Af hverju að elda sous vide?

Ef þú tekur þig alvar­lega í eld­hús­inu en hefur ekki prófað að elda sous vide þá er kom­inn tími til að þú hugsir þinn gang. Í dag er nefni­lega eng­inn maður með mönnum, eða kona með konum, sem ekki kann að elda sous vide.

Í stuttu og ein­földu máli bygg­ist sous vide-aðferðin á því að hægelda mat í vatns­baði og í loft­tæmi. Hún er ekki ný af nál­inni og hefur verið notuð af atvinnu­kokkum um ára­bil. Á síð­ustu árum hefur aðferðin þó færst inn í heima­hús, þar sem æ fleiri áhuga­kokkar hafa fært sig upp skaftið og gert til­raunir með aðferð­ina. Og það er ekki að ástæðu­lausu. Hún þykir nefni­lega tryggja hina full­komnu eldun. Vökvinn og bragðið kjöt­bit­ans helst til að mynda í honum en hverfur ekki út á grillið eða á pönn­una eins og við hefð­bundna eldun. Aðferðin reyn­ist líka vel þegar elda á fisk. Það eina sem þarf til verks­ins er plast­poki og vatns­hita­stillir, þó til séu sér­stakir pokar og vatns­ofnar sem auð­velda verkið. 

1) Settu allt sem þú ætlar að elda í plast­poka og loft­tæmdu hann, ýmist með því að þrýsta loft­inu út eða með lít­illi loft­tæm­ing­ar­vél. Hægt er að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár