Landsframleiðsla gæti dregist saman um 530 milljarða ef höggið verður „mjög þungt“

Við­skipta­ráð og Samtök atvinnu­lífs­ins hafa látið vinna sviðs­myndir um stöðu efna­hags­mála sem eru mun svart­sýnni en þær sem Seðla­bank­inn og stjórn­völd hafa birt. Sam­drátt­ur­inn í ár gæti orðið allt að 18 pró­sent.

Ekki er reiknað með því að margir ferðamenn, ef einhverjir, komi til Íslands það sem eftir lifir ársins 2020.
Ekki er reiknað með því að margir ferða­menn, ef ein­hverjir, komi til Íslands það sem eftir lifir árs­ins 2020. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­dráttur í lands­fram­leiðslu á Íslandi gæti orðið allt að 18 pró­sent í ár sam­kvæmt sviðs­mynda­grein­ingu sem Við­skipta­ráð og Samtök atvinnu­lífs­ins hafa unnið. Þar er um að ræða svart­sýn­ustu sviðs­mynd­ina sem teiknuð er upp, og miðar við að hag­kerfið verði fyrir „mjög þungu höggi“. Umreiknað í millj­arða króna myndi það þýða að lands­fram­leiðsla myndi drag­ast saman um 530 millj­arða króna á þessu ári. Ef þessi versta sviðs­mynd yrði að veru­leika myndi atvinnu­leysi á árinu 2020 verða 13 pró­sent.

Í grunn­s­viðs­mynd þeirra, sem gerir ráð fyrir „miklu höggi“, er gert ráð fyrir að sam­drátt­ur­inn verði 13 pró­sent, að atvinnu­leysi verði tíu pró­sent að jafn­aði á árinu og að hall­inn á rík­is­sjóði verði 330 millj­arðar króna á árinu 2020.

Í bjart­sýn­ustu sviðs­mynd­inni, sem gerir ein­ungis ráð fyrir „tals­verðu höggi“, er gengið út frá því að lands­fram­leiðsla drag­ist saman um átta pró­sent í ár og að atvinnu­leysið verði að með­al­tali sjö pró­sent. Miðað við þá sviðs­mynd myndi íslenska hag­kerfið fá 222 millj­örðum krónum minna fyrir vörur og þjón­ustu sem það fram­leiðir í ár en það fékk í fyrra.

Mun dekkri en opinberu sviðsmyndirnar

Miðað við tveggja pró­senta árlegan hag­vöxt í kjöl­far krepp­unnar mun það taka fjögur til tíu ára að vinna upp fram­leiðslutapið sem Ísland verður fyrir. Ef hag­vöxt­ur­inn í fram­hald­inu yrði fimm pró­sent tæki það Ísland tvö til fjögur ár að kom­ast á sama stað og við vorum árið 2019.

Sviðs­myndir Við­skipta­ráðs og Samtaka atvinnu­lífs­ins eru mun dekkri en þær grein­ingar sem Seðla­banki Íslands, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafa birt um stöðu hag­kerf­is­ins. Síðasta birta grein­ing Seðla­bank­ans, sem birt var í apríl, gerði í versta falli ráð fyrir um sex pró­sent sam­drætti á árinu. [adspot]Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur reiknað með um sjö pró­senta sam­drætti. Greining fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem unnin var 20. apríl, var dekkst þeirra allra og skil­aði þeirri nið­ur­stöðu að hag­kerfið gæti dreg­ist saman um níu pró­sent í ár, eða aðeins meira en jákvæð­asta sviðs­mynd Við­skipta­ráðs og Samtaka atvinnu­lífs­ins gerir ráð fyrir.

Fátt bendir til ferðavilja

Í inn­gangi grein­ingar Við­skipta­ráðs og Samtaka atvinnu­lífs­ins segir að myndin af efna­hags­legum áhrifum COVID-19 far­ald­urs­ins séu smátt og smátt að skýr­ast. „Sú mynd er dökk og hefur almennt versnað eftir því sem hag­tölur inn­an­lands og erlendis birt­ast. Full­komin óvissa ríkir einnig um hvenær erlendir ferða­menn snúa aftur til lands­ins.“

Þar segir enn fremur að óvissan um fram­haldið sé mikil um þessar mundir og að dekkstu sviðs­myndir séu mögu­legar. Framundan sé einn versti sam­dráttur í íslenskri hag­sögu.

Það er meðal ann­ars grund­vallað á því að fá ríki séu útsett­ari fyrir áfalli í ferða­þjón­ustu eins og Ísland. „Stjórn­völd hafa hins vegar lítið svig­rúm til við­bótar, við blasir einn mesti halla­rekstur rík­is­sjóðs í a.m.k. 40 ár. Seðla­bank­inn hefur hins vegar enn svig­rúm til að þoka stýri­vöxtum áfram niður líkt og önnur vest­ræn ríki hafa gert.“

Grunn­s­viðs­myndin gerir ráð fyrir að ferða­þjón­ustan nái sér ekki á strik það sem eftir lifir árs en sú svart­sýnni að það muni taka enn lengri tíma og að engir ferða­menn komi til Íslands það sem eftir lifir árs­ins 2020. Í grein­ing­unni kemur fram að tíð­indi gær­dags­ins um til­slak­anir á komum ferða­manna til lands­ins, sem í fel­ast að þeir geti farið í sýna­töku til að sleppa við sótt­kví, breyti ekki stóru mynd­inni.

Í grein­ing­unni er meðal ann­ars vísað í kann­anir sem gerðar hafa verið á ferða­vilja almenn­ings. Í könnun sem banda­ríska frétta­stofa CBS News lét gera kom fram að 85 pró­sent aðspurðra myndu ekki telja sig vera örugga um að fara í flug­vél ef útgöngu­hömlum yrði aflétt. Í könnun sem UN World Tourism Organization gerði á heims­vísu reikn­uðu 34 pró­sent aðspurðra að eft­ir­spurn erlendra ferða­manna myndi taka við sér í októ­ber til des­em­ber 2020. Í sömu könnun sögðu 39 pró­sent svar­enda að það myndi taka fram á árið 2021.

Telja ár eftir hið minnsta

Þessi staða rímar við það sem kom fram í könnun sem Maskína gerði fyrir Samtök atvinnu­lífs­ins meðal for­svars­manna aðild­ar­fyr­ir­tækja sam­tak­anna, og birt var í gær. Á meðal nið­ur­staðna þar voru að meiri­hluti fyr­ir­tækja í land­inu telja að kreppan vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 muni standa í allt eitt ár hið minnsta. Alls segj­ast 30 pró­sent for­svars­manna aðild­ar­fyr­ir­tækja Sam­taka atvinnu­lífs­ins að þeir telji að hún muni standa lengur en það en 25 pró­sent þeirra telja að hún muni standa í allt að eitt ár.

[adspot]Ein­ungis einn af hverjum fimm telja að kreppan gangi yfir á skemur en fjórum mán­uð­um. Að jafn­aði er búist við að kreppan standi yfir í tólf mán­uði.

Á meðal ann­arra nið­ur­staðna sem könn­unin leiddi fram eru að 70 pró­sent fyr­ir­tækj­anna sem hún náði til hafa urðu fyrir tekju­missi í apr­íl­mán­uði. Þrjú af hverjum fjórum fyr­ir­tækjum hafa gripið til ein­hverra aðgerða til að bregð­ast við þess­ari stöðu. Í þeim hefur til að mynda falist að lækka starfs­hlut­fall eða stytta opn­un­ar­tíma.

Fjórð­ungur þeirra hefur þegar sagt upp starfs­fólki vegna ástands­ins og í ferða­þjón­ustu­geir­an­um, sem hefur farið verst út úr stöð­unni, hefur tæp­lega helm­ingur fyr­ir­tækja gripið til upp­sagna.

Rúm­lega 40 þús­und starfs­menn starfa hjá fyr­ir­tækj­unum sem svör­uðu könn­un­inni. Upp­sagnir náðu til rúm­lega þrjú pró­sent starfs­manna þeirra. Það svarar til um 5.600 upp­sagna í við­skipta­hag­kerf­inu í heild.

Miðað við svörin sem feng­ust er fyr­ir­liggj­andi að önnur eins bylgja af upp­sögnum sé framundan. Rúm­lega 20 pró­sent fyr­ir­tækja áforma frek­ari upp­sagnir og SA áætlar að þær muni ná til um 5.500 manns. Lang­flestar upp­sagn­irnar verða hjá fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ust­u.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár