Ísland líklegast með veikustu löggjöfina á leigumarkaði

Þrátt fyrir til­efni til breyt­ingar á lögum um leigu­mark­að­inn er slíkt vand­með­farið og nauð­syn­legt er að læra af reynslu ann­arra landa í þeim efnum.

Ef leigu­mark­aður á að virka vel fyrir báða aðila – leigu­sala og leigj­endur – er nauð­syn­legt að um hann ríki ein­hvers konar lög­gjöf með jafn­vægi á milli rétt­inda beggja aðila. Þetta kemur fram í grein Ólafs Sindra Helga­sonar, yfir­hag­fræð­ings Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar, og Fredriks Kopsch, dós­ents í fast­eigna­fræðum við Lund­ar­há­skóla, sem birt­ist í Vís­bend­ingu.

Í henni segir að leigu­mark­aður gegni mik­il­vægu hlut­verki á hús­næð­is­mark­aði. Til að mynda þjóni hann heim­ilum sem þurfa á leigu­hús­næði að halda vegna tíma­bund­inna aðstæðna og heim­ilum með lítið eigið fé eða sem eiga í erf­ið­leikum með að afla sér fjár­magns til hús­næð­is­kaupa.

Í nýlegri rann­sókn þeirra Ólafs og Fredriks eru rök færð fyrir því að lög­gjöf þurfi mögu­lega að taka til­lit til breyttra aðstæðna á mark­aði. Í henni eru enn fremur teknar saman nokkrar vís­bend­ingar sem gefa til kynna að form­gerð leigu­mark­að­ar­ins á Íslandi hefur breyst tals­vert frá því á árunum fyrir hrun. Stuðst er við kann­anir um aðstæður á leigu­mark­aði og skoð­aðar breyt­ingar í svörum ásamt því að lög­gjöf á Íslandi er borin saman við lög­gjöf­ina á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Leiguverð í Svíþjóð ákvarðað út frá svokölluðu notagildi

Í rann­sókn­inni er nánar farið í lög­gjöf­ina á Íslandi og hún borin saman við lög­gjöf­ina á hinum Norð­ur­lönd­unum. Meðal sam­an­burð­ar­land­anna er Svíþjóð með sterk­ustu lög­gjöf­ina fyrir leigj­endur, að því er fram kemur í grein­inni.

„Þar er leigu­verð ákvarðað út frá svoköll­uðu nota­gildi sem tekur mið af leigu sam­bæri­legra íbúða. Þetta er svipað í grunn­inn og í Noregi og Finn­landi þar sem leiga á að vera svipuð og fyrir aðrar íbúðir en sænska kerfið hefur leitt til þess að leiga er langt undir jafn­vægisverði þar í landi, einkum í stærri borgum. Svíþjóð glímir við mestu vanda­málin í tengslum við afleið­ingu af því sem búast má við af slíkri lög­gjöf, t.a.m. eru biðlistar eftir leigu­í­búðum þar mjög langir. Hins vegar virð­ist vera þróun í átt að ein­hverjum til­slök­unum, a.m.k. hvað varðar breyt­ingar á leigu milli samn­inga en of snemmt er að segja til um þá þróun og hvaða áhrif hún kann að hafa.

Í Danmörku eru svipuð rétt­indi hvað varðar hús­næð­is­ör­yggi og í Svíþjóð en ekki er til­greint til hversu langs tíma leigj­andi leigir íbúð­ina og leigu­sali getur lent í tals­verðum vand­ræðum með að segja upp samn­ingi. Í Danmörku, Finn­landi og Noregi er leyfi­legt að láta leigu­verð fylgja vísi­tölu. Í Danmörku er það hins vegar ein­ungis leyfi­legt fyrir hluta mark­að­ar­ins.“

Nauðsynlegt að læra af reynslu annarra þjóða

Til að bera saman lög­gjöf Norð­ur­land­anna er ein­blínt á þrjá flokka: Hækkun á leigu á samn­ings­tíma, hækkun á leigu á milli samn­inga og hús­næð­is­ör­yggi leigj­anda. Í grein­inni kemur fram að í sam­an­burði við önnur Norð­ur­lönd hafi Ísland lík­leg­ast veik­ustu lög­gjöf­ina hvað varðar þessar þrjár víddir í sam­an­burði við hin Norð­ur­löndin en hún sé nokkuð svipuð lög­gjöf­inni í Noregi. Með þeim breyt­ingum sem hafa verið kynntar á húsa­leigu­lögum í ár gæti hins vegar lög­gjöfin færst meira í átt­ina að hinum Norð­ur­lönd­unum.

„Þrátt fyrir mögu­legt til­efni til breyt­ingar á lög­gjöf­inni er slíkt vand­með­farið og nauð­syn­legt er að læra af reynslu ann­arra landa í þeim efnum. Almennt er það sam­dóma álit hag­fræð­inga að aukið fram­boð leysir fleiri vanda­mál á leigu­mark­aði í stað hertra reglna. Of harðar reglur geta dregið úr fram­boði. Með auknu fram­boði jafn­ast samn­ings­staða milli leigj­anda og leigu­sala og heldur aftur af hækkun leigu. Hins vegar er ekki ávallt hægt að tryggja nægi­legt fram­boð og nauð­syn­legt að ákveðin rétt­indi séu tryggð og jafn­vægi á samn­ings­stöðu ríki milli beggja aðila.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár