Tíu hlutir sem hægt væri að gera fyrir kostnað vegna eftirlauna ráðherra og þingmanna

257 fyrr­ver­andi þing­menn og 46 fyrr­ver­andi ráð­herrar fá eft­ir­laun á grund­velli umdeildra eft­ir­launa­laga sem voru í gildi á árunum 2003 til 2009. Alls kost­aði þetta 876 millj­ónir króna í fyrra. Hér eru tíu hlutir sem hægt væri að gera fyrir það fé á ári.

Ráðherrar þeirrar ríkisstjórnarinnar sem sat að völdum þegar eftirlaunalögin voru samþykkt.
Ráðherrar þeirrar ríkis­stjórnar­innar sem sat að völdum þegar eft­ir­launalögin voru sam­þykkt.

Árið 2003 voru sam­þykkt afar umdeild lög um aukin eft­ir­laun helstu ráða­manna þjóð­ar­innar, sem skyldu vera greidd beint úr rík­is­sjóði.

[links]Í grein­ar­gerð sem fylgdi frum­varpi þeirra sagði meðal ann­ars að það væri „lýð­ræð­is­­­leg nauð­­­syn að svo sé búið að þessum emb­ættum og störfum að það hvetji til þátt­­­töku í stjórn­­­­­málum og að þeir sem verja meg­in­hluta starfsævi sinnar til stjórn­­­­­mála­­­starfa á opin­berum vett­vangi og gegna þar trún­­­að­­­ar- og for­ust­u­­­störfum geti dregið sig í hlé og vikið fyrir yngra fólki án þess að hætta fjár­­­hags­­­legri afkomu sinn­i.“

Lög­­­in voru afnumin með lögum 25. apríl 2009 en alls 257 fyrr­ver­andi þing­­menn eða vara­­þing­­menn og 46 fyrr­ver­andi ráð­herrar fengu þó greidd eft­ir­laun á grund­velli þeirra í fyrra. Samtals var kostn­aður vegna þessa 875,9 millj­ónir króna. Hægt er að lesa ítar­lega umfjöllun Kjarnans um málið hér.

Hér eru tíu aðrir hlutir sem hægt hefði verið að gera fyrir það fé.

1. Borga laun allra ráðherra og aðstoðarmanna þeirra

Rekstur rík­­is­­stjórnar Íslands, sem í fel­­ast launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­­ar­­manna þeirra, er áætl­­aður 715 millj­ónir króna á þessu sam­kvæmt fjár­lögum. Það er um fimm pró­sent meiri kostn­aður en áætlun vegna árs­ins 2021 gerir ráð fyr­ir, en þá átti rekst­ur­inn að kosta 681 millj­ónir króna.

Ráð­herrum var fjölgað í tólf þegar stjórn­ar­sam­starfið var end­ur­nýjað og aðstoð­ar­menn­irnir sem nú má ráða geta orðið allt að 27. Reynsla síð­ustu ára sýnir að rík­is­stjórnin full­nýtir vana­lega heim­ild sína til að ráða aðstoð­ar­menn. Hægt væri að greiða allan ofan­greindan kostnað við rekstur starf­andi rík­is­stjórnar á ári og eiga 161 millj­ónir króna eftir.

2. Tvöfalda framlög til fjölmiðla og eiga samt afgang

Í fyrra var ákveðið að þeir einka­reknu fjöl­miðlar sem sinna frétta­þjón­ustu og upp­fylla ákveðin skil­yrði gætu fengið hluta af rekstr­ar­kostn­aði sínum end­ur­greiddan. Þetta var gert til að reyna að mæta sífellt versn­andi rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla sem hefur meðal ann­ars leitt til þess að starf­andi í geir­anum fækk­aði um 45 pró­sent milli áranna 2018 og 2022. Þetta fyr­ir­komu­lag var sam­þykkt til tveggja ára og rennur því út eftir yfir­stand­andi ár. Áætlað er að um 390 millj­ónir króna skipt­ist á milli allra fjöl­miðla lands­ins sem sækja um end­ur­greiðslur í ár. Hægt væri að tvö­falda þann pott fyrir eft­ir­launa­greiðslur ráð­herra og þing­manna og eiga samt um 96 millj­ónir króna eftir.

3. Greiða bændum árlegan styrk vegna þess að áburðarverð er hátt

Á milli umræðna um fjár­laga­frum­varp árs­ins 2022 ákváðu þing­menn stjórn­ar­flokk­anna að ráð­stafa 700 millj­ónum króna úr rík­is­sjóði til stuðn­ings bændum vegna hækk­unar áburð­ar­verðs í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins. Hægt væri að greiða alla þá upp­hæð og eiga 176 millj­ónir króna eftir fyrir árlegan kostn­að­inn sem hlaust af því hafa hin umdeildu eft­ir­launa­lög í gildi í sex ár.

4. Borga rekstrarkostnað allra stjórnmálaflokka

Þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á þessu ári. Það er saman upp­hæð og þeir fengu í fyrra og árið þar á undan. Flestir flokk­anna skila mynda­legum hagn­aði á hverju ári og því ljóst að þessir pen­ingar duga vel rúm­lega fyrir almennum rekstr­ar­kostn­aði sem þeir telja að þeir þurfi að leggja út fyrir.

Hægt væri að borga fyrir til­veru þess­ara níu flokka á hverju ári fyrir eft­ir­launa­pen­ing­inn og eiga samt sem áður 148 millj­ónir króna eftir til ann­arra verka.

5. Tvöfalda listamannalaun

Fyrr i þessum mán­uði var lista­manna­launum úthlutað. Um er að ræða 1.600 mán­að­ar­launum til þeirra sem starfa við hönnun, mynd­list, skriftir, sviðs­listir eða tón­list. Alls fengu 236 lista­menn úthlutun en hver mán­að­ar­laun eru 490.920 krónur og er um verk­taka­greiðslur að ræða. Einungis brot af þeim sem sækja um launin fá þau og enn færri fá þau í heilt ár.

[adspot]Heild­ar­kostn­aður við lista­manna­laun á þessu ári er 786 millj­ónir króna. Það væri því hægt að greiða þau öll fyrir þá upp­hæð sem fer í eft­ir­laun ráð­herra og þing­manna á grund­velli gömlu eft­ir­launa­lag­anna og eiga afgang upp á 90 millj­ónir króna.

6. Greiða nánast allan kostnað ríkisins af almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu

Samkvæmt sam­komu­lagi sem und­ir­ritað var árið 2012 milli ríkis og sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu skuld­batt rík­is­sjóður sig til að greiða 900 millj­ónir króna á ári til að efla almenn­ings­sam­göngur á svæð­inu í ára­tug. Hægt væri að dekka 97,3 pró­sent þess kostn­aðar með árlegum eft­ir­launa­greiðslum.

7. Niðurgreiða sálfræðiþjónustu

Í breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varp árs­ins 2022 sem þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar í fjár­laga­nefnd lögðu fram var kallað eftir 900 millj­ónum króna fram­lagi til að fjár­magna þegar sam­þykkta þings­á­lyktun um sál­fræði­þjón­ustu. Að lok­inni ann­ari umræðu um fjár­lög síð­asta árs var sam­þykkt sér­stakt 150 millj­óna króna fram­lag sem ætlað var að fjár­magna nið­ur­greiðslu á sál­fræði­þjón­ustu í kjöl­far samn­inga sem Sjúkra­trygg­ingar Íslands munu gera á árinu 2022. Hægt hefði verið að mæta fjár­magna hina sam­þykktu þings­á­lykt­un­ar­til­lögu nán­ast að öllu leyti með þeim fjár­munum sem renna úr rík­is­sjóði til að fjár­magna eft­ir­laun ráð­herra og þing­manna.

8. Hækka frítekjumark atvinnutekna enn frekar

Á fjár­lögum yfir­stand­andi árs var ákveðið að setja 540 millj­ónir króna í að tvö­falda frí­tekju­mark atvinnu­tekna hjá elli­líf­eyr­is­þegum úr 100 þús­und í 200 þús­und krónur. Aðgerðin gagn­ast reynd­ast aðeins 1.279 manns, að uppi­stöðu þeim elli­líf­eyr­is­þegum sem hafa mestar tekjur. Þessi upp­hæð er tæp­lega 62 pró­sent af því sem fer í að greiða ráð­herrum og þing­mönnum eft­ir­laun úr rík­is­sjóði sam­kvæmt eft­ir­launa­lög­unum sem voru í gildi 2003 til 2009.

9. Byggja nýjan þjóðarleikvang fyrir inniíþróttir

Lengi hefur verið kallað eftir nýjum þjóð­ar­leik­vangi fyrir inni­í­þróttir á Íslandi þar sem fyrir liggur að Laug­ar­dals­höllin stenst ekki alþjóð­legar kröfur og gólf­flötur hennar er ónýt­ur. Fyrir vikið neydd­ist til að mynda körfu­boltalands­lið Íslands nýverið til að spila heima­leik við Rúss­land þar frekar en hér. Ef íslenska hand­boltalands­liðið heldur áfram að gera góða hluti á EM í Ung­verja­landi, sem nú stendur yfir, mun kór­inn sem kallar á nýja höll án vafa stækka veru­lega. Kostn­aður við nýjan þjóð­ar­leik­vang fyrir inni­í­þróttir er áætl­aður á bil­inu 7,9 til 8,7 millj­arðar króna sam­kvæmt skýrslu sem var birt árið 2020. Tíu millj­ónir króna verða settar í und­ir­bún­ing á verk­efn­inu í ár, eða tæp­lega 1/90 þess sem eft­ir­laun ráð­herra og þing­manna eru á ári. Raunar má benda á að sá ráð­herra sem þiggur hæstu eft­ir­launin, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herr­ann Davíð Oddsson, fær hærri upp­hæð í eft­ir­launa­greiðslu á innan við hálfu ári en sett var í íþrótta­höll árið 2022.

10. Meira en tvöfalda desemberuppbót atvinnulausra

Þann 8. des­em­ber í fyrra und­ir­rit­aði Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, reglu­gerð um greiðslu des­em­ber­upp­bótar til atvinnu­leit­enda. Óskert des­em­ber­upp­bót var 92.229 krónur en hún stóð ein­ungis þeim sem höfðu verið atvinnu­lausir í að minnsta kosti tíu mán­uði, sem var minni­hluti þeirra rúm­lega tíu þús­und manns sem voru atvinnu­lausir í lok síð­asta árs. Þeir sem höfðu verið án atvinnu í skemmri tíma skert­ust í sam­ræmi við það niður að 23.057 krónur, sem var lág­marks­upp­bót. Auk þess var greidd lítil við­bót ef við­kom­andi þiggj­andi átti barn. Samkvæmt útreikn­ingum grein­ing­ar­deildar Kjarnans er kostn­að­ur­inn við þessa aðgerð á milli 500 til 600 millj­ónir króna. Það væri því hægt að tvö­falda des­em­ber­upp­bót atvinnu­leit­enda og eiga samt nokkur hund­ruð millj­ónir króna í afgang fyrir það fé sem fer í eft­ir­launin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár