Skuldastaða sjávarútvegsfélaga hefur lækkað til muna frá því að skuldir félaga í greininni náðu hámarki í 619 milljörðum króna á árinu 2008. Á árinu 2015 námu skuldir sjávarútvegsfyrirtækja um 333 milljörðum króna og hefur skuldastaða félaganna ekki verið lægri eftir efnahagsáfallið 2008.
Þetta kemur fram í skýrslu sjávarútvegsteymis Íslandsbanka.

Frá hápunkti 2008 hafa skuldir sjávarútvegsfélaga lækkað um 286 milljarða króna eða um 46 prósent. „Þegar fjármögnunarhreyfingar sjávarútvegsfélaga eru skoðaðar sést hvernig bætt afkoma félaganna undanfarin ár hefur skapað svigrúm til niðurgreiðslu langtímaskulda. Í fyrsta skipti frá árinu 2007 hafa nýjar lántökur verið umfram afborganir og nemur munurinn um 18 mö.kr. Til samanburðar námu afborganir umfram nýjar lántökur á árunum 2008-2014 um 148 mö.kr. á verðlagi ársins 2015. Þrátt fyrir að nýjar lántökur ættu sér stað á árinu 2015 minnkaði skuldsetning sjávarútvegsfélaga engu að síður. Bendir það til þess að sjávarútvegsfélög séu í auknum mæli að greiða niður skammtímalán sín,“ segir í skýrslunni.
Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja á árinu 2015 nam 45 milljörðum króna en heildartekjur voru 275 milljarðar. Hagnaðurinn jókst um 3,7 prósent milli ára.
Að mati sjávarútvegsteymisins mun draga úr hagnaði fyrirtækjanna á þessu ári, og jafnvel því næsta, þar sem styrking krónunnar gagnvart helstu alþjóðlegu myntum veikir rekstrarstöðu félaganna. „Einnig teljum við að gengi krónunnar muni halda áfram að styrkjast á næstu misserum. Mun þetta að öðru óbreyttu leiða til þess að hagnaður sjávarútvegsfélaga lækki á árinu 2016,“ segir í skýrslu teymisins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir