Xi ræddi við Trump um að taka Taívan

Leið­togar Kína og Banda­ríkj­anna töl­uðu saman í síma á sama tíma og Úkraína fær úrslita­kosti um að sam­þykkja kröfur Rúss­lands.

Xi og Trump
Xi og Trump Þíða hefur verið í sam­skiptum for­seta Kína og Banda­ríkj­anna. Mynd: AFP / Samsett mynd

Xi Jinping, leið­togi Kína, og Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, ræddu tví­hliða sam­starf og mál­efni Taívans í sím­tali í dag, að því er rík­is­frétta­stofa Kína, Xinhua, greinir frá.

Xi sagði við Trump að löndin tvö ættu að „við­halda skrið­þunga í sam­skiptum sínum“, að sögn Xinhua, eftir fund í Suður-Kóreu í síð­asta mán­uði þar sem leið­tog­arnir tveir reyndu að draga úr hörðu við­skipta­stríði.

Xinhua sagði að Xi hefði einnig „áréttað að sam­ein­ing Taívans við Kína á ný væri mik­il­vægur hluti af alþjóða­skipan eft­ir­stríðs­ár­anna“.

Kína gerir til­kall til lýð­ræð­is­rík­is­ins Taívans og segir eyj­una hluta af yfir­ráða­svæði sínu. Kínversk stjórn­völd hafa hótað að beita valdi til að ná þar yfir­ráðum.

Trump og Xi hitt­ust í októ­ber í fyrsta sinn síðan 2019 og áttu í við­ræðum sem fylgst var náið með, þar sem tvö stærstu hag­kerfi heims hafa verið í við­skipta­stríði.

Deilur stjórn­valda í Washington og Peking, sem ná yfir allt frá sjald­gæfum jarð­málmum til soja­bauna og hafn­ar­gjalda, hafa skekið mark­aði og truflað aðfanga­keðjur mán­uðum saman.

Xi sagði við Trump í dag að „árang­urs­ríkur“ fundur í Suður-Kóreu „hefði hjálpað til við að stilla stefn­una og gefa skrið­þunga í stöðuga fram­rás risa­skips sam­skipta Kína og Banda­ríkj­anna“, eins og Xinhua orðar það.

Frá fund­inum hafa sam­skipti Kína og Banda­ríkj­anna „verið stöðug og haldið áfram að batna, sem hefur verið fagnað víða af báðum löndum og alþjóða­sam­fé­lag­inu“, bætti Xi við.

Innrás Rúss­lands í Úkraínu hefur talin vera lær­dóms­rík fyrir kín­versk stjórn­völd sem íhuga að sama skapi inn­rás í Taívan. Rússum hefur gengið verr en talið var fyr­ir­fram að knýja Úkraínu til upp­gjafar, en á móti hafa við­skipta­þving­anir ekki náð að beygja Rússland frá áfram­hald­andi stríði sem nú nálg­ast fjögur ár. Þá liggur nú fyrir að banda­rísk stjórn­völd eru því sem næst hætt að styðja Úkraínu í stríð­inu gegn Rúss­landi og hefur Trump gefið úkra­ínskum stjórn­völdum frest fram á fimmtu­dag til að verða við frið­ar­til­lögum Banda­ríkj­anna, sem hafa verið kall­aðar „óska­listi Pútíns“ vegna þess hversu hlið­hollar þær eru Rússum.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Það verður að mjög undarlegt að bandarískur forseti gangi erindum einræðisherra. Kannski hann hafi meiri skilning á sjónarmiðum þeirra en reikna megi við.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgangur Kína

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár