Bjarni segist aldrei hafa haft aðkomu að málum um uppreist æru.
„Það var mér áfall að heyra af því,“ sagði Bjarni um það þegar hann frétti af því að faðir hans hefði skrifað undir meðmæli fyrir barnaníðing sem sótti um uppreist æru. Hann hafi fengið vitneskju um málið þegar búið var að taka ákvörðun um framgang málsins innan innanríkisráðuneytisins.
Hann segist aldrei muna geta skrifað undir slíkt sjálfur. „Ég mun aldrei reyna að verja þá gjörð,“ sagði hann jafnframt.
Sigríður Andersen, dómsmálaráðherra, upplýsti Bjarna í júlí um að faðir hans hefði undirritað meðmæli af þessu tagi. Bjarni sagði samstarfsflokkum í ríkisstjórn ekki af því fyrr en á mánudaginn síðastliðinn.
Hann segist aldrei hafa beitt sér fyrir því að þessu máli yrði stungið undir stól eða hylmt yfir það. Honum hafi fundist þetta mál eiga að fá sambærilega meðferð í stjórnsýslunni og önnur mál.
Athugasemdir