Svindlarar nýta sér óttann

Stundum er sagt að tæki­færin séu alls staðar, fólk þurfi bara að koma auga á þau. Evr­ópu­lög­reglan, Europol, varar við fólki sem nú, á dögum kór­ónu­veirunnar, hefur komið auga á tæki­færi til að auðg­ast á kostnað sam­borgar­anna.

Það ástand sem nú ríkir um víða ver­öld á sér ekki hlið­stæðu, að minnsta kosti ekki á síð­ari tímum. Götur borga og bæja nán­ast auðar, flestar versl­anir lok­aðar, sama gildir um veit­inga­stað­ina. Skærin á rak­ara­stof­unum liggja ónotuð á borð­unum, fáir í strætó, íþrótta­iðkun liggur víð­ast hvar niðri og skól­arnir meira og minna lok­aðir. Öllum skipað að halda sig í tveggja metra fjar­lægð frá næsta manni. Það er sem sé allt breytt og eng­inn veit hvenær mann­lífið verður eins og það var áður en bévít­ans veiran lagði undir sig ver­öld­ina.

Í þekktum dæg­ur­laga­texta frá árinu 1969 segir að „fátt sé svo með öllu illt að eigi boði gott“. Þessa dag­ana taka lík­lega fáir undir þetta en þeir sem það gera eru þó til. Sá hópur, sem notar hvert tæki­færi sem gefst til að not­færa sér aðstæð­urnar í eigin þágu, hefur að und­an­förnu látið til sín taka, víða um lönd. Fyrir þennan hóp hefur illt boðað gott.

Evr­ópu­lög­reglan, Europol, sendi fyrir nokkrum dögum frá sér til­kynn­ingu og aðvörun til yfir­valda í öllum löndum Evrópu. Þar er varað við svindl­urum og brösk­urum sem reyni eftir megni að not­færa sér aðstæð­urnar til að maka krók­inn.

Grímur, töflur og töfradrykkir

Europol sagði í til­kynn­ingu sinni að í byrjun þessa mán­aðar hafi starfs­fólk stofn­un­ar­innar í sér­stakri her­ferð, í sam­vinnu við yfir­völd í 90 löndum, lagt hald á tugi þús­unda and­lits­grímna, sem sagðar voru henta starfs­fólki sjúkra­húsa og millj­ónir taflna, auk ýmis konar „lyfja“ í vökva­formi. Grím­urnar, töfl­urnar og vökva­blönd­urnar áttu það sam­eig­in­legt að vera ómerki­legar eft­ir­lík­ingar sem ekki gátu gert hið minnsta gagn.

Í til­kynn­ing­unni frá Europol kom líka fram að þessi dæmi sem hér voru nefnd væru ein­ungis dropi í svindl­hafið. Í áður­nefndri her­ferð fund­ust fleiri en tvö þús­und svindl vef­síður þar sem boðið var upp á alls kyns vörur, grímur og hlífð­ar­fatnað, hand­spritt og sótt­hreinsi­vökva ásamt mörgu öðru, til hjálpar í bar­átt­unni gegn kór­ónu­veirunni Covid 19. Í öllum til­vikum lofað bót og bættri líðan, ýmist með góðum ráðum eða lyfjum sem send yrðu heim til kaup­and­ans hið snarasta. Vel að merkja þegar kaup­and­inn hefði borgað fyr­ir­fram, inn á banka­reikn­inga við­kom­andi sölu­að­ila. Í góðri trú borg­uðu margir en fengu hins­vegar aldrei neina send­ingu með póst­inum.

Á sumum áður­nefndra vef­síðna var enn­fremur boðið upp á ein­hvers­konar fyr­ir­byggj­andi fjar­með­ferð. Hljómar kannski í margra eyrum fremur ótrú­verð­ugt en á þennan vagn hopp­uðu ótrú­lega margir, að sögn Europol. Til þess eins að kom­ast svo að því að „með­ferð­ar­gjaf­inn“ var til­bún­ingur einn. Í til­kynn­ingu Europol kom fram að margir hefðu greitt háar fjár­hæðir fyrir lyf og lækn­ingar, pen­inga sem væru í lang­flestum til­vikum tap­aðir.

Veirueftirlitsmenn

Europol var­aði við fleiru í áður­nefndri til­kynn­ingu. Á und­an­förnum tveimur vikum hefur tals­vert borið á því, víða í Evrópu, að menn íklæddir hlífð­ar­bún­ingum, með and­lits­grímur og gler­augu hafi bankað upp á hjá eldra fólki í borgum og bæjum. Þeir hafi sagst vera veiru­eft­ir­lits­menn og séu komnir til að kanna hvort smit geti leynst í við­kom­andi íbúð. Gjarna beðið um að íbú­inn eða íbú­arnir bíði úti, eða frammi á gangi meðan smit­leitin standi yfir. Taki stutta stund.

Alltof margir, segir í til­kynn­ingu Europol, hafi trúað „eft­ir­lits­mönn­unum“ sem hafi með þessu móti getað rænt og ruplað sak­lausa borg­ara. Líka séu þess dæmi að þeir sem banki upp á, iðu­lega tveir saman, seg­ist vera heil­brigð­is­starfs­menn sem séu komnir til að kanna heilsu­farið hjá íbúum húss­ins. Á meðan annar lýsir í augu og eyru, þyk­ist taka púls­inn og spyr spurn­inga, stingur hinn á sig verð­mætum og pen­ingum. Eftir skamma stund, þegar „heilsu­fars­rann­sókn­inni“ er lokið hverfa þjófarnir á braut. Síðar upp­götvar svo fólk hver til­gangur heim­sókn­ar­innar var.

Að und­an­förnu hafa yfir­völd í mörgum Evr­ópu­löndum, með aug­lýs­ingum í fjöl­miðlum, varað fólk við að gleypa við gylli­boðum sem aug­lýsa töfra­lausnir í bar­átt­unni við kór­ónu­veiruna. Tals­maður Europol sagð­ist, í við­tali við breskt dag­blað, von­ast til að slíkar aug­lýs­ingar verði til þess að færri láti glepjast.

Viðurlög

Eins og flestum mun kunn­ugt eru nú víða um lönd í gildi strangar reglur, í því skyni að hindra útbreiðslu veirunnar. Þessar reglur varða í stuttu máli sam­neyti fólks, tveggja metra reglan svo­nefnda, fjölda­tak­mörk í versl­unum o.s.frv. Fram hefur komið að hér á Íslandi hefur almenn­ingur, í heild­ina, farið að til­mælum yfir­valda og mjög margir halda sig að mestu heima þessa dag­ana. Rík­is­sak­sókn­ari gaf sl. föstu­dag (27.3) fyr­ir­mæli um við­ur­lög gegn brotum á sótt­varna­lögum. Þar er kveðið á um upp­hæð sekta og lengd fang­els­is­vistar ef upp­víst verður um brot. Sekt­ar­upp­hæðir eru mis­háar eftir alvar­leika brot­anna. Alvar­leg­ustu brot geta varðað sex ára fang­elsi.

Á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna síð­ast­lið­inn föstu­dag kom fram að fyr­ir­mæli rík­is­sak­sókn­ara byggi á nor­rænni fyr­ir­mynd. Í norsku sótt­varna­lög­unum er kveðið á um sekt, eða fang­elsi vegna brota á lög­unum. Fang­els­is­dómur getur orðið allt að fjórum árum.

Nick Hækkerup dóms­mála­ráð­herra Dana kynnti fyrir nokkrum dögum nýtt frum­varp um refs­ingar vegna kór­ónu­glæpa, eins og ráð­herr­ann komst að orði. Ráð­herr­ann vill að frum­varpið fái flýti­með­ferði í þing­inu, Fol­ket­inget, og það verði að lögum á næstu dögum. Þótt flestir þing­menn hafi lýst sig fylgj­andi hertum við­ur­lögum vegna ástands­ins hafa sumir þeirra lýst efa­semdum um sumt sem fram kemur í frum­varp­inu.

Danskir fjöl­miðlar hafa fjallað tals­vert um þetta nýja frum­varp og Mikael Sjöberg for­maður Dönsku dóm­ara­sam­tak­anna fann sig knú­inn til að skrifa dóms­mála­ráð­herr­anum vegna frum­varps­ins. For­mað­ur­inn segir í bréfi sínu að þótt ráð­herr­ann leggi áherslu á skjóta afgreiðslu megi ekki flýta sér um of. Mikael Sjöberg vekur athygli á að í frum­varpið vanti refsilág­mark (baga­tel­grænse).

Þannig væri til dæmis hægt að ákæra mann sem hefði stolið einni flösku af hand­spritti. Ástæða þess að for­maður dóm­ara­sam­tak­anna nefnir þetta sér­stak­lega er að í fylgi­skjölum með frum­varp­inu er hand­sprittið sér­stak­lega nefnt. Kannski vegna þess að tals­vert hefur verið fjallað um þjófn­aði á þessum varn­ingi í dönskum fjöl­miðlum. For­mað­ur­inn nefnir að vegna ástands­ins í þjóð­fé­lag­inu kæmi dómur í hugs­an­legu hand­spritts­þjófn­að­ar­máli ekki til með að falla fyrr en seint og um síðir. „Og þá verður Covid-19 von­andi löngu úr sög­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár