Hagar þurfa ekki lengur að greiða niður skuldir

Á fimm árum hafa vaxta­ber­andi skuldir Haga farið úr 8,4 millj­örðum í 700 millj­ónir. Eig­in­fjár­staða félags­ins hefur batnað um tíu millj­arða króna þrátt fyrir arð­greiðslur. Og verð á bréfum félags­ins hefur nær fjór­fald­ast frá skrán­ingu.

Stjórn Haga hf., stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki lands­ins, telja ekki lengur þröf á því að greiða niður skuldir umfram lána­samn­inga. Mikil áhersla hefur verið lögð á skulda­nið­ur­greiðslu á und­an­förnum árum og skuldir félags­ins hafa lækkað gríð­ar­lega á skömmum tíma. Á resktr­ar­ár­inu 2011/2012 voru nettó vaxt­ber­andi skuldir Haga 8,4 millj­arðar króna. Í lok síð­asta rekstr­ar­árs, sem lauk í febr­úar 2016, voru þær orðnar 701 milljón króna. Skuld­irnar minnk­uðu um rúm­lega 900 millj­ónir króna milli áranna á undan og með áfram­hald­andi skulda­nið­ur­greiðslu verða Hagar með nán­ast engar nettó vaxta­ber­andi skuldir í nán­ustu fram­tíð.

Þess í stað sam­þykkti stjórn Haga þann 15. apríl arð­greiðslu­stefnu sem felur í sér að lögð verði áhersla á að félagið skili til hlut­hafa sinn þeim verð­mætum sem skap­ast í rekstr­inum á hverju ári. Áfram er stefnt að því að Hagar greiði hlut­höfum sínum arð sem nemi að lág­marki 50 pró­sent hagn­aðar næst­lið­ins rekstr­ar­árs, líkt og gert hefur verið und­an­farin ár. Að auki mun félagið kaupa eigin bréf og kaupa fast­eignir á hag­stæðu verði sem nýt­ast félag­inu í starf­semi sinni. Þetta kemur fram í fjár­festa­kynn­ingu sem Finnur Árnason, for­stjóri Haga, hélt í gær vegna árs­upp­gjörs Haga.

Eiginfjárhlutfallið 55,1 prósent

Smá­söluris­inn Hag­ar, sem rekur meðal ann­ars versl­anir undir merkjum Bón­uss og Hag­kaup, hefur átt góðu gengi að fagna síðan fyr­ir­tækið var skráð á markað í lok árs 2011. Skrán­ingin mark­aði upp­hafið á end­ur­reisn hluta­bréfa­mark­að­ar­ins eftir hrun­ið. Hagar selja vörur fyrir um 78,4 millj­arða króna á ári. Veltan hefur auk­ist um tíu millj­arða króna á fimm árum.

Í lok rekstr­ar­árs­ins 2011/2012 var eigið fé Haga 6,2 millj­arðar króna. Í lok febr­úar síð­ast­lið­ins var það 16,4 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið hefur farið úr 26,6 pró­sent í 55,1 pró­sent. Líkt og áður sagði hafa nettó vaxta­ber­andi skuldir verið greiddar upp að mestu á þessu tíma­bili. Á sama tíma hefur félagið þegar greitt út 4,4 millj­arða króna í arð til hlut­hafa sinna og stefnir að því að greiða tæpa tvo millj­arða króna í við­bót í næsta mán­uði, verði arð­greiðslu­til­lögur sam­þykktar á aðal­fundi sem er framundan.

[adspot]

Arðsemi eigin fjár Haga hefur hins veg]ar farið hratt lækk­andi. Hún var 47,7 pró­sent á rekstr­ar­ár­inu 2011/2012 en var 23,1 pró­sent á nýliðnu rekstr­ar­ári. Það þýðir að arð­semin er rúm­lega helm­ingi minni en hún var fyrir fimm árum. Það breytir því ekki að arð­semin sem hlut­hafar Haga eru að fá á eigið fé sitt er mjög góð og vand­séð að mörg önnur við­skipta­tæki­færi á Íslandi muni gefa þeim meiri arð­semi. Samt sem áður leggur stjórn Haga til við aðal­fund að heim­ilt verði á næstu 18 mán­uðum að kaupa allt að tíu pró­sent af heild­ar­hlutafé félags­ins

Lífeyrissjóðirnir eiga rúman helming

Frá því að Hagar voru skráðir á markað hefur gengi bréfa í félag­inu marg­fald­ast. Skrán­ing­ar­gengið var 13,5 krónur á hlut en í lok dags í gær var gengi bréf­anna 49 krónur á hlut. Umtals­verð sam­þjöppun hefur einnig orðið í hlut­hafa­hópnum frá skrán­ingu, aðal­lega vegna upp­kaupa líf­eyr­is­sjóða lands­ins á bréfum í Högum. Sam­eig­in­lega eru þeir nú langstærstu hlut­hafar félags­ins með 52,9 pró­sent hlut. Fjöldi hlut­hafa alls er 960.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár