnin muni taka „mark­viss skref á kjör­tíma­bil­inu til afnáms verð­trygg­ingar á lánum“.


Almenn­ings­sam­göngu- og flug­mála­hluti sátt­mál­ans er ákaf­lega rýr og loð­inn. Þar stendur: „Unnið verður að því að gera inn­an­lands­flug að hag­kvæm­ari kosti fyrir íbúa lands­byggð­anna. Áfram þarf að byggja upp almenn­ings­sam­göngur um land allt og stutt verður við borg­ar­línu í sam­starfi við Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“ Ekkert er rætt um til hvaða aðgerða þurfi að grípa til.

Í lög­gæslu- og fang­els­is­málum er lítið fjallað um útfærslu. Þess í stað segir að ljúka þurfi við gerð lög­gæslu­á­ætl­unar, tryggja Land­helg­is­gæsl­unni nægi­legt fjár­magn til að rækja starf sitt og „snúa þarf af braut harðra refs­inga fyrir neyslu fíkni­efna en styrkja aðgerðir gegn fíkni­efna­sölum, inn­flutn­ingi og fram­leiðslu fíkni­efna. Tryggja þarf fíklum við­un­andi með­ferð­ar­úr­ræði með sam­vinnu dóms-, félags- og heil­brigð­is­kerfis.

Þá á að inn­leiða „keðju­á­byrgð í ólíkum atvinnu­greinum, vinna gegn kyn­bundnum launa­mun, félags­legum und­ir­boðum, man­sali og kenni­tölu­flakki og efla vinnu­eft­ir­lit.“

Nefnd um end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unnar fær að ljúka störfum og „í kjöl­farið verða gerðar nauð­syn­legar breyt­ingar á ramma stefn­unnar.“

Rík­is­stjórnin leggur áherslu á jafn­rétti kynj­anna sam­kvæmt sátt­mál­anum. Meðal þess sem sett verður á dag­skrá í sam­tali stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins verður leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs og hækkun orlofs­greiðslna í fæð­ing­ar­or­lofi. Ekkert er fjallað um hver sú leng­ing eigi að verða, hver hækk­unin eigi að verða né hvenær ráð­ast eigi í þessar aðgerðir.

Umfjöllun um inn­flytj­endur, flótta­menn og hæl­is­leit­endur er af afar skornum skammti í sátt­mál­anum í ljósi þess hversu fyr­ir­ferða­mikil þau mál eru í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni og hversu miklar sam­fé­lags­breyt­ingar eru að verða vegna auk­ins straums inn­flytj­enda til lands­ins. Þar segir ein­fald­lega: „Aldrei hafa fleiri verið á flótta vegna stríðs­á­taka, ofsókna og umhverf­is­vár. Ísland mun leggja sitt af mörkum til lausnar á flótta­manna­vand­anum og taka á móti fleiri flótta­mönnum.“ Engar útfærslur eða tíma­línur fylgja þessum texta.

Þá er ótalið hvað eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja eigi að greiða fyrir nýt­ingu á þjóð­ar­auð­lind­inni. Í stjórn­ar­sátt­mál­anum segir: „Við end­ur­skoðun laga um veiði­gjöld þarf að hafa það meg­in­mark­mið að tryggja þjóð­inni rétt­látan hlut af arð­semi auð­lind­ar­innar og að þau taki til­lit til afkomu. Auð­linda­gjöld eiga ann­ars vegar að vera greiðsla fyrir aðgang að tak­mark­aðri auð­lind og hins vegar arð­greiðslur af nýt­ingu hennar.“

Það sem er óskiljanlegt

Alls er sátt­málin rúm­lega 6.200 orð og hann er settur fram á 40 blað­síðum, þótt sumar þeirra séu mynd­skreyt­ingar. Í honum er mikið af inni­halds­lausum og mjög almennum setn­ingum á borð við :„Lögð verður rík áhersla á að efla menntun í land­inu með hags­muni nem­enda og þjóð­ar­innar allrar að leið­ar­ljósi“, „Öflug lög­gæsla er ein af for­sendum þess að öryggi borg­ar­anna sé tryggt“, „Rík­is­stjórnin ætlar að beita sér fyrir umbótum í hús­næð­is­málum sem stuðla að efl­ingu og auknu jafn­vægi hús­næð­is­mark­aðar“, „Forsenda þess að land­bún­aður geti nýtt tæki­færi fram­tíð­ar­innar er jafn­vægi í fram­leiðslu, skil­virkt eft­ir­lit og nýsköpun“, „Rík­is­stjórnin mun full­vinna heil­brigð­is­stefnu fyrir Ísland með hlið­sjón af þörfum allra lands­manna“ og „Fjár­mála­kerfið á að vera traust og þjóna sam­fé­lag­inu á hag­kvæman og sann­gjarnan hátt.“

Allir flokk­arnir fá pláss fyrir sín gælu­verk­efni og geta þannig sagt sínum flokks­mönnum að þau hafi hlotið braut­ar­gengi, þótt ekk­ert sé um það getið hvernig eða hvenær eigi að ráð­ast í þau.

Þannig er til að mynda talað um að rík­is­stjórnin muni taka „mark­viss skref á kjör­tíma­bil­inu til afnáms verð­trygg­ingar á lánum“ og að hafin verði „ skoðun á því hvernig megi fjar­lægja fast­eigna­verð úr mæl­ingu neyslu­vísi­töl­unnar.“ Þetta er klár­lega inni í sátt­mál­anum að kröfu Fram­sókn­ar­flokks. Þess ber að geta að í tíð rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar var skipuð nefnd til að fjalla um afnám verð­trygg­ingar. Hún skil­aði skýrslu árið 2014. Verð­trygg­ing er enn til staðar og hefur ekki verið afnumin að neinu leyti.

Þar er einnig fjallað um að „skatt­rann­sóknir verða efldar sam­hliða því að vinna með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins að ábyrg­ari vinnu­mark­aði.“ Þar er verið að mæta kosn­inga­lof­orði Vinstri grænna um að „stór­efla skatta­eft­ir­lit og skatt­rann­sóknir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár