Samfylkingin ríði vart feitum hesti frá því að útiloka samstarf við Sjálfstæðisflokk

Sigríður Á. Andersen er ekki viss um að Sam­fylk­ingin og aðrir flokkar græði á því að úti­loka rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Að sama skapi eigi Sjálf­stæð­is­flokkur ekki að hlaupa til og geðj­ast flokk­unum sem eru lengra til vinstri.

Sigríður Á. Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Sigríður Á. Andersen þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Bára Huld Beck

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fyrr­ver­andi ráð­herra, telur að flokkar sem lýsi því yfir fyrir kosn­ingar að þeir ætli sér ekki að vinna með ákveðnum flokkum þurfi að „eiga það við sig“. Það klagi ekki upp á Sjálf­stæð­is­flokk­inn, þrátt fyrir að flokkar á borð við Sam­fylk­ingu og Pírata hafi nú þegar boðað að ekki komi til greina að starfa með flokknum í rík­is­stjórn.

„Mér sýn­ist hún nú ekk­ert ríða mjög feitum hesti frá svona yfir­lýs­ingum, almennt,“ sagði Sigríður um Sam­fylk­ing­una í sam­tali við Kristján Krist­jáns­son þátt­ar­stjórn­anda Sprengisands á Bylgj­unni í dag, þar sem farið var yfir stöðu stjórn­mála og Sjálf­stæð­is­flokks.

Sigríður sagði hið sama hefði átt við um Bjarta fram­tíð og Viðreisn eftir að flokk­arnir höfðu „hlaupið frá rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum“ árið 2017. „Þessum flokkum var bara refsað í kosn­ing­unum þar á eftir,“ sagði Sigríður.

Sigríður sagði að sjálf­sögðu væru „þessir vinstri­flokkar“ að senda Sjálf­stæð­is­flokknum skila­boð. „Svar okkar við því er ekki að reyna að geðj­ast þessum flokkum og verða eins og þeir. Út á það ganga ekki stjórn­mál. [...] Við megum ekki missa sjónar á því út á hvað Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gengur,“ sagði Sigríður.

[adspot]

Í við­tal­inu á Sprengisandi ræddi Sigríður um stöð­una í Sjálf­stæð­is­flokknum og velti því upp hvort flokk­ur­inn væri kannski „allt of mikið að elta aðra flokka í stefnu­málum“ og þá á sama tíma væru meg­in­skila­boð flokks­ins – um að lág­marka rík­is­af­skipti og umsvif rík­is­ins – að þynn­ast út.

„Flokk­ur­inn þarf kannski að brýna sig aðeins í þessum skila­boðum sínum,“ sagði Sigríður.

Skildi lítið í Morgunblaðsgrein Friðjóns

Til umræðu kom grein Friðjóns R. Frið­jóns­sonar mið­stjórn­ar­manns í Sjálf­stæð­is­flokknum frá því fyrr í vetur þar sem hann sagði flokk­inn vera með ásýnd flokks kyrr­stöðu.

Sigríður sagð­ist lítið hafa skilið í grein Friðjóns. Hann hefði aðal­lega talað um sjáv­ar­út­vegs­kerfið og í fáum greinum væru meiri breyt­ingar en akkúrat þar, auk þess sem þar færi mesta nýsköp­unin fram.[links]

„Ég ætla ekki að svara fyrir þessa grein. Ég er ekki sam­mála því að flokk­ur­inn sé gam­al­dags flokkur og standi ekki fyrir breyt­ingar. Ég held kannski þvert á móti að menn hafi viljað breyta allt of miklu allt of hratt og þannig misst fók­us­inn á skila­boð­unum, misst fók­us­inn á því sem skiptir máli, og það er að veita stjórn­mála­mönnum aðhald, ekki þó með því að færa völd frá stjórn­mála­mönnum inn í emb­ætt­is­manna­kerfið eins og hefur verið mjög mikið hérna og verið látið átölu­laust allt of mikið af öllu stjórn­mála­líf­inu. Þetta eru þau skila­boð og aðhald sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þarf að veita,“ sagði Sigríður Á. Andersen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár