Guðrún Hafsteinsdóttir vill leiða Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi

Þrjú munu berj­ast um odd­vita­sætið hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í Suð­ur­kjör­dæmi. Guðrún Haf­steins­dóttir bætt­ist í hóp­inn í dag. Hún seg­ist hafa fengið mikla hvatn­ingu til að bjóða sig fram síð­ustu vikur og mán­uði.

Guðrún Hafsteinsdóttir
Guðrún Haf­steins­dóttir Mynd: Samtök iðnaðarins

Guðrún Haf­steins­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins og mark­aðs­stjóri Kjörís, sæk­ist eftir því að verða odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi í næstu þing­kosn­ingum, sem fara fram í sept­em­ber á þessu ári. Frá þessu greindi hún í til­kynn­ingu í kvöld.

Guðrún mun etja kappi við núver­andi odd­vita, Pál Magn­ús­son, og Vilhjálm Árnason, sitj­andi þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks, um odd­vita­sætið. Ásmundur Frið­riks­son, annar maður á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu, sæk­ist áfram eftir öðru sæt­inu.

Í til­kynn­ingu Guðrúnar segir að hún hafi síð­ustu vikur og mán­uði fengið mikla hvatn­ingu til að bjóða sig fram í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­manna í kjör­dæm­inu sem fram fer 29. maí. Það geri hún vegna þess að hún vilji hafa áhrif á þróun sam­fé­lags­ins. „Suð­ur­kjör­dæmi býr yfir miklum tæki­færum sem brýnt er að efla. Ég er til­búin að taka þátt í þeirri vinnu og tel að reynsla mín og þekk­ing muni nýt­ast vel.Í Suð­ur­kjör­dæmi er iðandi og gott mann­líf og hér höfum við allt sem þarf til að vera leið­andi á öllum sviðum atvinnu­lífs. Ég trúi því að saman getum við eflt und­ir­stöðu atvinnu­greinar okkar og bætt lífs­kjör okkar sem ​hér búum og störfum.

[adspot]Guðrún er með stúd­ents­próf frá Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­lands, B.A gráðu í mann­fræði frá HÍ 2008 og hefur lokið diplóma námi í jafn­rétt­is­fræðum frá HÍ. Hún hefur starfað nær allan sinn starfs­feril hjá fyr­ir­tæki fjöl­skyld­unnar Kjörís ehf. í Hvera­gerði.

Guðrún hefur setið í bæði fræðslu­nefnd og skipu­lags- og umhverf­is­nefnd Hvera­gerð­is­bæjar sem full­trúi D-list­ans og þá á hún sæti í sókn­ar­nefnd Hvera­gerð­is­kirkju. Árið 2004 stofn­aði hún Sund­deild Íþrótta­fé­lags­ins Hamars og var for­maður deild­ar­innar til 2014.

Síð­ast­lið­inn ára­tug hefur Guðrún setið í stjórnum margra fyr­ir­tækja og félaga. Hún var kjörin for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins árið 2014 og var þar for­maður til 2020. Þá hefur hún einnig átt sæti í stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins, Háskóla Reykja­víkur, Bláa Lónsins og Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár