Mynd: Birgir Þór Harðarson

Leiðréttingin átti að skila 150 milljörðum – Hefur skilað 106 milljörðum

Þegar Leið­rétt­ingin var kynnt sögðu ábyrgð­ar­menn hennar að heild­ar­á­vinn­ingur hennar yrði 150 millj­arðar og að hann myndi skila sér á þremur árum. Það hefur ekki gengið eftir fjórum árum síðar.

Þegar næstum fjögur ár eru liðin frá því að lands­mönnum var heim­ilað, sem hluti af Leið­rétt­ing­unni, að nota sér­eign­ar­sparnað sinn til að nið­ur­greiða höf­uð­stól hús­næð­is­lána sinna hafa rétt tæp­lega 45 þús­und ein­stak­lingar kosið að gera það. Alls hafa þeir ráð­stafað 44 millj­örðum króna inn á hús­næð­is­lán sín.

Í kynn­ingu á Leið­rétt­ing­unni, stærsta máli rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem fram fór í Hörpu í mars 2014 kom fram að heild­ar­um­fang hennar yrði 150 millj­arðar króna. Þar af áttu 70 millj­arðar króna að koma til vegna þess að lands­mönnum yrði gert kleift að nota sér­eigna­sparnað sinn skatt­frjálst til að borga niður hús­næð­is­lán sín í þrjú ár, frá miðju ári 2015 og fram til 30. júní 2017.

Heim­ildin til að nota sér­eign­ar­sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán var fram­lengd í októ­ber 2016, í aðdrag­anda kosn­inga þess árs, fram á mitt sumar 2019. Þrátt fyrir að upp­runa­lega tíma­bilið sé liðið og að næstum helm­ingur fram­leng­ing­ar­tíma­bils­ins sé lið­inn hefur ein­ungis 62 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem þáver­andi ráða­menn þjóð­ar­innar sögðu að yrði ráð­stafað inn á hús­næð­is­lán með sér­eign­ar­sparn­aði ratað þangað.

150 milljarðar urðu 106 milljarðar

Stærri hluti upp­hæð­ar­innar, 80 millj­arðar króna, átti að koma úr rík­is­sjóði sem milli­færsla til hluta þeirra sem voru með verð­tryggð lán á árunum 2008 og 2009 til að lækka höf­uð­stól lána þeirra. Þegar upp­runa­lega tíma­bil­inu lauk var það hlut­fall um 48 pró­sent.

Þegar liggur fyrir að nið­ur­greiðslu­upp­hæðin sem kom úr rík­is­sjóði varð ekki 80 millj­arðar heldur 72,2 millj­arðar króna. Og hún fór að að mestu til tekju­hærri og eign­ar­meiri hópa sam­fé­lags­ins.

Þeir 150 millj­arðar króna sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son lof­uðu í Hörpu í mars 2014 urðu því að 105,8 millj­örðum króna.

„Mun færri hafa kosið að nýta sér þennan möguleika“

Þegar úrræðið um að nota sér­eign­ar­sparnað sinn skatt­frjálst til að greiða niður hús­næð­is­lán var kynnt var metið hversu margir gætu nýtt sér það. Nið­ur­staðan var sú að alls hefðu rúm­lega 62.800 fjöl­skyldur getað nýtt sér það og þaðan er talan 70 millj­arðar króna komin.

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og spurði hversu margir hefðu kosið að ráð­stafa sér­eigna­sparn­aði sínum inn á lán frá miðju ári 2014 og fram til dags­ins í dag á grund­velli ofan­greinds úrræðis.

Úr glærukynningu um niðurstöður Leiðréttingarinnar. Þegar þessi glæra var sýnd í nóvember 2014 lá þegar fyrir að engin sviðsmynd gerði ráð fyrir að 70 milljarðar myndu greiðast inn á höfuðstól vegna nýtingu séreignarsparnaðar.
Úr glæru­kynn­ingu um nið­ur­stöður Leið­rétt­ing­ar­innar. Þegar þessi glæra var sýnd í nóv­em­ber 2014 lá þegar fyrir að engin sviðs­mynd gerði ráð fyrir að 70 millj­arðar myndu greið­ast inn á höf­uð­stól vegna nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar.

Í svari þess kom fram að 45 þús­und ein­stak­lingar, ekki fjöl­skyldur, hafi ákveðið að ráð­stafa sér­eign­ar­sparn­aði sínum inn á hús­næð­is­lán með þessum hætti frá miðju ári 2014. Heild­ar­um­fang þeirrar upp­hæðar sem hóp­ur­inn hafi ráð­stafað inn með þessum hætti væri 44 millj­arðar króna. Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að ljóst sé að „mun færri hafa kosið að nýta sér þennan mögu­leika“ en lagt var upp með.

Tvöfaldur ávinningur

Sér­eigna­sparn­aður virkar þannig að ein­stak­ling­ur­inn greiðir sjálfur hluta hans en fær við­bót­ar­fram­lag frá atvinnu­rek­anda á móti, sem félli ann­ars ekki til. Það er að með­al­tali um þriðj­ungur þeirrar upp­hæðar sem ráð­stafað er inn á lánið. Því felst launa­hækkun í söfnun sér­eigna­sparn­aðar.

Auk þess felst umtals­verður skatta­af­sláttur í því að nýta úrræðið. Þegar Leið­rétt­ingin var kynnt kom fram að skatt­afslátt­ur­inn sem ríkið myndi gefa þeim sem nýttu sér­eigna­sparnað sinn með þessum hætti myndu fá 20 millj­arða króna allt í allt í skatta­af­slátt.

Því er um tvö­faldan ávinn­ing að ræða: ann­ars vegar fullan skatta­af­slátt af nýt­ingu fjár­muna sem ann­ars yrðu skatt­lagðir og hins vegar launa­hækkun sem kæmi ekki til nema við­kom­andi safni sér í sér­eign­ar­sparn­að.

Skatt­greiðslur sem rík­is­sjóður hefur gefið eftir til þess hóps sem getur og vill nýta sér sér­eign­ar­sparn­að­ar­leið­ina er á bil­inu 12 til 13 millj­arðar króna.

Áætla má að mót­fram­lag atvinnu­rek­enda sem ráð­stafað hefur verið inn á hús­næð­is­lán með þessum hætti sé á milli 15 og 16 millj­arðar króna. Skatt­greiðslur sem rík­is­sjóður hefur gefið eftir til þess hóps sem getur og vill nýta sér sér­eign­ar­sparn­að­ar­leið­ina er á bil­inu 12 til 13 millj­arðar króna.

Tekjuhærri mun líklegri til að spara séreign

Af hverju er þá ekki fleiri að nýta sér þessa leið? Lík­leg­asta skýr­ingin er sú að ansi margir telja sig ekki hafa svig­rúm til þess. Sér­eigna­sparn­aður fer nefni­lega mjög eftir tekj­um.

Í skýrslu sér­fræð­inga­hóps um höf­uð­stólslækk­un, sem skil­aði af sér í nóv­em­ber 2013 og var stýrt af Sig­urði Hann­essyni, kom fram að með­al­launa­tekjur fjöl­skyldna sem spör­uðu í sér­eign og skuld­uðu í fast­eign væri miklu hærri en með­al­launa­tekjur þeirra sem spara ekki. „Al­mennt eru tekjur þeirra sem spara í sér­eigna­líf­eyr­is­sparn­aði mun hærri en hinna sem ekki gera það,“ segir orð­rétt í skýrsl­unni. Og þar er bætt við að „tekju­mis­munur þeirra sem spara og gera það ekki er mik­ill á öllum aldri. Hér er alls staðar átt við fast­eigna­eig­endur sem skulda eitt­hvað í fast­eign­inn­i.“

Af þessu má ráða að nýt­ing sér­eign­ar­sparn­aðar til nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána nýt­ist fyrst og síð­ast þeim sem til­heyra tekju­hærri hópum sam­fé­lags­ins. Þeir sem eru með lægri tekjur eru mun ólík­legri til að telja sig í stakk búna til að leggja fyrir sér­eign­ar­sparnað, og þar af leið­andi fá þeir hvorki skatt­afslátt­inn né við­bót­ar­fram­lag atvinnu­rek­enda sem nýtendum býðst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár