Nettengingum hjá 365 hefur fækkað á árinu - Síminn með helmings hlutdeild

Síminn er með 60 pró­sent hlut­deild í net­sjón­varps­þjón­ustu en Vodafone 40 pró­sent.

Þeim sem voru með netteng­ingu hjá 365 fækk­aði á fyrri helm­ingi árs­ins 2015. Um síð­ustu ára­mót voru þeir um 15.551 tals­ins en hafði fækkað niður í 14.558 um mitt þetta ár. Um helm­ingur nett­teng­inga á Íslandi eru hjá Símanum.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn sem birt var í gær.

Viðskiptavinum Hringdu fjölgaði mikið

Staða Símans og Vodafone á íslenskum netteng­inga­mark­aði er mjög sterkt, en Nova, sem náð hefur miklum árangri á far­síma­mark­aði, býður ekki upp á land­línu­teng­ingar. Um helm­ingur allra slíkra teng­inga í land­inu er hjá Símanum og 29 pró­sent hjá Vodafone.

Það fyr­ir­tæki sem bætir hlut­fal­lega flestum teng­inum við sig und­an­farin miss­eri er þó Hringdu. Um mitt ár í fyrra voru við­skipta­vinir þess 4.186 tals­ins en voru í lok júní 2015 orðnir 6.028. Það er aukn­ing um 44 pró­sent á einu ári.

365 miðlar hófu að bjóða upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti í haustið 2013. Fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Tali var síðan rennt inn í 365 í des­em­ber 2014. 365 er einnig stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins. Það rekur fjölda sjón­varps­stöðva, útvarps­stöðva, næst mest lesna vef­miðil lands­ins og mest lesna dag­blað lands­ins.

365 miðlar leggja mikið upp úr því að vöndla saman sölu á neti, heima­síma, GSM og sjón­varps­á­skriftum með hag­stæðum til­boðum. Þessir vöndlar eru síðan aug­lýstir af miklum krafti á miðlum fyr­ir­tæk­is­ins. Það virð­ist hins vegar ekki hafa skilað aukn­ingu í seldum inter­netteng­inum. Þvert á móti fækkar þeim við­skipta­vinum sem eru með teng­ingar hjá 365 á fyrri hluta þessa árs. Um síð­ustu ára­mót voru þeir 15.551 en voru 14.558 í lok júní.

Sex af hverjum tíu „boxum“ hjá Símanum

Í skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar er nú birt í fyrsta sinn yfir­lit yfir heild­ar­fjölda áskrif­enda með sjón­varp yfir IP-net. Þ.e. hvernig „sjón­varps­boxin“ skipt­ast á milli þeirra aðila sem bjóða við­skipta­vinum sínum upp á að vera með sjón­varp í gegnum netteng­ingar. Þeir aðilar eru tveir, Síminn og Vodafone og þeir virð­ast hafa skipt mark­aðnum nokkuð bróð­ur­lega á milli sín á und­an­förnum árum. Síminn er með um 60 pró­sent mark­aðs­hlut­deild en Vodafone um 40 pró­sent. Og þannig hefur staðan verið árum saman.

Þar skiptir ugg­laust miklu máli að ekki er hægt að tengj­ast sjón­varpi Símans í gegnum ljós­leið­ara­net, sem byggst hefur upp á und­an­förnum árum, heldur bara sjón­varpi Vodafone. Þess í stað býður Síminn upp á svo­kallað ljós­net, sem teng­ist inn í heim­ili í gegnum kop­ar­taug. Vodafone er enda með um 61 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í ljós­leið­ara­teng­ingum. Þar hefur 365 bætt tölu­vert við sig og er nú með 16 pró­sent hlut­deild. Hringdu er síðan með 11,7 pró­sent hlut­deild. Tvær af hverjum þremur ADSL-teng­ingum lands­ins eru hins vegar hjá Símanum.

Meiri harka færist í sjónvarpsmarkaðinn

Ljóst er að mun meiri harka er að fær­ast í þennan hluta fjar­skipta­mark­að­ar­ins nú en áður hefur verið, enda neyslu­venjur fólks gjör­breyttar frá því sem áður var. Nú er öll áhersla á hliðrað efni, ekki línu­legt, og þessi rót­grónu fjar­skipta­fyr­ir­tæki eru bæði farin að bjóða upp á mikið magn af efni til kaups í gegnum sjón­varps­við­mót sitt. Þau við­mót hafa til að mynda tekið algjör­lega við hlut­verki mynd­bands­leiga sem áður voru á hverju horni á Íslandi. Nú leigir fólk myndir með því að ýta á takka á fjar­stýr­ingu frá Símanum eða Vodafone.

Auk þess á Síminn sjón­varps­stöð­ina SkjáEinn. Fyr­ir­tækið steig stórt skref í bar­átt­unni á sjón­varps­mark­aði í byrjun októ­ber þegar línu­leg dag­skrá Skjá­sEins var opnuð, öfl­ugri (og kostn­að­ar­samri) vetr­ar­dag­skrá var rúllað fram og áskrift að Skjá­Einum gerð að áskrift í gagn­virkni efn­isveitu. Með þessu herj­aði Síminn á nútíma­sjón­varps­markað.

Áhorf á línu­lega dag­skrá Skjá­sEins hefur tekið kipp upp á við eftir að þessar breyt­ingar voru kynntar og ljóst að sá fríi val­kostur sem frír SkjárEinn er mun hafa tölu­verð áhrif í bar­átt­unni við 365 miðla um áskrif­endur.

Mikil velta en töluverð fjárfesting

Fjar­skipta­geir­inn á píp­urnar sem mynda grunn­inn að mestu bylt­ingu sem heim­ur­inn hefur upp­lifað frá iðn­bylt­ing­unni. Það er bæði arð­samt og kostn­að­ar­samt.

Í skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar er birt yfir­lit yfir bæði heild­ar­tekjur af fjar­skipta­starf­semi og þá fjár­fest­ingu sem átt hefur sér stað í geir­anum.

Tekjur af fjar­skipta­starf­semi voru 26.280 millj­ónir króna á fyrri hluta árs­ins 2015 og juk­ust um 3,3 pró­sent á milli ára. Haldist þessi hlut­falls­lega hækkun út árið verða heild­ar­tekur geirans um 54 millj­arðar króna í ár, eða tæp­lega sex millj­örðum krónum hærri en þær voru árið 2012.

Breyt­ing­arnar sem orðið hafa á und­an­förnum árum hafa hins vegar einnig kallað á mikla fjár­fest­ingu. Á árunum 2012 til 2014 námu fjár­fest­ingar í fjar­skipta­starf­semi sam­tals rúmum 20 millj­örðum króna. Á fyrstu sex árum árs­ins í ár námu þær 3,7 millj­örðum króna.

Þetta er seinni hluti umfjöll­unar Kjarnans um nýbirta skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn. Fyrri hlut­ann má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár