Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán framlengt um tvö ár

Úrræðið um ráð­stöfun við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lán, sem átti að renna út í lok júní 2019, hefur verið fram­lengt um tvö ár. Ráð­stöf­unin fram­leng­ist hins vegar ekki sjálf­krafa hjá þeim sem eru að nýta sér úrræðið.

Alþingi sam­þykkti nýverið frum­varp þess efnis að heim­ilt verði að ráð­stafa við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aði skatt­frjálst inn á hús­næð­is­lán til næstu tveggja ára. Úrræðinu átti að ljúka 30. júní 2019 en var fram­lengt til 30. júní 2021. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Íbúða­lána­sjóði. Vakin er athygli á því að úrræðið fram­leng­ist ekki sjálf­krafa hjá þeim sem nýta sér úrræðið.

Framlengt í annað skipti

Allt frá 1. júlí 2014 hefur lands­mönnum staðið til boða að nota sér­eigna­sparnað sinn skatt­frjálst til að borga niður hús­næð­is­lán. Heimilt er að ráð­stafa bæði eigin fram­lagi og fram­lagi launa­greið­anda í sér­eign­ar­líf­eyr­is­sjóð, til að greiða inn á höf­uð­stól veð­lána sem tekin voru vegna kaupa eða bygg­ingar á íbúð­ar­hús­næði til eigin nota. Umsækj­andi þarf því að eiga íbúð­ar­hús­næði til eigin nota, skulda vegna öfl­unar á því og hafa gert samn­ing við vörslu­að­ila við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar og launa­greið­anda um að greiða í sér­eigna­sjóð.

Með lögum nr. 111/2016 var úrræðið um ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar, sem renna átti út í lok júní 2017, fram­lengt um tvö ár eða til júníloka 2019. Nú hefur úrræðið aftur verið fram­lengt til árs­ins 2021.

Til að halda áfram að nota úrræðið þarf hins vegar að stað­festa það með því að skrá sig inn á www.leidretting.is og stað­festa að við­kom­andi vilji halda áfram að nýta sér úrræðið. Loka­dagur til stað­fest­ingar er 30. sept­em­ber 2019 en ef ráð­stöf­unin er ekki fram­lengd þá fellur hún úr gildi frá og með 1. júlí 2019.

Færri nýtt sér úrræðið en lagt var upp með

Í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans í apríl í fyrra kom fram að 45 þús­und ein­stak­lingar, ekki fjöl­skyldur, hafi ákveðið að ráð­stafa sér­eign­ar­sparn­aði sínum inn á hús­næð­is­lán með þessum hætti frá miðju ári 2014. Heild­ar­um­fang þeirrar upp­hæðar sem hóp­ur­inn hafi ráð­stafað inn með þessum hætti væri 44 millj­arðar króna. Jafn­framt kom fram í svari ráðu­neyt­is­ins að ljóst væri að „mun færri hafa kosið að nýta sér þennan mögu­leika“ en lagt var upp með.

Í skýrslu sér­fræð­inga­hóps um höf­uð­stólslækk­un, sem skil­aði af sér í nóv­em­ber 2013, kom fram að með­al­launa­tekjur fjöl­skyldna sem spör­uðu í sér­eign og skuld­uðu í fast­eign væri miklu hærri en með­al­launa­tekjur þeirra sem spara ekki. „Al­mennt eru tekjur þeirra sem spara í sér­eigna­líf­eyr­is­sparn­aði mun hærri en hinna sem ekki gera það,“ segir orð­rétt í skýrsl­unni. Og þar er bætt við að „tekju­mis­munur þeirra sem spara og gera það ekki er mik­ill á öllum aldri. Hér er alls staðar átt við fast­eigna­eig­endur sem skulda eitt­hvað í fast­eign­inn­i.“

Því eru þeir sem eru lægri tekjur mun ólík­legri til að telja sig í stakk búna til að leggja fyrir sér­eign­ar­sparnað, og þar af leið­andi fá þeir hvorki skatt­afslátt­inn né við­bót­ar­fram­lag atvinnu­rek­enda sem nýtendum býðst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár