Sameiginleg bílastæðahús fremur en bílakjallarar í Keldnalandinu

Horft verður til þess að byggja nokkur bíla­stæða­hús fremur en bíla­stæða­kjall­ara í hverf­inu sem á að skipu­leggja að Keldum og í Keldna­holti, til að spara bæði pen­inga og tíma.

Keldnalandið verður skipulagt undir blandaða byggð á næstu árum.
Keldna­landið verður skipu­lagt undir bland­aða byggð á næstu árum. Mynd: Reykjavíkurborg

Stefnt er að því að í nýju hverfi sem skipu­lagt verður á Keldum og Keldna­holti verði byggð nokkur bíla­stæða­hús á lyk­il­stöðum, sem komi að mestu í stað bíla­kjall­ara og einka­bíla­stæða inni á lóðum í hverf­inu. Þetta kemur fram á nýjum upp­lýs­inga­vef sem Reykja­vík­ur­borg hefur sett upp vegna fyr­ir­hug­aðrar upp­bygg­ingar Keldna­lands­ins.

Þar segir að horft sé til bíla­stæða­hús­anna til þess að draga úr bygg­ing­ar­kostn­aði og stytta fram­kvæmda­tíma hús­bygg­inga, auk þess sem með þessu sé dregið úr áhrifum á grunn­vatn. „Horfa á til þess að húsin geti hýst mið­læga þjón­ustu fyrir aðliggj­andi svæði til á jarð­hæð og að hægt verði að breyta þeim í atvinnu- eða íbúð­ar­hús­næði ef bíla­stæða­þörf minnkar í fram­tíð­inni,“ segir í umfjöllun á vef borg­ar­innar.

Þetta eru svip­aðar áherslur og settar hafa verið fram í skipu­lagi Nýja-Skerja­fjarðar, þar sem horft er til þess að stórt mið­lægt bíla­stæða­hús leysi bíla­geymslu­þörf íbúa.

Í afar mörgum nýbygg­ingum sem byggðar hafa verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á und­an­förnum árum og ára­tugum eru bíla­kjall­arar undir húsum, sem eykur bæði bygg­ing­ar­kostnað (talan 6-10 millj­ónir á hvert stæði hefur verið nefnd) og bygg­ing­ar­tíma hús­næðis.

Skipulagssamkeppni á næsta ári

Reykja­vík­ur­borg og Betri sam­göngur vinna saman að upp­bygg­ingu Keldna­lands­ins og Keldna­holts, en búið er ákveða að efna til alþjóð­legrar sam­keppni um nýtt ramma­skipu­lag fyrir svæðið, sem á að fara af stað á fyrri hluta næsta árs. Samkvæmt því sem kemur fram á vef borg­ar­innar er stefnt að því að hægt verði að þróa deiliskipu­lag fyrir fyrstu upp­bygg­ing­ar­reit­ina á svæð­inu haustið 2023.

Á vef borg­ar­innar segir að stefnt sé að því að þjón­usta Borg­ar­línu hefj­ist sam­hliða afhend­ingu á fyrstu 100 íbúð­unum í hverf­inu, og Borg­ar­lína er sögð ein helsta for­senda þess að hægt sé að „umbreyta Keldum í bland­aða byggð með íbúðum, þjón­ustu og atvinnu­hús­næði“.

Svæðið sem um ræðir er alls um 115 hekt­arar, og á vef borg­ar­innar má sjá skýr­ing­ar­mynd­ina sem er hér að neðan, þar sem sá flötur er lagður yfir önnur svæði í Reykja­vík.

Umhverfisgæði svæðisins verði nýtt

Í umfjöllun á vef Reykja­vík­ur­borgar segir að Keldur séu fal­legt og grænt svæði og að áhersla verði lögð á að nýta og taka mið af nátt­úru­gæðum svæð­is­ins. við upp­bygg­ingu hverf­is­ins. „Þarna gefst tæki­færi við upp­bygg­ingu til að nýta ræktun sem er fyrir á svæð­inu og flétta inn í borg­ar­um­hverfið svo úr verði grænir borg­ar­garðar. Hverfið verður byggt upp í suð­ur­hlíðum borg­ar­innar og liggur því vel við sólu,“ segir á vef borg­ar­innar.

Einnig kemur þar fram að auk góðra almenn­ings­sam­gangna verði lögð áhersla á fram­úr­skar­andi göngu- og hjóla­leiðir og að skipu­lag verði á for­sendum vist­vænna og hag­kvæmra sam­gangna.

„Útgangs­punkt­ur­inn er að upp­bygg­ing svæð­is­ins hafi sem minnst ytri áhrif til aukn­ingar í bíla­um­ferð á aðliggj­andi stofn- og tengi­brautum og að almenn­ings­sam­göngur verði fyrsti kostur í lengri ferðum,“ segir á vef borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár