Meirihluti fjárlaganefndar, sem samanstendur af fulltrúum stjórnarflokkanna þriggja í nefndinni, hefur lagt til að 700 milljónir króna verði greiddar úr ríkissjóði til stuðnings bændum vegna hækkunar áburðarverðs í kjölfar heimsfaraldursins. Greiða á fjármunina í gegnum búvörusamninga.
Í nefndaráliti meirihluta nefndarmanna úr Vinstri grænum, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki um fjárlagafrumvarpið fyrir aðra umræðu er gert grein fyrir breytingartillögu þess efnis.
Þar segir að tillagan byggi á upplýsingum um fyrirséðar verðhækkanir á áburði. „Áburðarvísitala Alþjóðabankans hefur hækkað um 93% frá lokum síðasta áburðartímabils, m.a. vegna hækkunar á jarðgasi og framboðsáhrifum vegna heimsfaraldurs. Komi sú hækkun að öllu leyti fram í áburðarkaupum bænda fyrir árið 2022 má áætla að kostnaður bænda aukist um allt að 2,5 mia.kr. að óbreyttu magni. Gera má ráð fyrir að notkun áburðar verði minni á næsta ári vegna þessa. Bændasamtök Íslands áætla að áburðarverð hækki um 60% og aukinn kostnaður bænda geti numið 1,5 mia.kr. Tillögunni er ætlað að koma til móts við þessa hækkun.“
„Afar mikilvægt loftslags- og fæðuöryggismál“
Bændasamtök Íslands vöktu athygli á hækkunum á áburðarverði í umsögn sinni um fjárlagafrumvarpið sem skilað var inn fyrr í mánuðinum. Þar sagði að hækkanirnar væru án hliðstæðu og kölluðu á heimildir ríkisins til þess að geta gripið inn í ef að þær hækkanir raungerast og vegi að fæðuöryggi.
[adspot]Þá væri ljóst að til lengri tíma væri það afar mikilvægt loftslags- og fæðuöryggismál að innlend matvælaframleiðsla verði óháðari innfluttum áburði. Hins vegar væri óhugsandi að slíkar aðgerðir gætu borið ávöxt sem máli skiptir fyrir næsta vor. „Það þarf að hugsa til lengri tíma en mikilvægt er að vinna samtímis að því að draga úr þörf á innfluttum áburði og að sjá til þess að nauðsynlegt magn af áburði sé til reiðu á verði sem hafi ekki í för með sér forsendubrest fyrir landbúnað.“
Undir umsögnina skrifaði Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna. Áður en hún var ráðin í það starf var Vigdís starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins á Alþingi þar sem hún kom að undirbúningi fyrir þingmenn við gerð þingmála.
Bændablaðið, sem er í eigu Bændasamtakanna, greindi frá því í síðustu viku að stefnt sé að því að reisa umhverfisvæna áburðarverksmiðju á Reyðarfirði. Gangi áætlanir eftir gæti hún verið komin í gagnið eftir fimm eða sex ár.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir