Kjarninn birtir leyniskjöl úr TISA-viðræðum: Upplýsingar um réttindi vinnuafls og kjarnatexti

Kjarninn, í sam­starfi við WikiLeaks, birtir í dag kjarna­texta TISA-við­ræðn­anna og fjóra við­auka úr þeim tengdum ákveðnum þjón­ustu­sviðum. Öll gögnin eru úr við­ræðu­lotum sem fóru fram í apríl 2015. Tólf aðrir fjöl­miðlar víða um heima birta gögnin einnig. Á meðal þeirra eru Dagens Nær­ingsliv í Noregi, Süddeutsche Zeitung frá Þýska­landi og Libération frá Frakk­landi. Þetta er í fjórða sinn sem Kjarninn birtir leyni­gögn úr TISA-við­ræð­unum.

TISA-við­ræð­unum er ætlað að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum. Þær hafa staðið yfir frá vor­mán­uðum árs­ins 2013 og von­ast þau ríki sem taka þátt í þeim að við­ræð­unum ljúki á næsta ári, árið 2016. Alls taka 23 aðilar þátt í þeim (Evr­ópu­sam­bandið, sem kemur fram fyrir sín 28 aðild­ar­lönd, er talið sem einn aðili í við­ræð­unum), þeirra á meðal er Ísland.

Því eru alls 50 lönd þátt­tak­endur í við­ræð­unum. Þau lönd sem taka þátt í við­ræð­unum eru sam­tals ábyrg fyrir um tveimur þriðju hluta heims­fram­leiðsl­unnar. Þjón­ustu­við­skipti eru ábyrg fyrir um 80 pró­sent af þjóð­ar­fram­leiðslu í Banda­ríkj­unum og Evr­ópu­sam­band­inu. Því er ljóst að mikið er undir.

TISA stendur fyrir Trade in Services Agreement. Við­ræð­urnar eru marg­hliða og snú­ast um að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum milli landa. Yfirlýst mark­mið þeirra er að fækka hindr­unum í vegi fyr­ir­tækja sem starfa á vett­vangi þjón­ustu­við­skipta og auka gegn­sæi í milli­ríkja­við­skiptum með þjón­ustu. Samn­ings­við­ræð­urnar skipta Ísland miklu máli enda spanna þátt­töku­ríkin helstu mark­aðs­svæði íslenskra fyr­ir­tækja.

[caption id="attachment_30506" align="alignnone" width="1024"] Gögnin sem birt eru í dag eru frá WikiLeaks komin. Alls birt­ast þau í þrettán mis­mun­andi fjöl­miðlum víða um heim.[/caption]

wiki
wiki

Einungis einn almennur alþjóð­legur samn­ingur um þjón­ustu­við­skipti hefur verið gerður í sög­unni. Hann gengur undir nafn­inu GATS og gekk í gildi árið 1996. Síðan hefur ekki náðst að semja um nýja lausn sem tekur til­lit til þeirra breyt­inga sem orðið hafa á heim­inum und­an­farna tæpa tvo ára­tugi.

Alþjóða­sam­tök starfs­fólks í almanna­þjón­ustu (PSI) hafa gagn­rýnt TISA-við­ræð­urnar harð­lega. Í skýrslu sem þau gáfu út vegna þeirra í lok apríl 2014 segir meðal ann­ars að við­ræð­urnar séu vís­vit­andi til­raun til að auka hagnað stærstu og rík­ustu fyr­ir­tækja og þjóð­ríkja heims á kostnað þeirra sem verst hafa það. Verði sam­komu­lagið að veru­leika muni það auka ójöfnuð gríð­ar­lega.

Með TISA-sam­komu­lag­inu, og öðrum slíkum yfir­þjóð­legum við­skipta­sátt­málum, sé verið að festa í sessi rétt fjár­festa og koma í veg fyrir að rík­is­stjórnir geti gripið til aðgerða á fjöl­mörgum sviðum sem teng­ist við­skiptum. Á meðal þess sem PSI segir að TISA-sam­komu­lagið muni hafa í för með sér er að rík­is­stjórnir muni ekki geta tekið aftur yfir opin­bera þjón­ustu ef einka­væð­ing hennar hafi mis­tek­ist, reglu­gerðir þjóða sem snúa að öryggi verka­manna verði tak­mark­aðar, sömu­leiðis umhverf­is­vernd­ar­reglu­verk, neyt­enda­vernd og eft­ir­lits­starf­semi með heil­brigð­is­þjón­ustu, orku­verum, úrgangslosun og fag­gild­ingu í mennta­kerf­inu. „Þetta sam­komu­lag mun koma fram við far­and­verka­menn (e. migr­ant workers) sem vörur og tak­marka getu rík­is­stjórna til að tryggja rétt­indi þeirra,“ segir enn fremur í skýrslu PSI.

Úr viðræðulotu sem fór fram í apríl


WikiLeaks birtir í dag, í sam­starfi við Kjarnann og tólf aðra fjöl­miðla víða um heim, kjarna­text­ann úr TISA-við­ræð­unum auk þess sem fjórir við­aukar um ákveðin svið við­ræðn­anna eru birtir. Þetta er í fyrsta sinn sem kjarna­text­inn úr við­ræð­unum er birtur en WikiLeaks hefur áður birt ýmsa við­auka. Í kjarna­text­anum er greint frá þeim laga­legu meg­in­at­riðum sem eru undir í við­ræð­unum auk þess sem hann setur þá við­auka úr við­ræð­unum sem þegar hafa verið birtir opin­ber­lega í sam­hengi.

Hægt er að lesa kjarna­text­ann hér.

Hver við­auki fjallar um ákveðið þjón­ustu­svið sem er til umræðu í TISA-við­ræð­unum, eða hindrun sem þarf að ryðja úr vegi til að hægt sé að semja.

Einn við­aukanna sem nú er birtur fjallar um inn­lendar reglu­gerðir hvers lands fyrir sig sem tekur þátt í við­ræð­unum, og hvernig straum­línu­laga þarf þær til að mark­mið við­ræð­anna um aukin frjáls þjón­ustu­við­skipti nái fram að ganga. Hann er hægt að lesa hér.

Annar við­auki fjallar um það hvernig ríki aflar sér þjón­ustu­við­skipta, hvernig útboð vegna þeirra eru birt og að það sé gert á þann hátt að allir áhuga­samir aðilar sem aðild eiga að samn­ingnum geti haft aðgengi að þeim upp­lýs­ingum. Hann er hægt að lesa hér.

Rætt um takmörkun á réttindum vinnuafls


Áhuga­verð­asti við­aukin sem birtur er í dag fjallar um hreyf­ingar ein­stak­linga (e. movem­ent of natural per­sons) milli þeirra landa sem aðild eiga að við­ræð­unum, verði samn­ing­ur­inn að veru­leika. Um er að ræða starfs­fólk á vegum þeirra fyr­ir­tækja TISA-samn­ing­arnir ganga meðal ann­ars út á að veita meira frelsi til að vinna í öllum aðild­ar­löndum við­ræð­anna. Það er hins vegar sér­stak­lega tekið fram í við­auk­anum að TISA-sam­komu­lag eigi ekki að veita þessu vinnu­afli greið­ari aðgang að vinnu­mark­aði þess ríkis sem það mun starfa í við að veita þjón­ustu umfram það starf. Auk þess mun starfið og veran í umræddu ríki ekki veita aukin rétt til rík­is­borg­ara­réttar, búsetu­réttar eða ann­arar lang­tímat­vinnu á vinnu­mark­aði rík­is­ins.

Í við­ræð­unum er meðal ann­ars verið að semja um mörk á þann tíma sem ríki hefur til að afgreiða leyfi fyrir hið hreyf­an­lega vinnu­afl þjón­ustu­veit­and­ans.

Í skjöl­unum sem nú eru birt sést afstaða Íslands í mörgum þáttum sem snúa að þessu umdeilda máli vel. Gullna reglan þar virð­ist vera sú að elta afstöðu Evr­ópu­sam­bands­ins og Noregs, enda öll ríkin aðili að innri mark­aði Evrópu og bundin þeim reglum sem um hann gilda. Þar krist­all­ast einnig afstaða ýmissa ann­arra ríkja sem reka aðra stefnu en flest Evr­ópu­ríki varð­andi frjálst flæði vinnu­afls. Ástralía, sem rekur mjög harða inn­flytj­enda­stefnu, er til að mynda mjög var­kár gagn­vart mörgu sem um er rætt.

Hægt er að lesa við­auk­ann hér.

Fjórði við­aukin sem birtur er í dag snýst um gagn­sæi. Til­gangur hans er sá að skylda öll ríkin sem aðild munu eiga að samn­ingnum til að birta lög, reglur, ferla og aðra stjórn­sýslu­lega far­vegi á hátt sem er aðgengi­legur fyrir önnur aðild­ar­ríki.

Hann mál lesa hér.

Í fjórða sinn sem Kjarninn birtir gögn


Þetta er í fjórða sinn sem Kjarninn birtir gögn úr TISA-við­ræð­unum. Í júní 2014 birti Kjarninn og ýmsir fjöl­miðlar víða um heim, í sam­starfi við Wikileaks, fyrstu leyniskjölin sem láku úr TISA-við­ræð­unum.

Í þeim kom fram að vilji væri til þess að vinda ofan af því reglu­verki sem sett hefur verið á fjár­mála­þjón­ustu eftir hrun, liðka fyrir veru lyk­il­stjórn­enda og sér­fræð­inga í fjár­mála­geir­anum í öðrum löndum en þeirra eigin umfram aðra og setja upp ein­hvers konar yfir­þjóð­legan dóm­stól til að taka ákvarð­anir um deilu­mál sem munu spretta upp á milli fjár­mála­fyr­ir­tækja og þjóða í fram­tíð­inni.

Á for­síðu skjal­anna sem Wikileaks lét Kjarnann hafa sagði meðal ann­ars að ekki mætti aflétta trún­aði á þeim fyrr en fimm árum eftir að TISA-sam­komu­lagið taki gildi eða fimm árum eftir að við­ræð­unum ljúki, fari svo að samn­ingar náist ekki. Á skjöl­unum stendur að þau verði að „vera vistuð í lok­aðri eða öruggri bygg­ingu, her­bergi eða hirslu“.

Við­ræð­urnar fara líka fram utan Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar (WTO) og lúta því ekki þeim reglum sem gilda um þá stofnun. Ljóst er á skjöl­unum frá bæði Wikileaks og nú AWP að vilji er til þess að auka frelsi í að selja þjón­ustu milli landa all­veru­lega.

Það er þó ekki vilji til þess á meðal þeirra sem fara með við­ræð­urnar fyrir hönd Íslands að það hvíli nein sér­stök leynd yfir þeim.

Tillaga um aukna samkeppni í heilbrigðisgeira


Í byrjun febr­úar greindi Kjarninn síðan frá því að til­laga hafi verið lögð fram um við­auka um að auka sam­keppni um heil­brigð­is­þjón­ustu á milli landa með því að mark­aðsvæða þjón­ust­una. Samkvæmt til­lög­unni eru miklir ónýttir mögu­leikar til að alþjóða­væða heil­brigð­is­þjón­ustu, aðal­lega vegna þess að heil­brigð­is­þjón­usta er að mestu fjár­mögnuð og veitt af ríkjum eða vel­ferð­ar­stofn­unum. Það er því nán­ast ekk­ert aðdrátt­ar­afl fyrir erlenda sam­keppn­is­að­ila til að keppa um að veita hana vegna þess hversu lítið mark­aðsvætt umhverfi hennar er.

Það var samn­ings­nefnd Tyrk­lands sem lagði fram til­lög­una en hún var rædd í átt­undu við­ræðu­lotu TISA-við­ræðn­anna sem fór fram í Genf í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Vert er að taka fram að öllum löndum er frjálst að leggja fram til­lögur um við­auka. Ísland og Noregur hafa til að mynda í hyggju að leggja fram til­lögu um við­auka um orku­þjón­ustu, sem löndin tvö standa mjög fram­ar­lega í að veita.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var tekið afar dræmt í til­lögu Tyrkja þegar hún var lögð fram í við­ræðu­lot­unum í sept­em­ber og des­em­ber á síð­asta ári.

Þann 3. júní síð­ast­lið­inn birti Kjarninn síðan ný skjöl úr við­ræð­unum sem fjöll­uðu meðal ann­ars um flutn­ings­þjón­ustu í lofti, raf­ræn við­skipti, flæði vinnu­afls, fjar­skipta­þjón­ustu, fjár­mála­þjón­ustu og aukið gagn­sæi varð­andi ákvarð­anir og ráð­staf­anir rík­is­stjórna.

Mikill titringur


Fréttir af til­lög­unni vöktu samt sem áður heims­at­hygli.Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins sendi meðal ann­ars frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem hún sagði mjög skýrt að heil­brigð­is­kerfi aðild­ar­ríkja verði ekki einka­vædd af Evr­ópu­sam­band­inu né í við­skipta­samn­ingum á borð við TISA, sem sam­bandið gerir fyrir hönd aðild­ar­ríkja sinna.

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra.

Málið olli líka póli­tísku fjaðrafoki á Íslandi. Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra var spurður um það í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi þann 5. febr­úar síð­ast­lið­inn. Hann sagði að eng­inn starfs­maður heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins hafi aðkomu að TISA-við­ræð­unum, hann hafi ekk­ert heyrt um til­lögu um við­auka við samn­ing­inn sem í fólst að fella mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu undir hann og að afstaða Íslands til þessa, sem utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér, hafi ekki verið borin undir hann.

Utan­rík­is­ráðu­neytið brást við orðum Krist­jáns með því að senda frá sér til­kynn­ingu um að það hafi upp­lýst vel­ferð­ar­ráðu­neyti hans um fram­lagn­ingu til­lögu um við­auka við TISA-samn­ing­inn. Það hafi ráðu­neytið gert 6. jan­úar síð­ast­lið­inn. Síðan hafi verið haldin fundur með tengiliðum úr öllum fagráðu­neytum þann 14. jan­úar. Tengiliður úr ráðu­neyti Krist­jáns hefði tekið þátt í þeim fundi.

Sérstakar umræður á Alþingi


Ögmundur Jónasson, þing­maður Vinstri grænna, óskaði eftir sér­stökum við­ræðum um TISA-við­ræð­urnar á Alþingi í byrjun mars 2015. Ögmundur spurði Gunnar Braga Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra hvort samn­ing­ur­inn yrði borin undir Alþingi áður en að skrifað verði undir hann og hvort til greina kæmi að mark­aðsvæða almanna­þjón­ustu með samn­ings­gerð­inni.

Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra. MYND EPA

Gunnar Bragi var afdrátt­ar­laus í til­svörum sínum. Hann sagði að upp­lýs­ingar um mark­mið Íslend­inga og áherslur í við­ræð­unum væru án nokk­urs leyndar. Nú sé hægt að nálg­ast allar upp­lýs­ingar um fram­vindu þeirra á heima­síðu ráðu­neyt­is­ins. Mikið sam­ráð hefði auk þess verið við ýmsa hags­muna­að­ila og utan­rík­is­mála­nefnd verið upp­lýst reglu­lega.

Gunnar Bragi sagði síðan að Ísland myndi ekki gang­ast undir neinar skuld­bind­ingar sem feli í sér að veita erlendum aðilum mark­aðs­að­gang að þjón­ustu sem nú er í almanna­þjón­ustu. Þar á meðal er heil­brigð­is­þjón­usta.

Hann sjái þó ekki ástæðu til að leggja samn­ing­inn fyrir Alþingi fyrr en kemur að full­gild­ingu hans þar sem að TISA-samn­ing­ur­inn krefst ekki laga­breyt­inga á Íslandi. Hins vegar verði lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga um full­gild­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár