Bílastæðið í kjallaranum stundum „langdýrasta herbergið í húsinu“

Gríð­ar­legt pláss fer undir þá bíla sem bæt­ast við á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á hverju ári og kostn­aður við geymslu þeirra er bor­inn af heim­ilum og fyr­ir­tækjum, sagði Hrafn­kell Á. Proppé skipu­lags­fræð­ingur í við­tali við Kjarnann á dög­unum.

Hrafnkell Á. Proppé skipulagsfræðingur og fyrrverandi forstöðumaður Verkefnastofu Borgarlínu ræddi um kostnað heimila og fyrirtækja af geymslu einkabíla í samtali við Kjarnann fyrir skemmstu.
Hrafn­kell Á. Proppé skipu­lags­fræð­ingur og fyrr­ver­andi for­stöðu­maður Verk­efna­stofu Borg­ar­línu ræddi um kostnað heim­ila og fyr­ir­tækja af geymslu einka­bíla í sam­tali við Kjarnann fyrir skemmstu. Mynd: Bára Huld Beck

„Þegar þessi umræða byrjar úti í sam­fé­lag­inu á hverju hausti, um að það sé miklu meiri umferð heldur en síð­asta haust, þá er það bara alveg rétt. En það er af því að okkur hefur ekki tek­ist að bjóða íbú­unum upp á aðra alvöru val­kost­i,“ sagði Hrafn­kell Á. Proppé skipu­lags­fræð­ingur við Kjarnann í ítar­legu við­tali, sem birt­ist í heild sinni í síð­ustu viku.

Í við­tal­inu fór hann yfir nauð­syn þess að breyta ferða­venjum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og byrja að bjóða þeim sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu upp á aðra alvöru val­kosti en einka­bíl­inn til að kom­ast á milli staða. Hann benti á það, sem stundum gleym­ist í umræð­unni um þróun sam­gangna og skipu­lags í Stór-Reykja­vík, að öll sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu standa sam­einuð að þeirri fram­tíð­ar­sýn að byggja upp þétt­ara borg­ar­svæði með hágæða almenn­ings­sam­göngum.

„Það er ekki hægt að halda áfram hina leið­ina,“ sagði Hrafn­kell og nefndi að hann hefði nýlega haldið erindi á ráð­stefnu um lofts­lags­mál, þar sem hann setti land­þörf sam­gangna í sam­hengi við lofts­lags­mál­in. „Und­an­farið hefur árleg fjölgun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að jafn­aði verið um 4.000 íbú­ar. Miðað við hvernig við erum að þjón­usta ferða­þörf þessa fólks í dag þá bæt­ast við 3.000 bílar á hverju ári. Ef þú myndir raða þessum bílum öllum upp á rauðu ljósi við Kringlu­mýr­ar­braut­ina þá myndi röðin enda við Kúa­gerði, á milli Straums­víkur og Voga. Þetta færi í gegnum Reykja­vík, Kópa­vog, Garða­bæ, Hafn­ar­fjörð og end­aði í Vogum á Vatns­leysu­strönd, leið sem væri 22 kíló­metr­ar,“ sagði Hrafn­kell.

Þrjúhundruðþúsund fermetrar fyrir bílastæði

Til við­bótar við plássið sem bíl­arnir taka á göt­unum þyrfti einnig að skaffa þeim bíla­stæði. Hann segir að ætla megi að hver bíll sem er í umferð þurfi um fjögur bíla­stæði hér og þar um borg­ar­svæðið og að hvert bíla­stæði taki um 25 fer­metra af plássi – sem geri 30 hekt­ara, eða 300.000 fer­metra, fyrir þá 3.000 bíla sem bæt­ist við í umferð­inni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á ári hverju.

Þetta geymslu­pláss undir bíla er vand­fundið inni í miðri borg, sagði Hrafn­kell og benti svo á nei­kvæð umhverf­is­á­hrif þess að moka jarð­vegi upp fyrir bíla­kjall­ara undir alla þessa bíla og hauga hann upp ein­hvers­staðar utan borg­ar­markanna.[links]

„Um leið og þú haugar hann upp byrjar bruni á kolefni, og á sama tíma eru stjórn­völd að setja aura í að moka ofan í ein­hverja skurði. Við erum ekki að hugsa um þetta sam­hengi, þessi þróun getur ekki gengið áfram – það eru engin geim­vís­indi. Borg­ar­sam­fé­lög geta ekki tek­ist á við vöxt­inn nema með því að mæta ferða­þörf­inni með sjálf­bær­ari og skil­virk­ari hætti. Þar sem þú getur flutt fleira fólk með minni til­kostn­aði fyrir sam­fé­lagið í heild sinni. Þá er ég bara að tala um allan til­kostn­að, líka þann sem spar­ast við að taka minna pláss. Því við höfum ein­fald­lega ekki ótak­markað plás­s,“ sagði Hrafn­kell.

Stæði í bílakjallara á 6-10 milljónir króna

Hann kom einnig inn á það í við­tal­inu hversu mik­ill kostn­aður heim­ila og fyr­ir­tækja væri við það að fórna landi undir bíla­stæði – og benti á að sá kostn­aður marg­fald­að­ist ef bíla­stæðin væru í nið­ur­gröfnum bíla­kjöll­urum.

„Íbúðin sem þú ætlar að kaupa þér verður miklu dýr­ari. Bíla­stæði kostar kannski 6-10 millj­ónir og ef þú ætlar að kaupa þér íbúð á 50 millj­ónir þá er hel­víti dýrt að þurfa að borga upp undir 10 millj­ónir í bíla­stæði. Þetta er orðið lang­dýrasta her­bergið í hús­in­u,“ sagði Hrafn­kell.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár